Fréttablaðið - 03.06.2013, Page 48

Fréttablaðið - 03.06.2013, Page 48
Það klikkaði allt sem gat klikkað og það gekk líka eiginlega allt upp hjá þeim. Karen Knútsdóttir leikstjórnandi SPORT 3. júní 2013 MÁNUDAGUR OG GOTT EINFALT fyrir fjölskyld una í pk. 4 698kr.pk. Grillborgarar með brauði, 4 stk. fæst á www.kronan.is GJAF A KORT HANDBOLTI Ísland tapaði með 12 marka mun 29-17 fyrir Tékklandi í fyrri leik þjóðanna í umspili um laust sæti á heimsmeistaramóti kvenna, sem leikið verður í Serbíu í desember. Eins og tölurnar gefa til kynna þá gekk fátt upp. „Það gekk eigin- lega ekkert upp. Það klikkaði allt sem gat klikkað og það gekk líka eiginlega allt upp hjá þeim,“ sagði Karen Knútsdóttir, leikstjórnandi Íslands, eftir leikinn. „Við skutum illa á markvörð- inn og skutum mikið í stöng og slá. Ég veit ekki hvort við höfum ætlað okkur of mikið. Við lendum á vegg í byrjun og látum brjóta okkur aðeins niður. Við styttum sóknirnar og fáum hraðaupphlaup í bakið,“ sagði Karen. Lítið sem ekkert gekk í sókninni og ekki hjálpaði til að langflestum sóknum Tékklands lauk með góðu færi og eina hraðaupphlaupið sem Ísland fékk í leiknum var varið. „Það var allt lélegt sem gat verið lélegt. Vörnin var léleg, mark- varslan léleg og það vantaði sjálfs- traust í sóknina. Það var lítill hraði í sóknarleiknum. Við þurfum bara að ná að keyra upp hraðann. Við vorum of hægar í leiknum.“ Við getum unnið þær með tólf „Við vorum fullfljótar að hengja haus. Ég veit ekki hvort spennu- stigið hafi verið of hátt í byrjun. Hvar sem er litið var allt lélegt en um leið og trúin og baráttan kemur þá er hægt að bæta ótrú- lega margt en að fara með 12 mörk út, við erum með bakið upp við vegg,“ sagði Karen sem hefur þó enn fulla trú á því að Ísland geti tryggt sér sætið á HM. „Þær unnu okkur með tólf mörkum og við getum alveg unnið þær með tólf. Þetta er ekkert mikið betra lið en við,“ sagði Karen, sem kvíðir því ekki að þurfa að sitja langa myndbandsfundi þar sem farið verður ítarlega yfir leikinn. „Það verður örugglega erfitt að sitja þessa fundi sem eru fram undan en Einar (Jónsson) og Gústi (Ágúst Jóhannsson) eru snillingar í að leikgreina lið og ég hef enga trú á öðru en að við finnum lausn á þessu en þetta liggur mest hjá hverjum og einum manni. Við eigum mjög mikið inni,“ sagði Karen að lokum. - gmi Allt lélegt hjá okkur Ísland heldur til Tékklands með tólf marka tap á bakinu eft ir fyrri leik liðanna í umspilsrimmu þeirra um laust sæti á HM í Serbíu í lok árs. Stelpurnar okkar voru langt frá sínu besta og er vonin um þátttöku í fj órða stórmótinu í röð veik. ÍÞRÓTTIR Íslenska keppnissveitin sneri heim frá Lúxemborg með 87 verðlaun frá Smáþjóðaleikunum í farteskinu. Með í för var einnig fáni leikanna en Ólafur Rafns- son, forseti ÍSÍ, tók á móti honum á lokaathöfn leikanna um helgina. Leikarnir fara næst fram í Reykja- vík eftir tvö ár. Árangur Íslands er í takti við undanfarin ár. Liðið fékk næst- flest verðlaun þátttökuþjóðanna, 87 talsins, sem er nokkur bæting frá leikunum fyrir tveimur árum. Ísland fékk flest verðlaun allra á átta af fyrstu níu Smáþjóða- leikunum en síðast gerðist það árið 2001. Íslenska sundfólkið stóð sig hvað best í ár og fékk 39 verðlaun, þar af sextán gull. Markmiðið fyrir leikana hér heima eftir tvö ár verður að endur- heimta efsta sætið en Ísland hefur hlotið alls 414 gullverðlaun frá upphafi, fjórum minna en Kýp- verjar sem hafa staðið sig vel á leikunum síðasta áratug. - esá Sundfólkið fékk fl est verðlaun Ísland vann alls 87 verðlaun á Smáþjóðaleikunum í Lúxemborg, þar af 28 gull. Í STRANGRI GÆSLU Karen Kjartansdóttir, leikstjórnandi íslenska liðsins, var næstmarkahæst í íslenska liðinu en skoraði samt bara tvö mörk. Ísland skoraði aðeins níu mörk úr opnu spili í leiknum en átta úr vítaköstum. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM EYGLÓ Bætti Íslandsmet og mótsmet og vann fjölda verðlauna. FRÉTTABLAÐIÐ/ HANDBOLTI Þýska liðið Ham burg varð í gær Evrópu- meistari karla í handbolta eftir sigur á Barcelona, 30-29, í fram lengdum úrslitaleik Meistaradeildar Evrópu í Köln. Mikil spenna var í leiknum en markvörðurinn Johannes Bitter reyndist gulls ígildi á ögurstundu og átti hann stóran þátt í sigri sinna manna. Þetta er stærsti sigur í sögu félagsins en Hamburg hafði aldrei áður komist í úrslitaleik Meistaradeildarinnar. Þangað komust þeir með því að leggja Íslendingaliðið Kiel að velli á laugardaginn, 39-33. Kiel, sem Alfreð Gíslason þjálfar, tapaði svo fyrir Kielce frá Póllandi í bronsleiknum í gær. Þórir Ólafsson spilaði ekkert í gær en hann skoraði eitt mark er Kielce tapaði fyrir Barcelona í hinni undanúrslitaviðureign- inni á laugardaginn. Guðjón Valur Sigurðsson átti góða innkomu í lið Kiel í gær og skoraði fjögur mörk. Hann skoraði alls sjö mörk í leikjunum tveimur um helgina en Aron Pálmarsson eitt. - esá Hamburg kom, sá og sigraði í Köln MEISTARAR Leikmenn Hamburg fagna í gær. Gull Silfur Brons Sund 16 15 8 Frjálsar 6 10 9 Karfa 0 1 1 Fimleikar 5 0 8 Júdó 0 1 3 Skotfimi 1 2 1 Alls 28 29 30 Verðlaun Íslands

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.