Fréttablaðið - 13.02.2013, Page 10
13. febrúar 2013 MIÐVIKUDAGUR| FRÉTTIR |
EcoFuel-tæknin nýtir bensín og metangas og sparar þannig allt að 46% af eldsneytis-
kostnaði. Metanbílar eru umhverfisvænir og bera því engin aðflutningsgjöld. Þeir sem
kaupa verksmiðjuframleiddan Volkswagen Passat metanbíl í febrúar fá frítt metangas
í eitt ár*. Að auki fá eigendur Passat EcoFuel frítt í stæði í Reykjavík ásamt því að njóta
hagstæðari kjara á lánum hjá fjármögnunarfyrirtækjum.
Passat Variant kostar aðeins frá
4.690.000 kr.
Passat Variant EcoFuel Comfortline Plus, 150 hestafla, beinskiptur.
www.volkswagen.is
Lækkaðu eldsneytiskostnaðinn
um allt að 46%
Metan 9.843 kr.
Dísil 13.801 kr.
Bensín 18.242 kr.
**Miðast við eldsneytisverð eins og skráð er hjá Olís og Metan
31. janúar 2013.
Eldsneytiskostnaður
Volkswagen Passat
á hverja 1.000 km**
*Samkvæmt upplýsingum frá Umferðarstofu var meðalakstur fólksbíla
12.255 km árið 2011. Miðað við 6,6 m3 meðaleyðslu Passat EcoFuel er árlegur
eldsneytiskostnaður því 120.000 kr. miðað við verð á metani 31. janúar 2013.
Tilboð í febrúar.
Frítt metan í eitt ár!
Forsendurnar fyrir yfirtöku rík-
issjóðs og Reykjavíkurborgar á
Hörpu eru brostnar. Í gær sam-
þykkti borgarráð tillögu um fjár-
mögnun Hörpu sem felur í sér að
um 800 milljóna króna eigenda-
skuld verður breytt í nýtt hlutafé
og 1.164 milljóna króna viðbótar-
framlag til að fjármagna rekst-
ur Hörpu út árið 2016. 640 millj-
ónir króna af þeirri upphæð eru
bein aukin framlög eigendanna. Í
greinargerð með tillögunni segir
að „ [v] alkosturinn við að fara ekki í
ofan greindar aðgerðir er sá að fyr-
irtækið Harpan komist fljótlega í
þrot og starfsemin hætti með tals-
verðum tilkostnaði fyrir eigendur“.
Það voru Katrín Jakobsdóttir
mennta- og menningarmálaráð-
herra og Hanna Birna Kristjáns-
dóttir, fyrrverandi borgarstjóri,
sem samþykktu yfirtöku ríkis og
borgar á Hörpu.
Ekki aukin framlög
Ríki og borg samþykktu að taka
yfir og klára Hörpuna snemma
árs 2009. Tekið var sambanka-
lán hjá íslensku bönkunum til að
fjármagna yfirtökuna. Í skriflegu
svari Katrínar Jakobsdóttur við
fyrirspurn þingmannsins Marðar
Árnasonar um Hörpu, sem birt
var í mars 2011, kom mjög skýrt
fram að ekki ætti að setja meira fé
en þar var umsamið í Hörpu. Þar
sagði orðrétt að „forsendur fyrir
yfirtöku verkefnisins voru þær
að ekki þyrftu að koma til önnur
framlög frá ríki og borg en gert
var ráð fyrir í samningi Austur-
hafnar-TR og Portusar frá 9. mars
2006“.
Það framlag fylgir vísitölu og
er áætlað 1.045 milljónir króna á
þessu ári. Sama framlag þurfa eig-
endur að greiða í 34 ár til viðbótar.
Veittu brúarlán
Í lok árs 2011 leituðu forsvarsmenn
Hörpu-samstæðunnar til eigenda
sinna eftir brúarláni, þar sem upp-
haflegt sambankalán dugði ekki
fyrir stofnkostnaði. Það stendur í
dag í 794 milljónum króna. Lánið
átti að endurgreiðast þegar Harpa
gæfi út skuldabréfaflokk, og í síð-
asta lagi í desember 2012. Lands-
bankinn, sem er langstærsti lán-
veitandinn í sambankaláninu, fékk
umsjón með skuldabréfaútboðinu
og sölutryggði það. Ekkert bólaði
hins vegar á henni á síðasta ári.
