Fréttablaðið - 13.02.2013, Blaðsíða 22
FÓLK|FERÐIR
Lynx Space Academy stendur þess-ar vikurnar fyrir samkeppni víða um heim þar sem sigurvegarinn
fær að launum ferð út í geim. Íslend-
ingar búsettir hérlendis geta ekki tekið
þátt en að minnsta kosti tveir Íslend-
ingar búsettir erlendis hafa skráð sig til
leiks. Annar þeirra er Nanna Gunnars-
dóttir sem búsett er í Englandi. Þar er
fyrsta umferð keppninnar í fullum gangi
og leitar hún eftir stuðningi almennings
svo hún komist áfram í aðra umferð.
„Ég elska að ferðast og mig hefur alltaf
langað út í geim, helst til tunglsins eða
annarrar plánetu. Ég get þó alveg sætt
mig við að fara á sporbraut um jörðina
í staðinn.“
VINSÆLDAKOSNING
Fyrsta umferð keppninnar er vinsælda-
keppni. Þar safna þátttakendur at-
kvæðum til að komast áfram í aðra um-
ferð en þeir 200 keppendur sem fá flest
atkvæði halda áfram í svokallaða National
Challenge sem fer fram á leynilegum
stað í London. Þar þurfa þátt-
takendur að takast á við
erfiðar líkamlegar og
andlegar áskoranir.
Fjórir efstu kepp-
endur halda
síðan áfram í
næstu umferð,
Global Space
Camp, sem
haldin verður
í Orlando
í Banda-
ríkjunum.
Þar munu
keppendur
frá fjölmörgum
löndum taka þátt
í þremur þjálfunar-
búðum en dómnefnd
mun að lokum velja
einn geimfara sem sendur
verður 103 kílómetra út í geim-
inn með geimferðaþjónustunni Spacexc.
HÖRÐ KEPPNI FRAM UNDAN
„Ég átta mig á því að þetta verður mjög
hörð keppni ef ég kemst áfram í aðra
umferð. Ég býst við
að Lynx stefni á að
senda karlmann
að lokum enda
keppnin
þannig
uppsett.
Slagorð
keppn-
innar er
„Leave
a Man,
Come
Back a
Hero“,
en ég er
tilbúin til að
leggja mikið
á mig til að
komast áfram.“
Í gær var Nanna nr.
208 á listanum með 476
atkvæði. „Ætli ég sé ekki örugg áfram í
aðra umferð ef ég fæ yfir 1.500 atkvæði.
Svo tekur alvaran við. Því hvet ég alla
Íslendinga til að kjósa mig áfram svo
fyrsta íslenska konan komist út í geim.“
FÓLK ER KYNNINGARBLAÐ sem býður aug-
lýsendum að kynna vörur og þjónustu í formi
viðtala og umfjallana ásamt hefðbundnum auglýs-
ingum. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega.
Útgefandi: 365 miðlar | Ábyrgðarmaður: Jón Laufdal
Sölumenn: Jónína María Hafsteinsdóttir, jmh@365.is, s. 512 5473
Sverrir Birgir Sverrisson, sverrirbs@365.is, s. 512 5432
Elsa Jensdóttir, elsaj@365.is, s. 512-5427 | Hönnun: Silja Ástþórsdóttir
HÖRÐ SAMKEPPNI
Nanna Gunnarsdóttir
gæti orðið fyrsta ís-
lenska konan til að
komast út í geim.
MYND/ÚR EINKASAFNI
KJÓSTU!
Hægt er að kjósa
Nönnu með því að
smella á „Vote“ á
slóðinni:
https://www.
lynxapollo.com/en_
GB/30009/nanna-
gunnarsdottir
FERÐALAG UM
HIMINGEIMINN
GEIMFARI Nanna Gunnarsdóttir tekur þátt í keppni um að komast út í geim.
Almenningur getur kosið hana áfram í aðra umferð keppninnar.
10.000 dúnsængur
Settu nafnið þitt í pott í
verslun og þú getur unnið
sæng fyrir alla fjölskylduna
Við fögnum 10.000 ánægðum viðskiptavinum og bjóðum
fleiri í hópinn með risatilboði á öllum dúnsængum.