Fréttablaðið


Fréttablaðið - 13.02.2013, Qupperneq 11

Fréttablaðið - 13.02.2013, Qupperneq 11
MIÐVIKUDAGUR 13. febrúar 2013 Rekstrarvörur - vinna með þér ÖSKUDAGUR Í ARION BANKA Í tilefni af öskudeginum gefum við krökkum sem koma í útibú bankans, sérstakt öskudags- Andrésblað. Blaðið er fullt af skemmtilegum myndasögum og er afhent á meðan birgðir endast. Góða skemmtun! © DISN EY DANMÖRK Stjórnvöld í Danmörku vinna nú að því að jafna rétt for- eldra af sama kyni. Eignist tvær konur saman barn undir núverandi fyrirkomulagi, til dæmis með tækni frjóvgun, verður sú sem ekki gengur með barnið að ættleiða það eftir fæðingu og ef sæðisgjafi er þekktur verða að líða tvö og hálft ár hið minnsta áður en hægt er að sækja um ættleiðingu. Gangi áætlanir hins vegar eftir munu mæðurnar sjálfkrafa hljóta sömu stöðu gagnvart barninu og sé sæðisgjafi þekktur er hægt að útkljá það mál með skrif- legu samkomulagi fyrir fæðingu barnsins. - þj Stjórnvöld í Danmörku: Jafna réttindi tveggja mæðra JAFN RÉTTUR Dönsk stjórnvöld hyggj- ast jafna rétt foreldra af sama kyni. NORDICPHOTOS/AFP LÖGREGLUMÁL Ölóður karlmaður á fimmtugsaldri réðst, vopnaður hnífi, að dyravörðum á skemmti- stað í austurbæ Kópavogs á fyrsta tímanum í fyrrinótt. Dyraverðirnir náðu að yfir- buga hann og sakaði þá ekki en í átökunum skarst árásarmaðurinn í andliti og viðbeinsbrotnaði. Lögregla flutti hann á slysa- deild Landspítalans, þar sem gert var að sárum hans, og þaðan í fangageymslu, þar sem hann sefur úr sér öl vímuna. Hann var yfirheyrður í gær. Ölóður karlmaður: Réðst á dyra- verði með hníf DANMÖRK Innflytjendur í Dan- mörku eru almennt veikari en aðrir íbúar. Þeir sem eru félags- lega illa settir fá ekki þá þjónustu sem þeir þurfa. Í frétt á vef Kristilega dag- blaðsins segir að 670 inn- flytjendur hafi á undanförnum fjórum árum verið sendir frá öðrum læknum til sérstakrar læknamóttöku fyrir útlendinga í Óðinsvéum. Hjá fjórðungi þeirra höfðu læknar ekki fundið krabba- mein, asma eða liðagigt. Læknum hafði einnig yfirsést að viðkomandi sjúklingar glímdu við félagslega og andlega erfið- leika. Tungumálaörðugleikar komu einnig við sögu. - ibs Yfirlæknir í Danmörku: Útlendingar fá verri meðferð

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.