Fréttablaðið - 22.02.2013, Síða 4
22. febrúar 2013 FÖSTUDAGUR| FRÉTTIR | 4
DÓMSMÁL Hæstiréttur staðfesti
í gær sex mánaða fangelsisdóm
yfir Berki Birgissyni, dæmdum
ofbeldismanni,
fyrir að hrækja
á skikkju dóm-
ara við Héraðs-
dóm Reykja-
ness og kalla
hann „tussu“.
Atvikið átti
sér stað þegar
verið var að
leiða hann fyrir
dómara, þegar
hann sat í gæsluvarðhaldi, til að
krefjast þess að hann yrði látinn
afplána eftirstöðvar gamallar
refsingar.
Börkur var í desember dæmd-
ur í sex ára fangelsi fyrir tvær
hrottalegar líkamsárásir í máli
sem kennt var við hann og
Annþór Kristján Karlsson. - sh
Kallaði dómara „tussu“:
Hrákadómur
Barkar stendur
BÖRKUR
BIRGISSON
VIÐSKIPTI Bensínverð hækkaði um
2,50 krónur að jafnaði á þriðjudag,
á sama tíma og heimsmarkaðsverð
lækkaði um sem nemur tæpum
10 krónum á lítrann. Þetta kemur
fram í umfjöllun Félags íslenskra
bifreiðaeigenda (FÍB).
„Þetta hlýtur að teljast í meira
lagi dularfullt og skýring á þessu
undri ekki vel sjáanleg,“ segir á
vef FÍB. Bent er á að á miðvikudag
hafi heimsmarkaðsverð á bensíni
lækkað enn frekar, um sem nemur
tveimur krónum á lítra. Engar
breytingar hafi orðið á bensínverði
hér, þvert á hækkanir fyrr í mán-
uðinum, strax í kjölfar hækkana á
heimsmarkaðsverði. - óká
Olíufélögin hækka verð:
Bregðast ekki
við lækkun á
heimsmarkaði
KJARAMÁL Alls hafa 46 geislafræðingar
á Landspítalanum (LSH) sagt upp störf-
um, þar af eru 42 á myndgreiningardeild
og fjórir á geisla- og meðferðardeild. Um
80 slíkir sérfræðingar eru á spítalanum í
dag, þó ekki allir í fullu starfi.
Katrín Sigurðardóttir, formaður Félags
geislafræðinga, segir hópinn hafa óskað
eftir fundi með forsvarsmönnum spítal-
ans á mánudag en ekki hafa fengið svör
enn.
„Fyrst og fremst þarf að viðurkenna
störfin formlega sem slík. Það þarf að
koma inn á ýmsar skipulagsbreytingar og
að menn fái framgang við faglega þekk-
ingu,“ segir hún. „En það á alveg eftir að
ræða þetta.“
Engar fastar kröfur varðandi laun
hafa enn komið frá geislafræðingum og
Katrín undirstrikar að forsendur þeirra
séu afar ólíkar þeim er komu frá hjúkr-
unarfræðingum.
„Mínir félagar eru mjög þreyttir og
hafa verið lengi. En þetta er á öðrum for-
sendum en deila hjúkrunarfræðinganna
og það er allt annað í gangi hjá okkur,“
segir hún. „Það þarf að breyta fyrir-
komulaginu.“ - sv
Meirihluti geislafræðinga hefur sagt upp störfum á Landspítalanum og bíður eftir fundi:
Geislafræðingar bíða eftir svari forstjórans
KATRÍN SIGURÐARDÓTTIR
Af 80 starfandi
geislafræðingum á LSH
eru þrír karlar. Að sögn
Katrínar eru þeir ráðnir
tímabundið svo ólíklegt
verði að teljast að þeir
hafi sagt upp störfum.
„En þessir ungu menn
endast nú yfirleitt ekki
lengi í faginu,“ segir
Katrín.
