Fréttablaðið - 03.06.2013, Side 14
3. júní 2013 MÁNUDAGUR| TÍMAMÓT | 14TÍMAMÓT
Tilkynningar um merkis atburði, stórafmæli
og útfarir má senda á netfangið
timamot@frettabladid.is.
Auglýsingar á að senda á auglysingar@frettabladid.is
eða hringja í síma 512 5000.
Síðustu tveir geirfuglarnir í heimi voru
drepnir í Eldey 3. júní árið 1844. Geirfugl-
inn var algengur víða á Norður-Atlants-
hafi fram á 16. öld. Hann gat orðið 70
sentímetra hár og vó um fimm kíló. Hann
var ófleygur en góður sundfugl sem nærðist
einkum á fiski. Geirfuglinn var vinsæl bráð
sjómanna, enda var hann stór og kjötmikill
og auðveldur viðureignar.
Geirfuglinn var einnig veiddur vegna
fjaðranna sem voru notaðar í fatnað. Þegar
fór að fækka verulega í stofninum fóru
safnarar og náttúrugripasöfn að borga
vel fyrir fuglinn og markaði það endalok
tegundarinnar.
Lengst af lifði geirfuglinn við Ísland. Ein-
hverjum sögum fer af því að til fugla hafi
sést eftir árið 1844, allt fram á sjötta áratug
19. aldar, en óvíst er um áreiðanleika þeirra
sagna. Á Náttúrufræðistofnun Íslands er að
finna einn uppstoppaðan geirfugl. Hann var
keyptur á uppboði á Sotheby's í Lundúnum
árið 1971. Aðeins 80 uppstoppaðir fuglar
eru til í heiminum.
ÞETTA GERÐIST: 3. JÚNÍ 1844
Síðustu geirfuglarnir drepnir
„Þetta hafa verið alveg æðislegir
dagar. Ég hef varla undan að svara
símtölum frá fólki sem óskar mér til
hamingju og ég er alveg í skýjunum,“
segir Jórunn Sóley Björnsdóttir
nýstúdent. Jórunn Sóley lauk stúd-
entsprófi frá Fjölbrautar skólanum í
Breiðholti sem dúx skólans að loknu
starfsnámi á sjúkraliðabraut og
hlaut verðlaun fyrir bestan árangur
í ensku, íslensku og raungreinum.
Sjálfur segist dúxinn sáttastur
við árangurinn í raungreinum, enda
komi þær líklega til með að nýtast
vel í framtíðinni. „Auðvitað er mjög
gott að hafa góðan grunn í raun-
greinum því maður græðir alltaf á
því, en best var auðvitað að fá verð-
launin sem eru niðurfelling skóla-
gjalda á fyrsta misseri í raungreina-
námi í Há skólanum í Reykjavík.
Það munar rosalega miklu að fá það
misseri frítt,“ segir Jórunn Sóley,
sem hyggst þó ekki hefja háskóla-
nám strax í haust. „Ég ætla að taka
mér frí í eitt ár, vinna á hjúkrunar-
heimilinu Sóltúni og safna pening,
fara svo að ferðast og stefni að því að
fara í háskóla haustið 2014. Ég er svo-
lítið spennt fyrir líffræði eða ritlist í
Háskóla Íslands og hef áhuga á að ná
mér líka í kennararéttindi, en þetta
kemur allt í ljós.“
Jórunn Sóley mælir heils hugar
með starfsnámi sem góðum náms-
kosti. „Í sjúkraliðanáminu vann ég á
öldrunarstofnun, taugadeild, hjarta-
deild og geðdeild og þannig lærir
maður nokkuð vel á vinnumark aðinn,
hvernig er að vinna með mismunandi
fólki og þar fram eftir götunum, og
er því vel undirbúinn þegar náminu
lýkur. Mesti kosturinn við verklegt
nám er að upplifa það sem maður
lærir um í bókunum. Það er mjög
þroskandi,“ segir Jórunn Sóley, sem
flaug til Noregs nánast strax eftir
útskriftina og ætlar að dvelja þar
í rjómablíðu næstu vikuna. „Það
er rosalega gott að komast aðeins í
burtu og trappa sig niður í slökun.
