Fréttablaðið - 13.02.2013, Blaðsíða 34

Fréttablaðið - 13.02.2013, Blaðsíða 34
13. febrúar 2013 MIÐVIKUDAGUR| MENNING | 26 BAKÞANKAR Svavars Hávarðssonar 1 6 7 8 10 13 119 12 15 16 18 21 20 17 14 19 2 3 4 5 KROSSGÁTA PONDUS Eftir Frode Øverli GELGJAN Eftir Jerry Scott & Jim Borgman HANDAN VIÐ HORNIÐ Eftir Tony Lopes BARNALÁN Eftir Jerry Scott & Rick Kirkman MYNDASÖGUR LÁRÉTT 2. mats, 6. kraðak, 8. gilding, 9. rangl, 11. holskrúfa, 12. rót, 14. húrra, 16. býli, 17. tilvist, 18. umhyggja, 20. nudd, 21. láð. LÓÐRÉTT 1. ófá, 3. hljóm, 4. naggrís, 5. hlóðir, 7. biðja ákaft, 10. spor, 13. poka, 15. trauður, 16. ófarnaður, 19. ónefndur. LAUSN LÁRÉTT: 2. dóms, 6. ös, 8. mat, 9. ráf, 11. ró, 12. grams, 14. bravó, 16. bæ, 17. líf, 18. önn, 20. nú, 21. land. LÓÐRÉTT: 1. mörg, 3. óm, 4. marsvín, 5. stó, 7. sárbæna, 10. far, 13. mal, 15. ófús, 16. böl, 19. nn. Nennirðu að hætta að syng ja lagið úr Jaws? Búið?! Jahá ... en af hverju, Teresa? Hvað get ég sagt Lars? Þú ert bara ekki maðurinn fyrir mig! Úff, ljótt! Flott! Pierce! Ég fékk fyrsta launatékkann minn! Töff! Hvað fékkstu mikið? Sjáum til! Hver er RSK? Ég veit ekki, en gaurinn fékk slatta af pening- unum mínum! Jæja, nú erum við búin að baða okkur, tannbursta okkur, klæða okkur í náttföt og tilbúin í háttinn! Það j afnast ekkert á við góðan nætursvefn á Þorláksmessu! Og þá líður tíminn líka mun hraðar! Klukkan er 10.30 að morgni. Ertu viss? Mín er 10.32. Þetta hlýtur að hafa verið árið 1981. Ég rölti upp bryggjuna með ömmu Stínu á leiðinni í soðna ýsu hjá mömmu. Við áttum klukkutíma hvíld frá frysti- húsinu; það var kærkomið þennan fallega sumardag. Ég rétt fermdur; amma þús- und ára, fannst mér þá. Á bryggjunni stakk ég hendinni í vasann og fann þar fyrir nokkrar álkrónur; eða flotkrónur eins og þær voru nefndar eftir einkenn- andi eiginleikum þeirra. Krónunum kastaði ég kæruleysislega frá mér á bryggjuna, þær hurfu ein af annarri á milli fiskikara; en flestar út í gegnum gisið grjótið í hafnargarðinum. ÉG graðgaði ekki í mig soðinni ýsu með snarpheitri hamsa- tólg þetta hádegið. Ég skreið í blóðvatni og fiskimaðki á bryggjunni í örvæntingar- fullri leit að krónunum, undir styrkri verkstjórn ömmu Stínu. Ég man að amma bætti miklu við takmarkaðan orðaforða minn þessar mínútur, og hún kenndi mér líka að van- meta ekki andstæðing þó hann sé tæpur mjölpoki að þyngd, og gangi hægt. Þegar ég stóð upp blautur og sár, með tvær krónur í lófanum, sagði hún mér að snauta burt og gera þetta aldrei aftur. ÉG skildi þetta ekki þá, og árum saman kastaði ég krónum í allar áttir. Þær voru léttar í vösunum, eins og álkrónurnar nokkrum árum fyrr. Amma Stína vissi það sennilega, þó hún segði aldrei neitt. LÖNGU seinna stóð brúna glasið allt- af á litla borðinu þegar ég kom af sjó; klukkan sjö stundvíslega. Ég og amma sátum í einn tíma, eða tvo. Hún sagði mér sögur – og svo skildist mér loksins af hverju ég skreið á bryggjunni forðum. FORELDRAR hennar höfðu ekki efni á því að gefa henni að borða – og létu hana því frá sér. Amma var svo horuð við komuna í nýjan fjörð, þriggja ára, að hún var látin drekka rjóma í nokkrar vikur, í þeirri von að hún myndi hjarna við. Sem hún svo gerði. Seinna, þegar berklarnir voru að naga sig í gegnum brjóstið á afa, réði hún sig sem vinnukonu á hælið. Til að vera hjá honum. Þau sváfu undir berum himni í frostinu. En henni var aldrei kalt. Svona er ástin, sagði hún mér. Hann dó frá henni áður en ég fæddist. Þá var hún ein eftir, með dæturnar. Og þá skipti ein króna – úr áli eða ekki – máli. OG af hverju er ég að rifja þetta upp núna? Nei, mig vantaði bara raunveru- leikatékk. Kannski þig líka? Raunveruleikatékk Fáðu þér áskrift 512 5100 stod2.is BARDAGI ÁRSINS! Gunnar Nelson mætir hinum þrautreynda bardagamanni Jorge Santiago í UFC. Misstu ekki af bardaga ársins á Stöð 2 Sport. LAUGARDAG KL. 20.00

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.