Fréttablaðið - 13.02.2013, Qupperneq 18
13. febrúar 2013 MIÐVIKUDAGUR| SKOÐUN | 18
Það hafa verið viðburða-
ríkir dagar að undan-
förnu, svo sannarlega.
Alþingi kom saman um
miðjan janúar og hóf störf
með endanlegri afgreiðslu
Rammaáætlunar; en margt
annað hefur orðið tíðinda.
Góðu fréttirnar eru þar
yfirgnæfandi að mínu mati
og árið 2013 fer í heild vel
af stað á Íslandi þótt blikur
sé víða á lofti í helstu við-
skiptalöndum okkar, þar af
leiðandi einnig hjá okkur,
því við erum ekki eyland heldur
hluti af samþættum heimi. Þar til
viðbótar er við okkar heimatilbúna
og sjálfskapaða vanda að etja sem
hrunið olli.
Rammaáætlun og Icesave
Alþingi afgreiddi í janúar þrjú
merk mál sem öll marka þáttaskil
hvert á sinn hátt. Ber þar auðvit-
að hæst afgreiðslu Rammaáætl-
unar sem markar mikil tímamót
í umhverfismálum á Íslandi. Við
Vinstri græn sáum ástæðu til að
halda sérstaka uppskeruhátíð af
því tilefni. Hitt hefur fengið minni
athygli að Alþingi afgreiddi tvö
önnur mikilvæg mannréttinda- og
umbótamál þar sem eru ný lög um
jafnrétti milli trúar- og lífsskoð-
unarfélaga og hins vegar lög um
fullgildingu Barnasáttmála Sam-
einuðu þjóðanna.
Mánudaginn 28. janúar kom svo
niðurstaða EFTA-dómstólsins í Ice-
save-málinu og var óskaplegur létt-
ir. Ekki er víst að við gerum okkur
að fullu grein fyrir hvílík gæfa
var með okkur að málið féll okkur
í vil og það með afdráttarlausum
hætti. Nóg er þetta búið að kosta
okkur samt í töfum, áföllnum bein-
um og óbeinum kostnaði
sem aldrei verður reikn-
aður út og margvíslegum
innri sem ytri erfiðleik-
um. Dómur sem hefði fall-
ið Íslandi í óhag hefði ekki
aðeins þýtt áframhaldandi
óvissu fjárhagslega held-
ur hefðu áhrifin á orðspor
okkar og aðstæður í fram-
haldinu getað orðið býsna
erfið viðureignar. Niður-
staðan er fengin og yfir
henni hljótum við öll að
geta glaðst, fölskvalaust.
Ferðamannastaðir & Marmeti
Fyrsta úthlutun úr framkvæmda-
sjóði ferðamála af þremur á árinu
fór fram fyrir skemmstu og var
mikið fagnaðarefni. Alls fengu 44
verkefni vítt og breitt um landið
samtals um 150 milljónir króna en
yfir 500 milljónir eru til ráðstöf-
unar í ár á grundvelli fjárfestinga-
áætlunar ríkisstjórnarinnar. Þar
til viðbótar renna svo stórauknir
fjármunir til uppbyggingar í þjóð-
görðum og á friðlýstum svæðum
gegnum umhverfisráðuneytið
eða 250 milljónir. Auk þess hefst
uppbygging Kirkjubæjarstofu og
þannig mætti áfram telja.
Á dögunum var undirritaður
fjárfestingasamningur við Mar-
meti, hátæknifiskvinnslu í Sand-
gerði sem byggir á reynslumik-
illi útgerð Suðurnesjamannsins
Arnar Erlingssonar. Rammalög
um stuðning við nýfjárfestingar,
sem sett voru í tíð þessarar rík-
isstjórnar, eru mikilvæg eins og
dæmið um Marmeti sýnir. Lögin
bjóða upp á stuðning við innlend-
ar sem erlendar nýfjárfestingar
ef þær uppfylla tiltekin skilyrði.
Það eru því ekki lengur einungis
erlendar stóriðjufjárfestingar sem
eiga kost á ívilnunum eins og áður
var raunin.
Göng lykilmannvirki
Í Hofi á Akureyri var nýlega und-
irritaður samningur við verk-
taka um byggingu Vaðlaheiðar-
ganga. Þetta var einhver stærsti
og ánægjulegasti viðburður á
löngum þingmennskuferli mínum
fyrir Norðurland eystra og nú hin
seinni ár fyrir Norðausturkjör-
dæmi. Auðvitað er þetta ekki síður
gleðilegt fyrir okkur öll sem þjóð
sem saman eigum samgöngukerf-
ið. Vaðlaheiðargöng eru tímamóta-
framkvæmd fyrir Norðurland og
gera Þingeyjarsýslur og Eyjafjarð-
arsvæðið meira og minna að einu
atvinnusvæði. Göngin verða lykil-
mannvirki í samgöngukerfinu í
heild að mínu mati. Þessa dagana
eru einnig útboðsgögn að fara í
hendur verktaka sem valdir voru
í forvali til að bjóða í Norðfjarðar-
göng. Þar er á ferðinni stórfram-
kvæmd af svipaðri stærð og Vaðla-
heiðargöng sem munu gjörbreyta
til hins betra samgöngum til Norð-
fjarðar.