Ungir menn endast illa í faginu
ATVINNULÍF Flutningafyrirtækið
Samskip tekur í þessum mánuði
upp nýja siglingaleið frá Vest-
fjörðum og Norðurlandi beint til
Bretlands og meginlands Evrópu.
Útflytjendur og innflytjendur á
landsbyggðinni komast með þessu
í beint samband við markaðssvæði
sín í Evrópu. Nýja siglingaleiðin
mun draga úr landflutningum með
tilheyrandi olíusparnaði og minna
álagi á vegakerfið. Mikið hagræði,
segir fiskútflytjandi á Ísafirði.
Um nýja hringleið í flutningum
er að ræða. Flutningaskip á vegum
félagsins fer frá Reykjavík til Ísa-
fjarðar, Akureyrar og Reyðarfjarð-
ar og þaðan til Immingham í Bret-
landi og Rotterdam í Hollandi með
viðkomu í Kollafirði í Færeyjum.
Frá Rotterdam fer skip félagsins
aftur til Reykjavíkur og leggur af
stað í nýja hringferð daginn eftir
heimkomu. Viðkomustöðum verður
hugsanlega fjölgað í framtíðinni.
Ásbjörn Gíslason, forstjóri Sam-
skipa, segir í tilkynningu að verið
sé að svara þörf fyrir beinar sigl-
ingar frá Vestfjörðum og Norður-
landi, ekki síst með sjávarafurðir
inn á helstu markaði í Bretlandi og
á meginlandi Evrópu.
Ólafur B. Halldórsson, fram-
kvæmdastjóri Ísfangs á Ísafirði,
telur augljóst að ný siglingaleið
Samskipa verði styrkur fyrir sitt
fyrirtæki og önnur fyrirtæki í
útflutningi á svæðinu. „Eins og
landið liggur í dag þurfum við að
flytja okkar sjávarafurðir land-
leiðis fyrir skip í Reykjavík með
tilheyrandi kostnaði,“ segir Ólaf-
ur sem efast ekki um að um mikið
hagræði sé að ræða. „Hættan er
hins vegar sú, hugsa ég, að Eim-
skip byrji á þessu líka. Þá drepa
þeir hvor annan og hætta báðir
jafnt,“ segir Ólafur sem segir sög-
una geyma viðlíka dæmi. „Kakan
er einfaldlega ekki svo stór að hún
sé til skiptanna.“
Daníel Jakobsson, bæjarstjóri
á Ísafirði, segir mjög jákvætt að
Ísafjörður sé aftur orðinn útflutn-
ingshöfn. „Ég bind miklar vonir
við þetta og tel að samkeppnis-
staða fyrirtækja hér í kring styrk-
ist mjög við þetta,“ segir Daníel.
Í sama streng tekur Halla Björk
Reynisdóttir, formaður bæjarráðs
Akureyrar. Hún segir nýja sigl-
ingaleið styrkja stöðu Norðurlands
til mikilla muna, bæði hvað varð-
ar flutninga til og frá höfuðborgar-
svæðinu og ekki síður við Evrópu.
svavar@frettabladid.is
Mikið hagræði með
nýrri hringleið á sjó
Samskip taka upp siglingar frá Vestfjörðum og Norðurlandi beint til Evrópu. Fisk-
útflytjandi á Ísafirði segir mikinn styrk felast í þjónustunni fyrir landsbyggðina.