Það hefur verið dálítið mikið að gera
síðustu vikurnar,“ segir dúxinn að
lokum. kjartan@frettabladid.is
Dúxinn í FB mælir
með starfsnáminu
Jórunn Sóley Björnsdóttir lauk stúdentsprófi frá Fjölbraut í Breiðholti sem dúx eft ir
starfs nám á sjúkraliðabraut. Hún ætlar að taka sér ársfrí frá námi.
DÚX Jórunn Sóley er ánægðust með að hafa fengið verðlaun fyrir bestan árangur í raungreinum í FB. MYND/GUNNHILDUR GUNNARSDÓTTIR
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
EGGERT BERGSSON
húsasmíðameistari,
Daltúni 36, Kópavogi,
lést á Landspítalanum við Hringbraut,
miðvikudaginn 29. maí. Útförin fer fram frá
Hjallakirkju í Kópavogi föstudaginn 7. júní
klukkan 13.00.
Ingunn Jónsdóttir
Bergdís I. Eggertsdóttir Grettir Sigurðarson
Pálína S. Eggertsdóttir Nikulás Kr. Jónsson
Sonja Eggertsdóttir
Hlynur Eggertsson
afa- og langafabörn.
Okkar ástkæri eiginmaður, faðir, tengdafaðir,
afi og langafi,
KRISTJÁN S. DAVÍÐSSON
listmálari,
Barðavogi 13, Reykjavík,
lést á Landspítalanum í Fossvogi að
morgni mánudagsins 27. maí síðastliðins.
Útförin fer fram frá Fríkirkjunni í Reykjavík
miðvikudaginn 5. júní klukkan 13.00.
Svanhildur Marta Björnsdóttir
Silja Kristjánsdóttir
Björn Davíð Kristjánsson Jórunn Þórey Magnúsdóttir
Valgerður Ólafsdóttir Kári Stefánsson
Ásthildur Sveinsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Útfararþjónustan ehf.
Stofnað 1990
Símar: 567 9110 & 893 8638
www.utfarir.is • runar@utfarir.is
Alhliða útfararþjónusta
Rúnar
Geirmundsson
Sigurður
Rúnarsson
Elís
Rúnarsson
Þorbergur
Þórðarson
Fjölbreytt úrval legsteina
Frí áletrun og uppsetning
Sjá nánar á granithollin.is sími 555 38 88
Bæjarhrauni 26 (á móti Fjarðarkaupum)
Bæjarhrauni 26 - 220 Hafnarfirði
www.granithollin.is
Sími 555 38 88
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir og amma,
AÐALHEIÐUR TORFADÓTTIR
Vogatungu 3, Kópavogi,
lést sunnudaginn 26. maí. Útför hennar fer
fram frá Kópavogskirkju þriðjudaginn 4. júní
næstkomandi klukkan 15.
Ragnar Ásmundsson
Tinna Ragnarsdóttir
Víðir Ragnarsson Auður Magnúsdóttir
og barnabörn.
Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu
okkur samúð og hlýhug við andlát og útför
RÓSMUNDAR GUÐLAUGS
STEFÁNSSONAR
múrara.
Sérstakar þakkir fær starfsfólk
Fjórðungssjúkrahúss Akureyrar fyrir góða
umönnun og umhyggju og hlýju í okkar garð.
Eva Kristjánsdóttir
Rúnar K. Rósmundsson
Kristjana Rósmundsdóttir Karl Sigtryggsson
Snjólaug Stefanía Rósmundsdóttir Vignir Þór Hallgrímsson
barnabörn og makar og langafabörn.
Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu
okkur samúð og hlýhug við andlát og útför
ástkærs eiginmanns míns, föður okkar,
tengdaföður og afa,
ÓLAFS GUNNARS GÍSLASONAR
skipstjóra,
Lóulandi 12, Garði.
Sigurbjörg Þorleifsdóttir
Arnar Berg Ólafsson Marie Andersson
Linda Björk Ólafsdóttir Davíð Eysteinn Sölvason
Bryndís Ólafsdóttir Jacky Pellerin
Gísli Guðjón Ólafsson Verna Kr. Friðfinnsdóttir
Sigurbjörg Ólafsdóttir Óskar G. Bragason
Sigurleif Ólafsdóttir Luke A. Bird
og barnabörn.