Fréttablaðið - 22.02.2013, Side 28
FRÉTTABLAÐIÐ Sigrún Edda, afþreying, heilsa, fegurð og hamingja, helgarmaturinn og spjörunum úr.
6 • LÍFIÐ 22. FEBRÚAR 2013
s
FULLT NAFN
Sigrún Edda Björnsdóttir.
FÆÐINGARÁR
1958.
HJÚSKAPARSTAÐA
Gift.
BÖRN
Tvö.
STARF
Leikari, leikstjóri og höfundur.
SIGRÚN EDDA
LÍF LEIKARANS ER
MJÖG SÉRSTAKT
Hún vappaði um leikhúsin sem lítið barn og var alin upp
af litskrúðugum karakterum og frumkvöðlum íslensks
leikhúslífs. Lífi ð spjallaði við Sigrúnu Eddu leikkonu um
þrjátíu ára feril hennar og hlutverk hennar í viðamestu
sýningu Borgarleikhússins til þessa, Mary Poppins, sem
frumsýnd er í kvöld.
N
ú ertu búin að starfa
sem farsæl leik-
kona frá árinu 1981.
Hvernig hefur leik-
konulífið reynst þér
og vissirðu alltaf að þú vildir fara
þessa leið í lífinu?
Ég sé ekki eftir neinu þegar
kemur að starfsvali. Á þessum
rúmu 30 árum sem ég hef unnið
í leikhúsi hafa vissulega verið
skin og skúrir eins og gengur í líf-
inu sjálfu, en þegar upp er stað-
ið hef ég verið lánsöm, fengið að
leika í spennandi sýningum ólík
og krefjandi hlutverk. Það gerð-
ist eiginlega af sjálfu sér að ég
færi í leiklistarskóla, ég gant-
ast stundum með það að það hafi
verið skortur á ímyndunarafli. Ég
er alin upp í leikhúsi frá blautu
barnsbeini í gamla Iðnó við Tjörn-
ina þar sem mamma mín var
starfandi leikkona. Þar kynnt-
ist ég mörgum litskrúðugum kar-
akterum sem sumir hverjir voru
frumkvöðlar í íslensku atvinnu-
leikhúsi. Bernska mín var ævin-
týri líkust þar sem ég vappaði
um leikhúsið eins og lítill heima-
gangur og fékk hangikjötsbrauð-
sneiðar uppi á lofti hjá Krist-
ínu gömlu, hreinsað bensín á litla
puttann hjá Brynjólfi Jóhannes-
syni þegar hann var að taka af sér
gerviskeggið, átti stundum spjall
við fyrsta atvinnuleikara Íslands,
Harald Björnsson og fékk að máta
hárkollur hjá Lilju sem gaf öllum
matskeið af brennsluspritti ef
þeir voru veikir. Mér finnst stund-
um eins og ég sé tengiliður milli
tveggja heima, leikhússins eins og
það var og leikhúss dagsins í dag.
Það er stundum talað um að líf
leikara sé hark, bæði hvað laun-
in varðar og svo ekki sé minnst á
langa og erfiða vinnudaga. Þarf
að hafa mikla ástríðu fyrir leik-
listinni til að endast í henni?
Ég er þeirrar skoðunar að alla
vinnu eigi að vinna af ástríðu,
annars er ekkert gaman. Það að
endast í leikhúsi er ekki endilega
manns eigið val, það eru þarfir
leikhússins sem velja þig og þar
spilar margt saman. Ég gerði mér
þó alltaf ljóst að þó að ég fengi
ekki hlutverk í leikhúsinu vildi ég
starfa í skapandi andrúmslofti.
Ég hef unnið við margt sem teng-
ist námi mínu á beinan og óbein-
an hátt. Ég hef búið til sjónvarps-
þætti, útvarpsþætti, skrifað leik-
rit og leikgerðir, skrifað bækur,
teiknimyndasögu, gert tölvu-
leiki, talsett heilmikið, leikstýrt
og leikið í bíómyndum, sjónvarpi
og útvarpi. Ég lít ekki á þetta sem
hark heldur gjöf, að fá tækifæri
til að vinna á svona fjölbreytt-
um vettvangi. Það verða fæstir
ríkir af veraldlegum gæðum sem
starfa í listum en ég hef aldrei
misst úr máltíð og er bara nokkuð
sátt við það sem ég hef.
Hvernig hefur gengið að ala
upp börn og sinna fjölskyldulíf-
inu samhliða starfinu? Ég á tvö
uppkomin og frábær börn. Þau
eru lifandi sönnun þess að tekist
hafi vel upp. Auðvitað hefst þetta
ekki nema allir leggist á eitt. Ég
á góða að, frábæra fjölskyldu
og eiginmann sem hefur sjálfur
starfað við leikhús og vissi alveg
að hverju hann gekk þegar hann
bað mig um að giftast sér.
Er erfitt fyrir konur að eld-
ast í leiklistinni, verður erfiðara
að fá hlutverk með árunum eða
er nóg af verkefnum hér á landi?
Líf leikarans er mjög sérstakt.
Hann þarf að ganga í gegnum
ótal aldurssíur á lífsleiðinni.
Margir detta út og snúa sér að
öðru. En hlutverkin verða bita-
stæðari með aldrinum og reynsl-
an gerir mann dýrmætari. Mig
hefur ekki skort verkefni, ég er
lánsöm hvað það varðar, er til
dæmis að leika magnað hlutverk
í Gullregni eftir Ragnar Braga-
son um þessar mundir.
Áttu þér eitthvert uppáhalds-
hlutverk þegar þú lítur yfir feril-
inn eða hlutverk sem þú ert stolt-
ari af en öðru? Nei, ég get ekki
nefnt neitt eitt fram yfir önnur.
Hlutverkin sem maður skilar eru
svolítið eins og börnin manns,
manni þykir vænt um þau öll
hvert á sinn hátt.
En áttu þér eitthvað drauma-
hlutverk eða -verkefni? Nei, nei.
En að nýjasta verkefninu.
Fáðu þér áskrift
512 5100
stod2.is
FÖSTUDAGSKVÖLD
20:10
SPURNINGABOMBAN
Frumlegustu spurningarnar, fyndnustu keppendurnir
og fáránlegustu svörin, nú loksins sjáanleg aftur!
SN
ÝR
AF
TU
R