Fréttablaðið


Fréttablaðið - 13.02.2013, Qupperneq 10

Fréttablaðið - 13.02.2013, Qupperneq 10
13. febrúar 2013 MIÐVIKUDAGUR| FRÉTTIR | EcoFuel-tæknin nýtir bensín og metangas og sparar þannig allt að 46% af eldsneytis- kostnaði. Metanbílar eru umhverfisvænir og bera því engin aðflutningsgjöld. Þeir sem kaupa verksmiðjuframleiddan Volkswagen Passat metanbíl í febrúar fá frítt metangas í eitt ár*. Að auki fá eigendur Passat EcoFuel frítt í stæði í Reykjavík ásamt því að njóta hagstæðari kjara á lánum hjá fjármögnunarfyrirtækjum. Passat Variant kostar aðeins frá 4.690.000 kr. Passat Variant EcoFuel Comfortline Plus, 150 hestafla, beinskiptur. www.volkswagen.is Lækkaðu eldsneytiskostnaðinn um allt að 46% Metan 9.843 kr. Dísil 13.801 kr. Bensín 18.242 kr. **Miðast við eldsneytisverð eins og skráð er hjá Olís og Metan 31. janúar 2013. Eldsneytiskostnaður Volkswagen Passat á hverja 1.000 km** *Samkvæmt upplýsingum frá Umferðarstofu var meðalakstur fólksbíla 12.255 km árið 2011. Miðað við 6,6 m3 meðaleyðslu Passat EcoFuel er árlegur eldsneytiskostnaður því 120.000 kr. miðað við verð á metani 31. janúar 2013. Tilboð í febrúar. Frítt metan í eitt ár! Forsendurnar fyrir yfirtöku rík- issjóðs og Reykjavíkurborgar á Hörpu eru brostnar. Í gær sam- þykkti borgarráð tillögu um fjár- mögnun Hörpu sem felur í sér að um 800 milljóna króna eigenda- skuld verður breytt í nýtt hlutafé og 1.164 milljóna króna viðbótar- framlag til að fjármagna rekst- ur Hörpu út árið 2016. 640 millj- ónir króna af þeirri upphæð eru bein aukin framlög eigendanna. Í greinargerð með tillögunni segir að „ [v] alkosturinn við að fara ekki í ofan greindar aðgerðir er sá að fyr- irtækið Harpan komist fljótlega í þrot og starfsemin hætti með tals- verðum tilkostnaði fyrir eigendur“. Það voru Katrín Jakobsdóttir mennta- og menningarmálaráð- herra og Hanna Birna Kristjáns- dóttir, fyrrverandi borgarstjóri, sem samþykktu yfirtöku ríkis og borgar á Hörpu. Ekki aukin framlög Ríki og borg samþykktu að taka yfir og klára Hörpuna snemma árs 2009. Tekið var sambanka- lán hjá íslensku bönkunum til að fjármagna yfirtökuna. Í skriflegu svari Katrínar Jakobsdóttur við fyrirspurn þingmannsins Marðar Árnasonar um Hörpu, sem birt var í mars 2011, kom mjög skýrt fram að ekki ætti að setja meira fé en þar var umsamið í Hörpu. Þar sagði orðrétt að „forsendur fyrir yfirtöku verkefnisins voru þær að ekki þyrftu að koma til önnur framlög frá ríki og borg en gert var ráð fyrir í samningi Austur- hafnar-TR og Portusar frá 9. mars 2006“. Það framlag fylgir vísitölu og er áætlað 1.045 milljónir króna á þessu ári. Sama framlag þurfa eig- endur að greiða í 34 ár til viðbótar. Veittu brúarlán Í lok árs 2011 leituðu forsvarsmenn Hörpu-samstæðunnar til eigenda sinna eftir brúarláni, þar sem upp- haflegt sambankalán dugði ekki fyrir stofnkostnaði. Það stendur í dag í 794 milljónum króna. Lánið átti að endurgreiðast þegar Harpa gæfi út skuldabréfaflokk, og í síð- asta lagi í desember 2012. Lands- bankinn, sem er langstærsti lán- veitandinn í sambankaláninu, fékk umsjón með skuldabréfaútboðinu og sölutryggði það. Ekkert bólaði hins vegar á henni á síðasta ári. Þann 3. ágúst 2012 