Fréttablaðið - 13.02.2013, Page 32
13. febrúar 2013 MIÐVIKUDAGUR| TÍMAMÓT | 24
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, fósturfaðir og afi,
HELGI MARINÓ FRIÐFINNSSON
Snægili 18, áður til heimilis að
Grundargerði 8, Akureyri,
lést á heimili sínu 5. febrúar. Útför hans fer
fram frá frá Akureyrarkirkju föstudaginn 15.
febrúar kl. 13.30.
Blóm vinsamlegast afþökkuð, en þeim sem vilja minnast hans er
bent á Heimahlynningu á Akureyri.
Guðrún Jónsdóttir
Ragnheiður Helgadóttir Ari Þór Jónsson
Sigurður Helgason Aðalheiður Bragadóttir
Agnes Sverrisdóttir Lars Potrykus
Hafdís Gylfadóttir
Eva María, Una, Birkir Þór og Gígja
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
RAGNHEIÐUR STEFÁNSDÓTTIR
Birkigrund 10, Kópavogi,
áður Hringbraut 90, Reykjavík,
er látin. Jarðarförin hefur farið fram í kyrrþey
að ósk hinnar látnu.
Auður Guðmundsdóttir Magnús Axelsson
Ævar Guðmundsson Laufey Barðadóttir
Þuríður Ævarsdóttir
Ragnheiður Ævarsdóttir Gísli Baldvinsson
Þórdís Ævarsdóttir Bjarki Stefánsson
Ævar Gunnar Ævarsson Helga G. Óskarsdóttir
Guðrún Vala Benediktsdóttir
Hildur Karen Benediktsdóttir
Aðalsteinn Ragnar Benediktsson Elín Þórhallsdóttir
Magnús Anton Magnúsarson
og barnabarnabörn.
Heittelskaður eiginmaður minn og
sálufélagi, faðir, stjúpi, tengdafaðir,
sonur og bróðir,
BJÖRGVIN INGIMARSSON
sálfræðingur og kennari,
lést laugardaginn 9. febrúar á líknardeild
Landspítalans í Kópavogi. Hann verður
jarðsunginn frá Dómkirkjunni í Reykjavík
þriðjudaginn 19. febrúar kl. 15.00.
Vilborg Davíðsdóttir
Sigrún Ugla Björgvinsdóttir
Matthías Már Valdimarsson
Katrín Vilborgardóttir Gunnarsdóttir Aðalsteinn Már Ólafsson
Sigrún Guðmundsdóttir
Jónas Kr. Ingimarsson
Ástkær móðir okkar,
ÓLAFÍA G. ALFONSDÓTTIR
frá Hnífsdal,
Hæðargarði 29, Reykjavík,
lést 6. febrúar. Útförin fer fram
frá Bústaðakirkju föstudaginn
15. febrúar kl. 13.00.
Gréta Jóakimsdóttir Odd T. Marvel
Helga S. Jóakimsdóttir Sigurður B. Þórðarson
Gunnar Jóakimsson Sólveig Þórhallsdóttir
Kristján G. Jóakimsson Sigrún Sigvaldadóttir
Aðalbjörg Jóakimsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
KRISTÍN GUÐBJÖRNSDÓTTIR
Hrísateig 14,
lést þriðjudaginn 5. febrúar. Útför hennar
fer fram frá Laugarneskirkju föstudaginn
15. febrúar kl. 15.00.
Sigrún Sigurgeirsdóttir Jón G. Sigurðsson
Sólveig Sigurgeirsdóttir Helgi Þór Jónsson
Þuríður Erla Sigurgeirsdóttir Ágúst Eiríksson
Ingunn Sigurgeirsdóttir
Svanhvít Sigurgeirsdóttir
Kristín Sigurgeirsdóttir Sigfús A. Gunnarsson
Kristinn Sigurgeirsson Sigfríður Ragna Bragadóttir
Guðmundur Sigurgeirsson
ömmubörn og langömmubörn.
Eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir og afi,
GUÐMUNDUR HALLGRÍMSSON
lyfjafræðingur,
lést mánudaginn 11. febrúar á líknardeild
Landspítalans. Útförin fer fram frá Hall gríms-
kirkju mánudaginn 18. febrúar kl. 13.00.
Þeim sem vildu minnast hans er bent
á Hjálparstarf kirkjunnar.
Anna Guðrún Hugadóttir
Vera Guðmundsdóttir Þórarinn Blöndal
Daði Guðmundsson Dianne Y. Guðmundsson
Hugi Guðmundsson Hanna Loftsdóttir
Alma Guðmundsdóttir
Eva Magnúsdóttir Tinna Magnúsdóttir
Hildur Blöndal Unnar Blöndal
Jóhanna Hugadóttir Una Hugadóttir
TÍMAMÓT
MERKISATBURÐIR
1633 Galileo Galilei kom fyrir Rannsóknarréttinn í Róm.
1668 Spánn viðurkenndi sjálfstæði Portúgals.
1693 Eldgos hófst í Heklu.
1883 Þýska tónskáldið Richard Wagner lést, þá tæplega sjötug-
ur að aldri.
1960 Frakkar gerðu tilraunir með sína fyrstu kjarnorkusprengju.
1971 Víetnamstríðið: Suður-Víetnamar réðust inn í Laos með
hjálp Bandaríkjamanna.
