Fréttablaðið - 13.02.2013, Page 18

Fréttablaðið - 13.02.2013, Page 18
13. febrúar 2013 MIÐVIKUDAGUR| SKOÐUN | 18 Það hafa verið viðburða- ríkir dagar að undan- förnu, svo sannarlega. Alþingi kom saman um miðjan janúar og hóf störf með endanlegri afgreiðslu Rammaáætlunar; en margt annað hefur orðið tíðinda. Góðu fréttirnar eru þar yfirgnæfandi að mínu mati og árið 2013 fer í heild vel af stað á Íslandi þótt blikur sé víða á lofti í helstu við- skiptalöndum okkar, þar af leiðandi einnig hjá okkur, því við erum ekki eyland heldur hluti af samþættum heimi. Þar til viðbótar er við okkar heimatilbúna og sjálfskapaða vanda að etja sem hrunið olli. Rammaáætlun og Icesave Alþingi afgreiddi í janúar þrjú merk mál sem öll marka þáttaskil hvert á sinn hátt. Ber þar auðvit- að hæst afgreiðslu Rammaáætl- unar sem markar mikil tímamót í umhverfismálum á Íslandi. Við Vinstri græn sáum ástæðu til að halda sérstaka uppskeruhátíð af því tilefni. Hitt hefur fengið minni athygli að Alþingi afgreiddi tvö önnur mikilvæg mannréttinda- og umbótamál þar sem eru ný lög um jafnrétti milli trúar- og lífsskoð- unarfélaga og hins vegar lög um fullgildingu Barnasáttmála Sam- einuðu þjóðanna. Mánudaginn 28. janúar kom svo niðurstaða EFTA-dómstólsins í Ice- save-málinu og var óskaplegur létt- ir. Ekki er víst að við gerum okkur að fullu grein fyrir hvílík gæfa var með okkur að málið féll okkur í vil og það með afdráttarlausum hætti. Nóg er þetta búið að kosta okkur samt í töfum, áföllnum bein- um og óbeinum kostnaði sem aldrei verður reikn- aður út og margvíslegum innri sem ytri erfiðleik- um. Dómur sem hefði fall- ið Íslandi í óhag hefði ekki aðeins þýtt áframhaldandi óvissu fjárhagslega held- ur hefðu áhrifin á orðspor okkar og aðstæður í fram- haldinu getað orðið býsna erfið viðureignar. Niður- staðan er fengin og yfir henni hljótum við öll að geta glaðst, fölskvalaust. Ferðamannastaðir & Marmeti Fyrsta úthlutun úr framkvæmda- sjóði ferðamála af þremur á árinu fór fram fyrir skemmstu og var mikið fagnaðarefni. Alls fengu 44 verkefni vítt og breitt um landið samtals um 150 milljónir króna en yfir 500 milljónir eru til ráðstöf- unar í ár á grundvelli fjárfestinga- áætlunar ríkisstjórnarinnar. Þar til viðbótar renna svo stórauknir fjármunir til uppbyggingar í þjóð- görðum og á friðlýstum svæðum gegnum umhverfisráðuneytið eða 250 milljónir. Auk þess hefst uppbygging Kirkjubæjarstofu og þannig mætti áfram telja. Á dögunum var undirritaður fjárfestingasamningur við Mar- meti, hátæknifiskvinnslu í Sand- gerði sem byggir á reynslumik- illi útgerð Suðurnesjamannsins Arnar Erlingssonar. Rammalög um stuðning við nýfjárfestingar, sem sett voru í tíð þessarar rík- isstjórnar, eru mikilvæg eins og dæmið um Marmeti sýnir. Lögin bjóða upp á stuðning við innlend- ar sem erlendar nýfjárfestingar ef þær uppfylla tiltekin skilyrði. Það eru því ekki lengur einungis erlendar stóriðjufjárfestingar sem eiga kost á ívilnunum eins og áður var raunin. Göng lykilmannvirki Í Hofi á Akureyri var nýlega und- irritaður samningur við verk- taka um byggingu Vaðlaheiðar- ganga. Þetta var einhver stærsti og ánægjulegasti viðburður á löngum þingmennskuferli mínum fyrir Norðurland eystra og nú hin seinni ár fyrir Norðausturkjör- dæmi. Auðvitað er þetta ekki síður gleðilegt fyrir okkur öll sem þjóð sem saman eigum samgöngukerf- ið. Vaðlaheiðargöng eru tímamóta- framkvæmd fyrir Norðurland og gera Þingeyjarsýslur og Eyjafjarð- arsvæðið meira og minna að einu atvinnusvæði. Göngin verða lykil- mannvirki í samgöngukerfinu í heild að mínu mati. Þessa dagana eru einnig útboðsgögn að fara í hendur verktaka sem valdir voru í forvali til að bjóða í Norðfjarðar- göng. Þar er á