gáfu eig- endur Hörpu út yfirlýsingu þar sem fram kom að rekstrarafkoma Hörpu yrði neikvæð um 407 millj- ónir króna það árið. Nú, nokkrum mánuðum síðar, er ljóst að tekjur voru ofáætlaðar um 82 millj- ón króna og gjöld vanáætluð um tíu milljónir króna. Því varð tap Hörpu vegna síðasta árs 498 millj- ónir króna, eða rúmum fimmtungi meira en reiknað var með um mitt árið. Þetta tap var fjármagnað með yfirdrætti. Útgáfan loks kláruð Í greinargerð sem lögð var fyrir borgarráð í síðustu viku kemur fram að nú hafi endurfjár mögnun loks verið „tryggð með samkomu- lagi við Landsbankann sem mun tryggja fulla fjármögnun stofn- kostnaðar með sölu skuldabréfa á hagkvæmum kjörum. Um leið verð- ur tryggð heildarfjár mögnun verk- efnisins[…] Miðað er við að frá þessari fjármögnun verði gengið 14. febrúar“. Það er á morgun. Af þeim 18,5 milljörðum króna sem útgáfan á að skila munu 16,5 milljarðar króna fara í að endur- fjármagna sambankalán vegna byggingar hússins, 500 milljónir króna fara í að greiða upp skamm- tímalán sem veitt var í desember 2012 til að klára uppgjör við verk taka, 525 milljónir króna fara í að greiða yfirdrátt vegna fjármögn- unar á taprekstri síðasta árs og 272 milljónir króna eiga að fara í að fjármagna „tekjuskapandi fram- kvæmdir“ í húsinu á árinu 2013. Þá verða 311 milljónir króna teknar að láni til að fjármagna áætlaðan halla fram til ársins 2016 sem framlag ríkis og borgar nær ekki að brúa. Forsendur yfirtöku Hörpu brostnar Eigendur Hörpu ætla að gefa eftir skuldir og auka framlög til samstæðunnar til að bjarga henni frá þroti. Um er að ræða tveggja milljarða framlag hið minnsta. Forsendur þess að ríki og borg tóku yfir Hörpu árið 2009 voru að ekki þyrftu að koma til aukin framlög eigenda. Í þeirri áætlun sem lá til grundvallar ákvörðun ríkis og Reykjavíkurborgar um að yfirtaka Hörpu snemma árs 2009 voru fasteignagjöld vegna hússins áætluð 147 milljónir króna. Uppreiknuð á núverandi verðlag er sú upphæð 182 milljónir króna. Álögð fasteignagjöld, sem renna til Reykjavíkurborgar, eru hins vegar 353 milljónir króna og mismunurinn því 155 milljónir króna, eða fimm milljónum króna lægri en samanlagt beint árlegt framlag ríkis og borgar til verkefnisins. Árlegt beint framlag borgarinnar er 73,6 milljónir króna og í greinargerðinni segir að ef hún samþykki tillöguna sé „borgin þrátt fyrir það að leggja verkefninu til nettó um 81 mkr. minna nú en upphaflega var gert ráð fyrir við yfirtökuna“. Alveg ljóst er þó að ríkið greiðir meira en upphaflega var lagt upp með. Stjórnendur Hörpu eru þeirrar skoðunar að fasteignagjöldin séu of há og hafa stefnt málinu fyrir dóm. Ekki er búist við niðurstöðu í málinu fyrr en á næsta ári. Deilt um fasteignagjöld UMDEILT Sú ákvörðun ríkis og borgar að taka yfir byggingu og eignarhald Hörpu var mjög umdeild. Pétur H. Blöndal alþingismaður sagði við upphaf þingfundar á Alþingi í gær, vegna frétta Fréttablaðsins af málefnum Hörpu, að „draumur fárra er að breytast í martröð margra“. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI Þórður Snær Júlíusson thordur@frettabladid.is ASKÝRING | 10 HARPA Í REKSTRARVANDA

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.