Fréttablaðið - 22.02.2013, Síða 54
22. febrúar 2013 FÖSTUDAGUR| MENNING | 34
„Helgin hjá mér fer í vinnutörn.
Í kvöld er ég að frumsýna verkið
Know Thy Yellow Self í Norðurpóln-
um. Á laugardaginn eru að hefjast
tökur á myndinni Vonarstræti en
þar er ég að vinna í framleiðslu-
deildinni.“
Vigfús Þormar Gunnarsson kvikmyndagerðar-
maður
HELGIN
Stuttmynd Ásthildar Kjartans-
dóttur hlaut aðalverðlaun kvik-
myndahátíðarinnar Arctic Heat
helgina sem leið. Ásthildur var
nýkomin heim af Eddunni þegar
henni var tilkynnt um sigurinn á
Arctic Heat en hátíðin var fyrst
haldin árið 1997.
„Ég var að koma heim af Edd-
unni og þá beið mín póstur þar
sem mér var tilkynnt um sigur-
inn. Ég var auðvitað mjög ánægð
með það,“ segir Ásthildur. Stutt-
myndin ber titilinn Brynhildur
og Kjartan og fjallar um eldri
hjón sem búa saman í lítilli íbúð.
Maðurinn þjáist af Alzheimer og
reynir eiginkona hans að takast
á við veikindin með honum.
„Þetta er vissulega stórt og
mikið efni fyrir mynd sem
er ekki nema fjórtán mínút-
ur að lengd, en það næst samt
að draga upp heillega mynd af
þeirra aðstæðum.“
Myndirnar sem keppa til verð-
launa á Arctic Heat eru í leik-
stjórn kvenna og þurfa leikstjór-
arnir einnig að hafa ríkisfang í
einhverju Norðurlandanna. Alls
komast 27 myndir í undanúrslit
og velur dómnefnd sigurvegara
úr þeim hópi. Sá hlýtur um 85
þúsund krónur að launum. Þegar
Ásthildur er innt eftir því hvort
kvikmyndahátíð sem þessi sé
nauðsynleg í dag telur hún svo
vera. „Ætli þetta sé ekki við-
bragð við því ástandi sem ríkir
innan kvikmyndabransans. Það
skiptir engu máli hverjum það
er að kenna, svona er þetta og
það er ekki gott,“ segir hún að
lokum.
- sm
Ásthildur hlaut aðalverðlaunin
Stuttmyndin Brynhildur og Kjartan þótti best á kvikmyndahátíðinni Arctic Heat.
FYRSTU VERÐLAUN Ásthildur
Kjartansdóttir hlaut aðalverðlaun
kvikmyndahátíðarinnar Arctic Heat um
helgina fyrir stuttmyndina Brynhildur
og Kjartan. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
„Við höfum aldrei fengið eins og góða dóma fyrir
nokkra sýningu. Ég hef verið spurður hvort við
höfum nokkuð borgað fyrir þessa dóma, sem voru
eins og sannkölluð ástarbréf frá fjölmiðlum,“ segir
Óskar Eiríksson hjá framleiðslufyrirtækinu Thea-
termogul, sem á heiðurinn að grínsöngleiknum
Silence. Söngleikurinn hefur vakið mikla athygli
vestanhafs og hefur hlotið flestar útnefningar á leik-
listarverðlaunahátíðinni LA Drama Critics Circle
sem fer fram þann 18. mars næstkomandi. Söng-
leikurinn er grínleikrit byggt á sögunni um mannæt-
una Hannibal Lecter í Silence of the Lambs og hefur
gengið fyrir fullu húsi í New York frá frumsýningu
í júlí 2011. „Við erum tilnefnd til fimm verðlauna á
þessari hátíð, meðal annars fyrir bestu uppfærslu,
tónlist og leikstjórn. Þar erum við í hópi með flottum
Broadway-sýningum á borð við War Horse og The
Book of Mormon, sem eru þær söluhæstu á Broad-
way í dag og því er þetta mikill heiður.“
Óskar segir að þau séu nú í viðræðum úti um
allan heim um uppsetningu á söngleiknum. Einnig
er áhugi fyrir að kvikmynda söngleikinn, en Óskar
segist taka þeim fregnum með stakri ró enda sé það
best í þessum geira.
„Áhuginn er allavega mikill. Þetta ævintýri er
rétt að byrja. Það hefur kostað okkur mikinn tíma
og fjárfestingu sem lítur nú út fyrir að vera að skila
sér.“ - áp
Silence með margar útnefningar
Hinn íslenskframleiddi söngleikur Silence líklegur til afreka á verðlaunhátíðum.
VINSÆLL SÖNGLEIKUR Söngleikurinn Silence er tilnefndur
til fimm La Drama Critics Circle-verðlauna við mikla ánægju
Óskars Eiríkssonar hjá Theatermogul sem framleiddi söng-
leikinn. Hér er hann með systur sinni Signýju Eiríksdóttur.
FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Mögnuð klassísk
í kilju
Inferno eftir August Strindberg er sjálfsævisögulegt verk og fjallar
um rithöfund sem yfirgefur fjölskyldu sína til þess að helga sig
rannsóknum í efnafræði. Fyrr en varir renna veruleiki og hugarástand
saman; höfundurinn fer að sjá ofsóknir og samsæri í hverju horni og
upplifir því sannkallað víti – Inferno – innra með sjálfum sér.
Þórarinn Eldjárn þýddi bókina og ritar eftirmála.
„Það er háspenna lífshætta í bókinni …“
Hermann Stefánsson / Morgunblaðið
„… yfirburðir Strindbergs þegar honum tekst upp
tilheyra sviði þar sem ekki eru aðrir til samanburðar.“
Halldór Laxness / Úngur ég var
„Hver sem er getur lært loftfim-
leika ef áhugi er til staðar. Fim-
leikafólk fer léttara með þetta en
margir aðrir því það hefur verið
pínt til að klifra upp kaðal frá því
það byrjaði að æfa. Svo eru aðrir
sem hafa aldrei klifrað upp kaðal
á ævinni en það er engin þörf á að
vera í ofurformi til að prófa þetta,“
segir Katla Þórarinsdóttir, loftfim-
leikakona og nútímadansari.
Katla var lengi einn af höfuð-
paurum Sirkuss Íslands en sagði
skilið við hópinn um áramótin og
er farin af stað á eigin vegum. Hún
er nú aðallega að einbeita sér að
loftfimleikum, bæði að kenna þá
og sýna. „Yfirleitt eru námskeiðin
hjá mér um sex vikur en það er þó
allur gangur á því. Þegar um nýliða
er að ræða tek ég í mesta lagi sex
manns í einu en annars fer ég upp
í níu manna hópa,“ segir Katla
sem býður líka upp á einstaklings-
kennslu.
Sérstakt silki er notað í íþróttinni
sem er fest upp í loftið. „Það skiptir
auðvitað öllu máli að festingarnar
séu traustar þar sem það er ekkert
grín að detta niður í miðri æfingu,“
segir hún. Hver tími byrjar á upp-
hitun á gólfinu þar sem unnið er að
því að styrkja líkamann. Í fram-
haldi er svo farið upp í silkið og
Katla segir algengt að það taki fólk
nokkra tíma að ná tækninni við að
klifra upp, áður en það getur byrjað
að gera æfingar. „Oft ætlar heilinn
sér miklu meira en líkaminn getur
fyrst um sinn og fólk verður oft
pirrað á því. Það gerir það samt að
verkum að fólk reynir enn meira á
sig og það er skemmtilegt að fylgj-
ast með þegar erfiðið fer að bera
árangur,“ segir hún.
Mismunandi ástæður liggja að
baki þess að fólk prófar íþrótt-
ina og nefnir Katla dæmi um einn
nemanda sem kom til hennar til að
vinna bug á lofthræðslu. „Sú hefur
tekið gríðarlegum framförum frá
því hún mætti í fyrsta tímann og
átti bágt með að halda sér nokkr-
um sentímetrum frá gólfinu,“ segir
hún. tinnaros@frettabladid.is
Hver sem er getur
lært loft fi mleika
Katla Þórarinsdóttir er vön því að sýna listir hangandi í silki úr loft inu. Nú er
hún farin að kenna öðrum að gera hið sama og hefur fengið góðar viðtökur.
HANGIR Í SILKI Í loftfimleikunum notar Katla sérstakt silki sem hún festir í loftið
og gerir svo ýmsar æfingar í. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Það eru fjögur ár síðan að Katla byrjaði að fikra sig áfram í loftfimleikum
og er nú mikið bókuð til að sýna listir sínar. „Oftast er ég fengin til að vera
með atriði á viðburðum en svo er ég stundum ráðin til að sveima um loftið
tímunum saman í mismunandi stellingum. Ég hef til dæmis hangið yfir bar
í veislum og einu sinni var ég hengd í stigapall í heimahúsi.
Erfiðasta, skemmtilegasta og magnaðasta sýningin sem Katla hefur tekið
þátt í hingað til var þegar hún tók þátt í tískusýningu fyrir elítukúnna Helly
Hansen, sem framleiðir útivistarfatnað. Sýningin var haldin í litlum bæ
miðsvegar í fjallinu Mont Blanc í Frakklandi. „Þar var ég að sýna undirfata-
línuna og mér var skellt upp í silkið á ullarnærfötunum einum fata í átta
stiga frosti. Það versta var samt að silkið mitt hafði frosið yfir daginn svo
þegar ég gerði æfingarnar skárust ísnálar alls staðar inn í mig. Þetta var því
virkilega vont en á sama tíma var þetta ein magnaðasta upplifun lífs míns,
að vera þarna í þunnu loftinu, nístingsfrosti og með mánann skínandi rétt
fyrir ofan mig. Það var alveg toppurinn,“ segir hún.
Sýndi í ullarnærfötum á Mont Blanc