ferðinni stórfram- kvæmd af svipaðri stærð og Vaðla- heiðargöng sem munu gjörbreyta til hins betra samgöngum til Norð- fjarðar. Kvótaaukning Við Íslendingar höfum átt í deilu við ESB og Noreg um makrílinn. Að mínu mati hafa ESB og Nor- egur sýnt of mikinn þvergirðings- hátt hvað varðar að taka með sann- gjörnum hætti tillit til gjörbreytts göngumynsturs makríls á seinni árum. Mikil vinna hefur átt sér stað að undanförnu við að koma málstað Íslands á framfæri. Þessi vinna hefur gengið ágætlega og málstaður okkar hefur birst víða í erlendum fjölmiðlum. Ákvörðun okkar um 15% samdrátt í makríl- veiði íslenskra skipa var eðlileg í ljósi þess hvernig mál hafa þróast að undanförnu. Sem betur fer var hægt að bæta verulega við loðnukvótann í vik- unni og stefnir nú í mjög góða loðnuvertíð þótt aflinn verði ekki eins mikill að magni til og mest hefur orðið. Verð á loðnuafurðum er hátt og því er kvótaaukningin gríðarlega mikilvæg fyrir þjóðar- búskapinn. Lánshæfismat styrkist Nú í lok ritunar þessa pistils ber- ast þær góðu fréttir að lánshæf- ismatsfyrirtækin séu loksins að ranka við sér og átta sig á því að matið á Íslandi er langt undir því sem öflugir innviðir, auðlindir og framtíðarhorfur landsins gefa til- efni til. Hinn alþjóðlegi fjármála- markaður var búinn að átta sig á þessu löngu fyrr og var tilbúinn að lána Íslandi einn milljarð Banda- ríkjadala strax í júnímánuði 2011 og aftur 2012. Ákvörðun Moody‘s um að breyta lánshæfismati Íslands úr neikvæðum horfum í stöðugar með jákvæðri umsögn, m.a. vegna árangurs sem náðst hafi í ríkis- og efnahagsmálum hér á landi til viðbótar við niður- stöðu í Icesave-málinu, er síðbúin viðurkenning matsfyrirtækisins á því að Ísland er að rísa úr ösku- stó hrunsins. Lánshæfismatsfyrir- tækin hafa að mati undirritaðs stórlega mislesið í aðstæður á Íslandi frá því að rykið fór aðeins að setjast eftir hrunið 2008. Þeim hefur yfirsést að undirstöðurnar á Íslandi eru til muna sterkari en víða annars staðar. Vegna þessa seinagangs láns- hæfisfyrirtækjanna mætti spyrja; hverjum á að lána peninga? Þeim sem enn hafa lánstraust byggt á fornri frægð og baklægu mati á efnahagslegum styrk, eða landi sem á bjartari horfur fyrir stafni en velflest önnur vestræn og þróuð lönd? Styrkur Íslands liggur í mörgum þáttum; sterkum innvið- um, við erum ung og vel menntuð þjóð, við eigum ríkulegan auð- lindagrunn til að byggja á til fram- tíðar, fiskimið, land, orku, vatn og mikla matvælaframleiðslumögu- leika. Ísland hefur margt af því sem mest mun vanta í heiminum á komandi áratugum. Meira að segja eitt best fjármagnaða lífeyriskerfi heimsins (OECD) byggt á sjóðs- myndun er hér, með hreinar eignir til greiðslu lífeyris upp á um 130% af VLF (vergri landsframleiðslu). Taki menn þessar tvær staðreynd- ir saman, ung þjóð og vel fjár- magnað lífeyriskerfi, getum við borið höfuðið hátt í samanburði við aðrar þjóðir. Meginniðurstaðan er að Íslandi er borgið, við erum að komast fyrir vind eftir ótrúlegan ólgusjó af mannavöldum. Spurningin er aðeins hverjum við treystum fyrir framhaldinu, þeim sem stýrðu á strandstað eða hinum sem stýrðu út úr brimgarðinum aftur. Hve langt til baka man þjóðin? Viðburðaríkir dagar! EFNAHAGSMÁL Steingrímur J. Sigfússon atvinnuvega- og nýsköpunar- ráðherra ➜ Vaðlaheiðargöng eru tímamótaframkvæmd fyrir Norðurland og gera Þing- eyjarsýslur og Eyjafjarðar- svæðið meira og minna að einu atvinnusvæði. Göngin verða lykilmannvirki í sam- göngukerfi nu í heild að mínu mati. ASKJA · Krókhálsi 11 · 110 Reykjavík · Sími 590 2100 · askja.is Viðurkenndur sölu- og þjónustuaðili KIA á Íslandi. Þú finnur „Kia Motors Ísland“ á Facebook

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.