Fréttablaðið - 03.06.2013, Qupperneq 15
SÍÐUSTU HÁDEGISTÓNLEIKARNIR
Hádegistónleikar Íslensku óperunnar í vetur hafa verið
afar vinsælir. Á morgun klukkan 12.15 eru síðustu tón-
leikar vetrarins í Norðurljósasal Hörpu. Þá munu Bylgja Dís
Gunnars dóttir sópran og Jóhann Smári Sævarsson barítón
syngja kafla úr Toscu eftir Puccini og Évgení Ónegín eftir
Tsjaíkovskí. Píanóleik annast Antonía Hevesi.
HÖNNUN Á VEFNUM
„Markaðurinn er jafn
mikið fyrir fólk sem
vinnur verk sín í frí-
stundum og hönnuði
sem vilja koma sér á
framfæri,“ segir Dögg
Proppé Hugosdóttir.
MYND/ANTON
Snemma í vor opnaði nýr mark-aður á vefnum undir nafninu Ljónshjarta. Þar gefst ólíkum
hönnuðum kostur á að selja afurðir
sínar nánast milliliðalaust til viðskipta-
vina sinna. Stofnandi Ljónshjarta,
Dögg Proppé Hugosdóttir, segir alla
geta selt sköpunarverk sín á vefnum.
„Markaðurinn er jafn mikið fyrir fólk
sem vinnur verk sín í frístundum og
hönnuði sem vilja koma sér á framfæri.
Þar má finna myndlist, hönnun, hugvit
og handverk. Í dag er meðal annars
hægt að kaupa þar skartgripi, barna-
föt, grafík verk, gjafakort, húfur, hettur,
origami og óróa. Viðskiptavinur pantar
vörur hjá okkur en hönnuðurinn sendir
hana sjálfur sem myndar dýrmætt
samband milli þeirra. Við rukkum
hóflegt gjald fyrir umsýsluna, tökum
lítið stofngjald og síðan aðeins 10% af
söluverðinu ef varan selst. Það skiptir
mig miklu máli að stunda réttlát við-
skipti og að fégræðgi ráði ekki för. Ég
vil að Ljónshjarta lifi vel og lengi í stað
þess að blása upp eins og loftbóla og
springa síðan bara við minnsta tilefni.“
Dögg hefur verið dugleg að nýta sér
samfélagsmiðlana til að koma Ljóns-
hjarta á framfæri. „Verslunin er á slóð-
inni www.ljonshjarta.com og svo hef
ég nýtt Facebook sem hjálparmiðil,
ENGIN PLÖN UM
HEIMSYFIRRÁÐ
NETVERSLUN MEÐ HÖNNUN Vefverslunin Ljónshjarta býður íslenskum
hönnuðum að selja vörur sínar. Verslunin nýtir samfélagsmiðlana mikið til
kynningar á vörum sínum.
SÉRFRÆÐINGAR Í RAFGEYMUM
Mesta úrval landsins af rafgeymum í allar gerðir farartækja