Fréttablaðið - 13.02.2013, Side 34
13. febrúar 2013 MIÐVIKUDAGUR| MENNING | 26
BAKÞANKAR
Svavars
Hávarðssonar
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
KROSSGÁTA
PONDUS Eftir Frode Øverli
GELGJAN Eftir Jerry Scott & Jim Borgman
HANDAN VIÐ HORNIÐ Eftir Tony Lopes
BARNALÁN Eftir Jerry Scott & Rick Kirkman
MYNDASÖGUR
LÁRÉTT
2. mats, 6. kraðak, 8. gilding, 9. rangl,
11. holskrúfa, 12. rót, 14. húrra,
16. býli, 17. tilvist, 18. umhyggja,
20. nudd, 21. láð.
LÓÐRÉTT
1. ófá, 3. hljóm, 4. naggrís, 5. hlóðir,
7. biðja ákaft, 10. spor, 13. poka, 15.
trauður, 16. ófarnaður, 19. ónefndur.
LAUSN
LÁRÉTT: 2. dóms, 6. ös, 8. mat, 9. ráf,
11. ró, 12. grams, 14. bravó, 16. bæ,
17. líf, 18. önn, 20. nú, 21. land.
LÓÐRÉTT: 1. mörg, 3. óm, 4. marsvín,
5. stó, 7. sárbæna, 10. far, 13. mal,
15. ófús, 16. böl, 19. nn.
Nennirðu að hætta
að syng ja
lagið úr Jaws?
Búið?!
Jahá ... en
af hverju,
Teresa?
Hvað get ég
sagt Lars?
Þú ert bara
ekki maðurinn
fyrir mig! Úff,
ljótt!
Flott!
Pierce!
Ég fékk
fyrsta
launatékkann
minn!
Töff!
Hvað fékkstu
mikið?
Sjáum til!
Hver er
RSK?
Ég veit ekki, en
gaurinn fékk
slatta af pening-
unum mínum!
Jæja, nú erum
við búin að baða
okkur, tannbursta
okkur, klæða
okkur í náttföt og
tilbúin í háttinn!
Það j afnast
ekkert á
við góðan
nætursvefn á
Þorláksmessu!
Og þá líður tíminn
líka mun hraðar!
Klukkan er 10.30
að morgni.
Ertu
viss?
Mín er
10.32.
Þetta hlýtur að hafa verið árið 1981. Ég rölti upp bryggjuna með ömmu
Stínu á leiðinni í soðna ýsu hjá mömmu.
Við áttum klukkutíma hvíld frá frysti-
húsinu; það var kærkomið þennan fallega
sumardag. Ég rétt fermdur; amma þús-
und ára, fannst mér þá. Á bryggjunni
stakk ég hendinni í vasann og fann þar
fyrir nokkrar álkrónur; eða flotkrónur
eins og þær voru nefndar eftir einkenn-
andi eiginleikum þeirra. Krónunum
kastaði ég kæruleysislega frá
mér á bryggjuna, þær hurfu ein
af annarri á milli fiskikara; en
flestar út í gegnum gisið grjótið
í hafnargarðinum.
ÉG graðgaði ekki í mig soðinni
ýsu með snarpheitri hamsa-
tólg þetta hádegið. Ég skreið
í blóðvatni og fiskimaðki á
bryggjunni í örvæntingar-
fullri leit að krónunum,
undir styrkri verkstjórn
ömmu Stínu. Ég man að
amma bætti miklu við
takmarkaðan orðaforða
minn þessar mínútur, og
hún kenndi mér líka að van-
meta ekki andstæðing þó
hann sé tæpur mjölpoki
að þyngd, og gangi
hægt. Þegar ég stóð
upp blautur og sár,
með tvær krónur í
lófanum, sagði hún mér að snauta burt
og gera þetta aldrei aftur.
ÉG skildi þetta ekki þá, og árum saman
kastaði ég krónum í allar áttir. Þær voru
léttar í vösunum, eins og álkrónurnar
nokkrum árum fyrr. Amma Stína vissi
það sennilega, þó hún segði aldrei neitt.
LÖNGU seinna stóð brúna glasið allt-
af á litla borðinu þegar ég kom af sjó;
klukkan sjö stundvíslega. Ég og amma
sátum í einn tíma, eða tvo. Hún sagði
mér sögur – og svo skildist mér loksins
af hverju ég skreið á bryggjunni forðum.
FORELDRAR hennar höfðu ekki efni
á því að gefa henni að borða – og létu
hana því frá sér. Amma var svo horuð við
komuna í nýjan fjörð, þriggja ára, að hún
var látin drekka rjóma í nokkrar vikur, í
þeirri von að hún myndi hjarna við. Sem
hún svo gerði. Seinna, þegar berklarnir
voru að naga sig í gegnum brjóstið á
afa, réði hún sig sem vinnukonu á hælið.
Til að vera hjá honum. Þau sváfu undir
berum himni í frostinu. En henni var
aldrei kalt. Svona er ástin, sagði hún mér.
Hann dó frá henni áður en ég fæddist. Þá
var hún ein eftir, með dæturnar. Og þá
skipti ein króna – úr áli eða ekki – máli.
OG af hverju er ég að rifja þetta upp
núna? Nei, mig vantaði bara raunveru-
leikatékk. Kannski þig líka?
Raunveruleikatékk
Fáðu þér áskrift
512 5100
stod2.is
BARDAGI
ÁRSINS!
Gunnar Nelson mætir hinum þrautreynda
bardagamanni Jorge Santiago í UFC.
Misstu ekki af bardaga ársins á Stöð 2 Sport.
LAUGARDAG KL. 20.00