Fréttablaðið - 22.02.2013, Blaðsíða 22
KYNNING − AUGLÝSINGInnheimta & ráðgjöf FÖSTUDAGUR 22. FEBRÚAR 20132
Útgefandi: 365 miðlar ehf., Skaftahlíð 24, s. 512 5000 Umsjónarmenn auglýsinga: Sverrir Birgir Sverrisson, sverrirbs@365.is, s.512-5432Ábyrgðarmaður: Jón Laufdal.
Ekki lenda í skuldafeni
Til að komast hjá skuldasöfnun þarf að eyða minna. Þetta reyn-
ist hins vegar fæstum eins auðvelt og það hljómar. Sumum tekst
þó að sleppa undan því að safna skuldum með því að fara eftir
nokkrum einföldum reglum.
1. Eyddu minna. Tilboðin freista margra og fá þá til að kaupa
hluti sem þeir hafa ekki efni á. Gullna reglan er að kaupa aldrei
neitt nema vera viss um að maður hafi efni á því. Gerðu fjárhags-
áætlun svo þú vitir hve miklu þú mátt eyða og í hvað.
2. Staðgreiddu með peningum. Debetkortin eru handhæg en gera
það að verkum að fólk eyðir meira en það myndi gera ef það er
með seðlana í höndunum.
3. Ekki láta glepjast af kreditkortum. Notaðu kreditkortin aðeins
í neyðartilfellum. Háir vextir á afborgunum gera lítið til að bæta
skuldastöðuna.
4. Borgaðu kreditkortaskuldir sem fyrst. Háir reikningar í bland
við háa vexti eru slæm blanda.
5. Farðu á útsölur. Ekki borga fullt verð fyrir hlutina heldur
kauptu nauðsynjar þegar þær bjóðast á tilboði.
6. Vertu raunsæ/r. Við lifum í neysluþjóðfélagi. Ekki láta glepjast.
Ef þú þarft ekki á hlutnum að halda, ekki kaupa hann.
Sjálfsagt þykir fáum skemmtilegt að eyða löngum tíma í skipulag á fjár-málum heimilisins. Margir Íslending-
ar hafa lent í greiðsluerfiðleikum undanfar-
in ár í kjölfar bankahrunsins og afleiðinga
þess. Skipulag á fjármálum heimilisins er
engu að síður afar nauðsynlegt en að mati
Svanborgar Sigmarsdóttur, upplýsingafull-
trúa hjá umboðsmanni skuldara, er þó enn
of algengt að fólk lendi í greiðsluerfiðleikum
vegna þess að það heldur að hlutirnir redd-
ist einhvern veginn á endanum. „Við hjá um-
boðsmanni skuldara verðum sérstaklega vör
það að margir vita ekki hvernig hægt er að
bregðast við greiðsluvanda og hvaða úrræði
eru í boði. Einnig er það of algengt að fólk
sé feimið við að tala við bankann sinn og fá
einhverja aðstoð þaðan. Greiðsluerfiðleikar
eru því enn svolítið feimnismál og því miður
stóla of margir á að þetta muni allt bjargast
og gera jafnvel ekkert í sínum málum fyrr en
það er orðið of seint.“
Huga þarf að stórum útgjaldaliðum
Greiðsluerfiðleikar eiga sér ýmsar orsakir. At-
vinnuleysi hefur þar eðlilega mikil áhrif auk
þess sem launalækkun getur sett strik í reikn-
inginn. Langvarandi veikindi eiga einnig
þátt í greiðsluerfiðleikum og ábyrgðarskuld-
bindingar þar sem viðkomandi hefur geng-
ist í ábyrgð fyrir skuld annars aðila. „Það eru
einnig of algeng mistök að vita af stórum út-
gjöldum fram undan en í stað þess að leggja
fyrir jafnt og þétt til að mæta þeim þá er reynt
að borga allt í einu. Einnig getur verið afdrifa-
ríkt að taka dýr lán, t.d. yfirdrátt, til að brúa
eitthvað bil þegar það getur verið margfalt
ódýrara að leggja fyrir í skamman tíma og
sleppa um leið dýra láninu. Svo snýst þetta
líka oft bara um klaufaskap þegar ekki er
borgað á réttum tíma og þá þarf auðvitað að
greiða dráttarvexti og áfallinn kostnað.“
Til að forðast greiðsluerfiðleika eða byggja
upp fjármálin eftir greiðsluerfiðleikaaðstoð er
gott að hafa nokkur atriði í huga, segir Svan-
borg. Fyrst ber að nefna mikilvægi þess að
fá raunverulega yfirsýn yfir útgjöld og tekjur
heimilisins. „Hér skiptir miklu máli að gera