2001 Jarðskjálfti sem mældist 6,6 stig á Richters-kvarða reið
yfir El Salvador. Að minnsta kosti 400 manns létu lífið. Tvíburasysturnar Jófríður og Ást-
hildur Ákadætur munu segja frá
ævintýralegum tónleikaferðum
hljómsveitar sinnar til Japans og
Kína á stefnumótakaffi febrúarmán-
aðar. Stefnumótakaffið er hluti af
viðburðaröð sem á sér stað í Menn-
ingarsetrinu Gerðubergi á miðviku-
dögum. Þá eiga gestir stefnumót við
fólk sem hefur áhugaverða sögu að
segja, gjarnan af framandi menning-
arsvæðum.
Jófríður og Ásthildur eru fæddar árið
1994 og stunda báðar tónlistarnám
við Tónlistarskóla Reykjavíkur. Þær
stofnuðu hljómsveitina Pascal Pinon
árið 2009, þá aðeins fjórtán ára gaml-
ar. Vorið 2010 gerðu þær samning við
þýska útgáfufyrirtækið Morr Music
um endurútgáfu fyrstu plötu þeirra
og í kjölfarið héldu þær fjölda tónleika
víðs vegar um heiminn, þar á meðal í
Þýskalandi, Ítalíu, Kína og Japan.
„Við fórum til Kína í október árið
2011 og til Japans um páskana í fyrra
og vorum í tæpar tvær vikur í hvoru
landi. Við spiluðum á sex tónleikum í
Kína í smærri borgum þar sem minna
er um ferðamenn. Það var mjög sér-
stakt fyrir okkur að vera þar, það tal-
aði eiginlega enginn ensku og fólk
starði á okkur og tók myndir,“ segir
Jófríður um ferðalagið til Kína. Faðir
stúlknanna ferðaðist með þeim í bæði
skiptin og hafði einnig gaman af því
að heimsækja svo framandi lönd.
Jófríður segist hafa heillast mikið
af Kína, þar iði göturnar af mann-
lífi og látum. „Kína var skemmtilegt,
þar ríkti mikið kaos og fólk virtist
lítið spá í hlutunum. Japan var hrein-
legra og þar var allt mjög skipulagt
og vandað. Löndin eru gríðarlega ólík
og menningin mjög ólík okkar.“
Á stefnumótinu í Gerðubergi munu
systurnar sýna myndir úr ferðalögun-
um, bjóða upp á kínverskt nammi og
taka nokkur lög af nýrri plötu sinni.
Í næstu viku heldur Pascal Pinon í
tveggja vikna tónleikaferðalag um
Evrópu og kemur sveitin meðal annars
fram í Þýskalandi, Austurríki, Ítalíu og
Ungverjalandi. Jófríður kveðst mjög
spennt fyrir Ungverjalandsheimsókn-
inni. „Ég hef aldrei komið þangað áður.
Við verðum í burtu í tvær vikur, við
getum ekki verið lengur vegna skól-
ans,“ segir hún að lokum.
Stefnumótakaffið hefst klukkan 20 og
er aðgangur ókeypis. sara@frettabladid.is
Segja frá ferðalögum
um Kína og Japan
Systurnar Jófríður og Ásthildur Ákadætur halda erindi í Gerðubergi í kvöld. Þær munu
segja frá tónleikaferðalögum sínum til Kína og Japan og taka nokkur lög.
SEGJA FRÁ ASÍUHEIMSÓKN Jófríður og Ásthildur Ákadætur eru meðlimir í hljómsveitinni
Pascal Pinon. Þær segja frá heimsókn sinni til Kína og Japan á stefnumótakaffi í Gerðubergi í
kvöld. FRÉTTABLAÐIÐ/HAG
Þennan dag árið 1945 létu banda-
menn sprengjum rigna yfir þýsku
borgina Dresden. Hundruð þúsunda
óbreyttra borgara létu lífið í árásinni
og stór hluti borgarinnar var lagður
í rúst.
Breskar herflugvélar gerðu fjórar
loftárásir á borgina á tveimur dögum
en þegar þær voru gerðar var Þýska-
land í reynd gjörsigrað. Sovéskar
hersveitir nálguðust Dresden og var
auðsætt að þær næðu borginni á
sitt vald eftir nokkra daga. Vegna
þessa hefur árásin oft verið harðlega
gagnrýnd og jafnan talin algjörlega
tilgangslaus. Dresden hafði ekkert
hernaðarlegt gildi, var óvarin og full af
flóttamönnum sem höfðu safnast frá
austurhéruðum landsins. Á þessum
tveimur dögum vörpuðu breskar og
bandarískar sprengjuflugvélar svo
mörgum sprengjum að eldhaf leystist
úr læðingi og sums staðar varð hitinn
svo mikill að súrefni þraut og kafnaði
fólk í kjöllurum og loftvarnarbyrgjum.
Opinbera skýringin á loftárásinni
var sú að hún ætti að auðvelda
sovéska hernum yfirtöku borgarinnar
en þegar kalda stríðið gekk í garð
breyttu Sovétmenn skýringunni. Þeir
sögðu loftárásina ekkert hafa hjálpað
Rauða hernum heldur eyðilagt borg
sem vitað var að lenti á hernáms-
svæði Sovétríkjanna.
ÞETTA GERÐIST: 13. FEBRÚAR 1945
Tilefnislaus árás bandamanna á Dresden
Tilkynningar um merkis atburði, stórafmæli
og útfarir má senda á netfangið
timamot@frettabladid.is.
Auglýsingar á að senda á auglysingar@frettabladid.is
eða hringja í síma 512 5000.