Þann 3. ágúst 2012 gáfu eig-
endur Hörpu út yfirlýsingu þar
sem fram kom að rekstrarafkoma
Hörpu yrði neikvæð um 407 millj-
ónir króna það árið. Nú, nokkrum
mánuðum síðar, er ljóst að tekjur
voru ofáætlaðar um 82 millj-
ón króna og gjöld vanáætluð um
tíu milljónir króna. Því varð tap
Hörpu vegna síðasta árs 498 millj-
ónir króna, eða rúmum fimmtungi
meira en reiknað var með um mitt
árið. Þetta tap var fjármagnað með
yfirdrætti.
Útgáfan loks kláruð
Í greinargerð sem lögð var fyrir
borgarráð í síðustu viku kemur
fram að nú hafi endurfjár mögnun
loks verið „tryggð með samkomu-
lagi við Landsbankann sem mun
tryggja fulla fjármögnun stofn-
kostnaðar með sölu skuldabréfa á
hagkvæmum kjörum. Um leið verð-
ur tryggð heildarfjár mögnun verk-
efnisins[…] Miðað er við að frá
þessari fjármögnun verði gengið
14. febrúar“. Það er á morgun.
Af þeim 18,5 milljörðum króna
sem útgáfan á að skila munu 16,5
milljarðar króna fara í að endur-
fjármagna sambankalán vegna
byggingar hússins, 500 milljónir
króna fara í að greiða upp skamm-
tímalán sem veitt var í desember
2012 til að klára uppgjör við verk
taka, 525 milljónir króna fara í að
greiða yfirdrátt vegna fjármögn-
unar á taprekstri síðasta árs og
272 milljónir króna eiga að fara í
að fjármagna „tekjuskapandi fram-
kvæmdir“ í húsinu á árinu 2013. Þá
verða 311 milljónir króna teknar
að láni til að fjármagna áætlaðan
halla fram til ársins 2016 sem
framlag ríkis og borgar nær ekki
að brúa.
Forsendur yfirtöku Hörpu brostnar
Eigendur Hörpu ætla að gefa eftir skuldir og auka framlög til samstæðunnar til að bjarga henni frá þroti. Um er að ræða tveggja milljarða
framlag hið minnsta. Forsendur þess að ríki og borg tóku yfir Hörpu árið 2009 voru að ekki þyrftu að koma til aukin framlög eigenda.
Í þeirri áætlun sem lá til grundvallar ákvörðun ríkis og Reykjavíkurborgar
um að yfirtaka Hörpu snemma árs 2009 voru fasteignagjöld vegna hússins
áætluð 147 milljónir króna. Uppreiknuð á núverandi verðlag er sú upphæð
182 milljónir króna. Álögð fasteignagjöld, sem renna til Reykjavíkurborgar,
eru hins vegar 353 milljónir króna og mismunurinn því 155 milljónir
króna, eða fimm milljónum króna lægri en samanlagt beint árlegt framlag
ríkis og borgar til verkefnisins. Árlegt beint framlag borgarinnar er 73,6
milljónir króna og í greinargerðinni segir að ef hún samþykki tillöguna sé
„borgin þrátt fyrir það að leggja verkefninu til nettó um 81 mkr. minna nú
en upphaflega var gert ráð fyrir við yfirtökuna“. Alveg ljóst er þó að ríkið
greiðir meira en upphaflega var lagt upp með.
Stjórnendur Hörpu eru þeirrar skoðunar að fasteignagjöldin séu of há og
hafa stefnt málinu fyrir dóm. Ekki er búist við niðurstöðu í málinu fyrr en
á næsta ári.
Deilt um fasteignagjöld
UMDEILT Sú ákvörðun ríkis og borgar að taka yfir byggingu og eignarhald Hörpu
var mjög umdeild. Pétur H. Blöndal alþingismaður sagði við upphaf þingfundar á
Alþingi í gær, vegna frétta Fréttablaðsins af málefnum Hörpu, að „draumur fárra er
að breytast í martröð margra“. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Þórður Snær
Júlíusson
thordur@frettabladid.is
ASKÝRING | 10
HARPA Í REKSTRARVANDA