NÝ HRINGLEIÐ Flutningar á sjó hafa lengi verið í umræðunni sem hagsmunamál
landsbyggðarinnar. Því er nú svarað með nýrri hringleið. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
SJÓFLUTNINGAR AF LANDSBYGGÐ-
INNI Skipið verður um hálfan mánuð
að fara hringinn. MYND/SAMSKIP
232,7147
GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR
129,73 130,35
197,27 198,23
170,8 171,76
22,893 23,027
22,757 22,891
20,125 20,243
1,3917 1,3999
196,53 197,71
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR
GENGIÐ
21.02.2013
AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS– AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Guðmundur Steinsson gudmundurs@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynur@365.is, Laila Awad laila@365.is, Sigríður Dagný Sigurbjörnsdóttir sigridurdagny@365.is,
Örn Geirsson orn.geirsson@365.is FÓLK/LÍFIÐ/SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5402: Atli Bergmann atli.bergmann@365.is, Benedikt Freyr Jónsson benediktj@365.is, Elsa Jensdóttir elsaj@365.is, Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is, Sverrir Birgir Sverrisson sverrirbs@365.is FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Elín Albertsdóttir elin@365.is
og Vera Einarsdóttir vera@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is
DÓMSMÁL Jón Snorri Snorrason,
fyrrverandi stjórnarformaður
Sigurplasts og lektor í viðskipta-
fræði við Háskóla Íslands, var í
gær dæmdur í hálfs árs skilorðs-
bundið fangelsi fyrir skilasvik.
Hann er fundinn sekur um að
hafa veðsett hlut eignarhalds-
félags síns í Sigurplasti til trygg-
ingar á láni frá Sparisjóði Mýra-
sýslu, þótt hluturinn hafi þegar
verið veðsettur SPRON.
Jón Snorri bar því við hann
hefði fengið leyfi frá útlánastjóra
SPRON fyrir þessu, en sá kann-
aðist ekkert við málið og sagði
skýringuna fráleita. - sh
Dæmdur fyrir skilasvik:
Jón Snorri á
hálfs árs skilorð
STJÓRNMÁL Pétur Blöndal, þing-
maður Sjálfstæðisflokks, ræddi
á Alþingi í gær um umfjöllun
Ríkis sjónvarpsins um kvikmynd-
ina XL í leikstjórn Ólafs Darra
Ólafssonar.
Umfjöllunin
hafi verið afar
mikil.
„Hversu mikils
virði er svona
auglýsing og
var hún ein-
hvern veginn
borguð? Fékk
ríkisútvarpið
greitt eða fékk
einhver starfsmaður greitt eða
hvernig var þetta allt saman?“
spurði Pétur sem taldi verðmæt-
ið hlaupa á milljónum og jafnvel
tugmilljónum króna. Óvíst væri
hvort aðrar kvikmyndir nytu
þess sama. Benti Pétur sérstak-
lega á að fram hefði komið að XL
fjallaði um drykkfelldan alþingis-
mann og væri sannsöguleg. - gar
Pétur Blöndal á Alþingi:
Hver fékk greitt
fyrir XL-fréttir?
PÉTUR BLÖNDAL
Veðurspá
Sunnudagur
10-15 m/s
MILT UM HELGINA Helgin að ganga í garð með vætu um S- og V-vert landið en
mildu veðri um allt land. Sólin ætti að leika um Norðlendinga og Austfirðinga á
morgun en dregur fyrir fram á sunnudag. Hvessir SA-lands á sunnudagskvöld.
5°
9
m/s
6°
11
m/s
8°
11
m/s
7°
12
m/s
Á morgun
5-15 m/s hvassast SV-til
Gildistími korta er um hádegi
7°
5°
5°
4°
4°
Alicante
Basel
Berlín
21°
2°
-1°
Billund
Frankfurt
Friedrichshafen
0°
1°
-4°
Gautaborg
Kaupmannahöfn
Las Palmas
-2°
-2°
21°
London
Mallorca
New York
3°
16°
4°
Orlando
Ósló
París
28°
1°
2°
San Francisco
Stokkhólmur
15°
-4°
6°
5
m/s
7°
4
m/s
6°
5
m/s
5°
4
m/s
7°
5
m/s
8°
9
m/s
3°
10
m/s
7°
5°
5°
4°
4°
Snjólaug Ólafsdóttir
veðurfréttamaður