Fréttablaðið - 03.06.2013, Qupperneq 6
3. júní 2013 MÁNUDAGUR| FRÉTTIR | 6
LÖGREGLUMÁL Lögregla stöðvaði
tæplega 1.900 einstaklinga vegna
aksturs undir áhrifum áfengis eða
fíkniefna í síðasta mánuði, þar af
fimmtung oftar en einu sinni. Þetta
kemur fram í afbrotatíðindum
Ríkis lögreglustjóra.
Þar segir jafnframt að talsvert
hærra hlutfall karla en kvenna
hafi verið tekið oftar en einu sinni
þennan mánuð fyrir slík brot. 22
prósent karlanna voru tekin oftar
en einu sinni, samanborið við níu
prósent kvenna.
Meðalaldur ökumannanna var
30 ár en miðgildið 26 ár. Þeir sem
brutu þrisvar sinnum eða oftar af
sér, samtals rúmlega 100 manns,
voru almennt nokkru yngri. Þar var
meðalaldurinn 27 ár og miðgildi 25.
Meðal annars sem fram kemur í
afbrotatíðindum er að hegningar-
lagabrotum fækkar töluvert frá
síðasta ári, ekki síst umferðar-
lagabrotum. Þá hefur innbrotum
og eignaspjöllum einnig fækkað
verulega síðasta ár miðað við árin
á undan. - þj
Tölur um akstur undir áhrifum úr afbrotatíðindum Ríkislögreglustjóra:
Karlar líklegri til ítrekunarbrota
STÚTUR UNDIR STÝRI Tölur frá lög-
reglu sýna að talsvert algengara var að
karlar væru teknir fyrir akstur undir
áhrifum en konur í síðasta mánuði.
AFGANISTAN, AP Uppreisnarher-
sveitir talibana réðust í gær á
tvær eftirlitsstöðvar í austur-
hluta Afganistan og felldu fjóra
lögreglumenn. Þrettán féllu úr
árásarliðinu og fjórir lögreglu-
menn særðust. Skothríðin stóð
klukkustundum saman en lauk
með því að talibanar hörfuðu.
Árásirnar eru liður í víð tækum
árásum talibana á ríkisreknar
varðstöðvar um allt landið og
talið er að þeir vilji með þeim
kanna styrk stjórnarhersins. - fsb
Árás talibana í Afganistan:
Fjórir lögreglu-
menn féllu
1. Hvað felst í jafnréttiskennslu leik-
skóla á Akureyri?
2. Hvað þarf að endurútreikna mörg
gengislán í Landsbankanum vegna
dóms fyrir helgi?
3. Hvað eru margir ráðherrar búnir að
ráða sér aðstoðarmann?
SVÖRIN
1. Viðsnúningur kynhlutverka í þekktum
ævintýrum. 2. Um þrjátíu þúsund. 3. Sjö
af níu.
MENNING „Þetta snýst í raun ekki
bara um tónlistarhús heldur
einnig um framtíð byggðar í litlu
þorpunum á Austur-Grænlandi,“
segir Hrafn Jökulsson, einn af
aðstandendum söfnunar vegna
bruna tónlistarhússins í Kulu-
suk í mars síðastliðnum. Um tíu
milljónir söfnuðust hér á landi
til málefnisins en um helgina
voru hljóðfæri og annar búnaður
afhentur við hátíðlega athöfn.
„Þetta hús var mannlífsmiðstöð
bæjarins, bæði fyrir börn og full-
orðna,“ bætir Hrafn við. „Þarna
hafði verið byggt upp tónlistar-
líf af miklum metnaði síðustu
misseri og meðal annars keypt
mikið af hljóðfærum. Þannig að
bruninn var mikið reiðarslag.“
Hrafn segir Hjört Smárason
hafa átt hugmyndina að söfnun-
inni og í framhaldinu hafi Kalak,
Vinafélag Íslands og Grænlands,
verið virkjað.
Söfnunin náði hámarki með
styrktartónleikum í Eldborg en
auk þess voru opnaðar söfnunar-
línur og almenningur um allt land
tók þátt.