Kvótaaukning
Við Íslendingar höfum átt í deilu
við ESB og Noreg um makrílinn.
Að mínu mati hafa ESB og Nor-
egur sýnt of mikinn þvergirðings-
hátt hvað varðar að taka með sann-
gjörnum hætti tillit til gjörbreytts
göngumynsturs makríls á seinni
árum. Mikil vinna hefur átt sér
stað að undanförnu við að koma
málstað Íslands á framfæri. Þessi
vinna hefur gengið ágætlega og
málstaður okkar hefur birst víða
í erlendum fjölmiðlum. Ákvörðun
okkar um 15% samdrátt í makríl-
veiði íslenskra skipa var eðlileg í
ljósi þess hvernig mál hafa þróast
að undanförnu.
Sem betur fer var hægt að bæta
verulega við loðnukvótann í vik-
unni og stefnir nú í mjög góða
loðnuvertíð þótt aflinn verði ekki
eins mikill að magni til og mest
hefur orðið. Verð á loðnuafurðum
er hátt og því er kvótaaukningin
gríðarlega mikilvæg fyrir þjóðar-
búskapinn.
Lánshæfismat styrkist
Nú í lok ritunar þessa pistils ber-
ast þær góðu fréttir að lánshæf-
ismatsfyrirtækin séu loksins að
ranka við sér og átta sig á því að
matið á Íslandi er langt undir því
sem öflugir innviðir, auðlindir og
framtíðarhorfur landsins gefa til-
efni til. Hinn alþjóðlegi fjármála-
markaður var búinn að átta sig á
þessu löngu fyrr og var tilbúinn að
lána Íslandi einn milljarð Banda-
ríkjadala strax í júnímánuði 2011
og aftur 2012. Ákvörðun Moody‘s
um að breyta lánshæfismati
Íslands úr neikvæðum horfum í
stöðugar með jákvæðri umsögn,
m.a. vegna árangurs sem náðst
hafi í ríkis- og efnahagsmálum
hér á landi til viðbótar við niður-
stöðu í Icesave-málinu, er síðbúin
viðurkenning matsfyrirtækisins á
því að Ísland er að rísa úr ösku-
stó hrunsins. Lánshæfismatsfyrir-
tækin hafa að mati undirritaðs
stórlega mislesið í aðstæður á
Íslandi frá því að rykið fór aðeins
að setjast eftir hrunið 2008. Þeim
hefur yfirsést að undirstöðurnar
á Íslandi eru til muna sterkari en
víða annars staðar.
Vegna þessa seinagangs láns-
hæfisfyrirtækjanna mætti spyrja;
hverjum á að lána peninga? Þeim
sem enn hafa lánstraust byggt á
fornri frægð og baklægu mati á
efnahagslegum styrk, eða landi
sem á bjartari horfur fyrir stafni
en velflest önnur vestræn og þróuð
lönd? Styrkur Íslands liggur í
mörgum þáttum; sterkum innvið-
um, við erum ung og vel menntuð
þjóð, við eigum ríkulegan auð-
lindagrunn til að byggja á til fram-
tíðar, fiskimið, land, orku, vatn og
mikla matvælaframleiðslumögu-
leika. Ísland hefur margt af því
sem mest mun vanta í heiminum á
komandi áratugum. Meira að segja
eitt best fjármagnaða lífeyriskerfi
heimsins (OECD) byggt á sjóðs-
myndun er hér, með hreinar eignir
til greiðslu lífeyris upp á um 130%
af VLF (vergri landsframleiðslu).
Taki menn þessar tvær staðreynd-
ir saman, ung þjóð og vel fjár-
magnað lífeyriskerfi, getum við
borið höfuðið hátt í samanburði
við aðrar þjóðir.
Meginniðurstaðan er að Íslandi
er borgið, við erum að komast
fyrir vind eftir ótrúlegan ólgusjó
af mannavöldum. Spurningin er
aðeins hverjum við treystum fyrir
framhaldinu, þeim sem stýrðu á
strandstað eða hinum sem stýrðu
út úr brimgarðinum aftur. Hve
langt til baka man þjóðin?
Viðburðaríkir dagar!
EFNAHAGSMÁL
Steingrímur J.
Sigfússon
atvinnuvega- og
nýsköpunar-
ráðherra
➜ Vaðlaheiðargöng eru
tímamótaframkvæmd fyrir
Norðurland og gera Þing-
eyjarsýslur og Eyjafjarðar-
svæðið meira og minna að
einu atvinnusvæði. Göngin
verða lykilmannvirki í sam-
göngukerfi nu í heild að
mínu mati.
ASKJA · Krókhálsi 11 · 110 Reykjavík · Sími 590 2100 · askja.is
Viðurkenndur sölu- og þjónustuaðili KIA á Íslandi.
Þú finnur „Kia Motors Ísland“
á Facebook