sér grein fyrir hverjar útborgaðar tekjur eru
og þá þarf líka að taka tillit til húsaleigubóta,
vaxtabóta og meðlagsgreiðslna. Um leið þarf
að liggja fyrir hversu mikið er greitt af lánum,
dagvistun barna og öðrum föstum liðum. Ef
framfærslukostnaður liggur fyrir má byrja
að einblína á þá útgjaldaliði sem má lækka
og þannig setja sér framfærslumarkmið fyrir
næstu mánuði.“
Skýr markmið og eftirfylgni þeirra
Þegar tekjur og útgjöld liggja fyrir er gott að
fylla út fjárhagsyfirlit til að fá skýra mynd af
stöðunni eins og hún er. „Um leið og staðan
er skýr verður miklu auðveldara að setja sér
skýr markmið og fylgja þeim eftir. Í því sam-
bandi er gott að greina á milli útgjalda sem
erfitt er að lækka, eins og húsaleigu og af-
borgana húsnæðislána og útgjaldaliða sem
hægt er að minnka, til dæmis í tengslum við
afþreyingu og áskriftarkostnað.“ Um leið
gefur skýrt fjárhagsyfirlit betri mynd af þeim
lánum sem skynsamlegra er að greiða niður
sé þess kostur. Ólík lánsform bera misháa
vexti og í því sambandi er yfirleitt skynsam-
legast að greiða niður vanskil, yfirdrátt og
rað- og greiðsludreifingar á greiðslukortum.
Svanborg bendir einnig á mikilvægi þess
að semja strax við kröfuhafa. Þannig sé oft
hægt að semja um frestun greiðslna eða skil-
málabreytingar lána. „Ef greiðsluvandinn er
hins vegar viðvarandi er hægt að fá ráðgjöf
hjá okkur sem getur leitt til tillagna að úr-
lausnum.“
Hvort Íslendingar séu verri en aðrir þjóðir
þegar kemur að skipulagi fjármála heimilis-
ins segir Svanborg að erfitt sé að segja til um
það. Rannsóknir hafi þó sýnt að Íslending-
ar hafi ekki gott fjármálalæsi og bæta megi
verulega úr því. „Þennan þátt má bæta til
dæmis í skólakerfinu þar sem kenna má ung-
lingum um sparnað og hvernig hægt er að
leggja til hliðar en ekki síður að kenna þeim
að skilja kostnaðinn við lántöku og um leið
hvað það kostar raunverulega að taka lán.“
Greiðsluerfiðleikar eru
enn þá svolítið feimnismál
Miklu máli skiptir að skipuleggja vel fjármál heimilisins. Margir hafa lent í greiðsluerfiðleikum undanfarin ár en til eru ýmsar leiðir
til að fyrirbyggja slíka erfiðleika. Raunveruleg yfirsýn yfir útgjöld og tekjur skipta þar miklu máli.
„Því miður stóla of margir á að þetta muni allt
bjargast og gera jafnvel ekkert í sínum málum fyrr en
það er orðið of seint,“ segir Svanborg Sigmarsdóttir,“
upplýsingafulltrúi umboðsmanns skuldara.
MYND/STEFÁN
CODEX INNHEIMTUÞJÓNUSTA
Codex ehf. er innheimtuþjónusta á Skólavörðustíg 12 í Reykjavík.
Codex ehf. býður upp á alhliða milliinnheimtuþjónustu. Sérstök
áhersla er lögð á skjóta og persónulega þjónustu auk þess sem
öguð og vönduð vinnubrögð eru höfð að leiðarljósi. Codex ehf.
starfar fyrir fyrirtæki, stofnanir og félagasamtök auk þjónustu við
einstaklinga.
Skrifstofan er opin alla virka daga frá 8.00 til 16.30.
Símatími skrifstofunnar er frá 9 –12 og 13–16 alla virka daga.
Síminn er 511 3090 og auk þess er unnt að senda fyrirspurn á
codex@codex.is til að fá frekari upplýsingar. www.codex.is
LÖGMÁL
Lögmál ehf. er lögfræðistofa á Skólavörðustíg
12 í Reykjavík. Lögmál býður upp á alla almenna
lögfræðiþjónustu. Sérstök áhersla er lögð á skjóta
og persónulega þjónustu auk þess sem öguð og
vönduð vinnubrögð eru höfð að leiðarljósi. Lögmál
starfar fyrir fyrirtæki, stofnanir og félagasamtök auk
þjónustu við einstaklinga.
Skrifstofan er opin alla virka daga frá 9.00 til 16.30.
Síminn er 511-2000.
Símatími skrifstofunnar er frá 9 til 12 og 13 til 16 alla
virka daga. www.logmal.is