„Það voru til dæmis styrktar-
tónleikar víða um land og leik-
skólabörn á Hellu söfnuðu dósum,
svo fátt eitt sé talið. Það má segja
að á undraskömmum tíma hafi
myndast hreyfing sem sýndi
vinar þel Íslendinga í garð Græn-
lendinga.“
Söfnunin gekk svo vel, að sögn
Hrafns, að aðstandendur hennar
sjá fram á að geta stutt vel við
endurbyggingu tónlistarhússins í
Kulusuk þannig að fram kvæmdir
geti hafist sem fyrst.
thorgils@frettabladid.is
Framtíð þorpanna á
Grænlandi er í húfi
Einn aðstandenda söfnunarinnar vegna bruna tónlistarhússins í Kulusuk segir
mikilvægi menningarstarfs vera mikið fyrir þorpin á austurströnd Grænlands.
Afrakstur söfnunarinnar, hljóðfæri og tækjabúnaður, var afhentur um helgina.
Í sömu ferð fengu
grunnskólabörn
í Kulusuk að gjöf
fyrstu skákbókina
sem gefin hefur
verið út á græn-
lensku. Skákfélagið
Hrókurinn stóð fyrir
gjöfinni, en auk þess
var efnt til fjölteflis
þar sem fríður hópur
barna reyndi sig við
Róbert Lagerman.
Siguringi Sigurjóns-
son skrifaði bókina.
Gáfu fyrsta grænlenska skákkverið
GÓÐAR GJAFIR Hér sjást Hrafn og Andrés Helgason frá Tónastöðinni opna kassa
utan af hljómborði en tónlistarmennirnir Anda Kuitse og Anton Sianiale standa hjá.
FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
HÁTÍÐARSTEMNING Börnin í grunnskólanum í Kulu-
suk gátu ekki leynt ánægju sinni með að hafa fengið
að gjöf fyrsta skákkverið sem gefið hefur verið út á
grænlensku. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
FÓLK Íbúar í Vesturbænum hafa
síðastliðin þrjú ár haldið sjó-
mannadaginn hátíðlegan með því
að setja upp flóamarkað í hverfinu.
Sigmundur Traustason, íbúi í
Vesturbænum og einn af skipu-
leggjendum markaðarins, segir
mikla stemmningu hafa myndast
í kringum markaðinn og að góð
þátttaka sé á meðal íbúa.
Sjálfur fékk hann hugmyndina að
markaðnum eftir að hafa flutt heim
frá Hollandi þar sem tíðkast að fólk
fari út á götur á Drottningar daginn
og selji gamla hluti.
„Það myndar skemmtilega
stemmningu í hverfum svo okkur
fannst tilvalið að gera eitthvað
svipað hér. Svo á maður alltaf
eitthvert drasl í geymslunni sem
er gott að losna við, “ segir Sig-
mundur léttur að lokum. - hó
Vesturbæjarflóamarkaðurinn haldinn á sjómannadaginn í þriðja sinn:
Mikil stemning og góð þátttaka
HÁTÍÐ Fjöldi fólks mætti og gerði góð kaup á Vesturbæjarflóamarkaðnum sem
haldinn var í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
VEISTU SVARIÐ?
heitir pottar
Auðbrekku 6 · Kópavogi · Sími 565 8899 · www.normx.is
Við hjá NormX höfum framleitt heita potta í yfir 30 ár fyrir
íslenskar aðstæður. Við bjóðum fjölda gerða og lita ásamt öllu
því sem tilheyrir til að koma sér upp glæsilegum heitum potti
á verði sem kemur skemmtilega á óvart.
GERÐU VERÐ-SAMANBURÐ
Fjölbreyttur tími þar sem bæði er dansað
ZUMBA Fitness og ZUMBA Toning.
Einföld og skemmtileg dansspor
Hefst 6. júní
Þri. og fim. kl. 16:30
Þjálfari: Hjördís Zebitz
Verð kr. 12.900.-
í form!