Fréttablaðið - 03.06.2013, Blaðsíða 54

Fréttablaðið - 03.06.2013, Blaðsíða 54
3. júní 2013 MÁNUDAGUR| MENNING | 26 „Þetta hefur verið draumur hjá okkur í þó nokkurn tíma,“ segir Oddur Snær Magnússon, sem ásamt félögum sínum, Ívari Emils- syni og fatahönnuðinum Guðmundi Hallgrímssyni, sem er einnig þekktur sem Mundi, stofnar tölvu- leikjafyrirtæki í Berlín. Fyrirtækið heitir Klang en bæði Oddur og Ívar eiga að baki mörg ár hjá tölvuleikjarisanum CCP, sem forritari og leikjahönnuður. „Við vorum búnir að viða að okkur þeirri þekkingu og reynslu sem við þurftum og fannst einfaldlega núna vera kominn tími til að kýla á þetta,“ segir Oddur en þeir Ívar og Mundi eru þegar fluttir til Berl- ínar og sjálfur slæst hann í hópinn eftir helgi. „Þetta er allt að fara af stað núna og á byrjunarreit. Við erum að ákveða hvar við ætlum að búa og svo framvegis.“ Ástæðan fyrir því að Berlín varð fyrir valinu er einfaldlega að borgin heillaði. Mundi hefur hingað til verið betur þekktur sem fata- hönnuður en gera má ráð fyrir því að hann hafi eitthvað að gera með útlit tölvuleikja fyrirtækisins að gera. Oddur vill sem minnst segja um þau mál enn sem komið er. „Við erum eins og fullskipuð hljómsveit. Allir leggja sitt af mörkum og það eru spennandi tímar fram undan.“ - áp Stofna tölvuleikjafyrirtækið Klang í Berlín Oddur Snær stofnar tölvuleikjafyrirtæki ásamt félögum sínum Ívari og Munda fatahönnuði. ➜ Nafnið Klang er vísun í teiknimyndasögur og þýðir ein- faldlega læti. TIL BERLÍNAR Oddur Snær stofnar tölvu- leikja fyrirtæki ásamt Munda og Ívari. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON „Jú, viðbrögð fólks eru oft skrítin. Það kallar, bendir og tekur myndir. Mér þykir Íslendingar yfirleitt frekar rólegt fólk en svo er ekki þegar þeir sjá okkur,“ segir Davíð Þór Þorvaldsson, lögfræðingur og einn af stofnendum ferðaþjónustu- fyrirtækisins Sway Reykjavík. Fyrir tækið býður upp á leiðsögn um höfuðborgina á Segway-farar- tækjum og er hið fyrsta sinnar teg- undar í Reykjavík. Davíð Þór og eiginkona hans, Linda Björg Sigurjónsdóttir, reka Sway Reykjavík ásamt for eldrum hennar, Sigurlaugu Sigurpáls- dóttur og Sigurjóni P. Stefánssyni, og er fyrirtækið því sannkallað fjölskyldufyrirtæki. Davíð viður- kennir að það hafi kostað töluverða fjármuni að koma fyrirtækinu á koppinn, enda eru Segway-tækin dýr í kaupum. „Við erum með átta stykki, eitt fyrir leiðsögumann og sjö fyrir viðskiptavini. Leið sögnin fer yfirleitt fram á ensku en við stefnum á að bjóða upp á leiðsögn á öðrum tungumálum bráðlega.“ Hjónin tóku á móti fyrstu við- skiptavinum sínum í mars og leiðir Linda nú nokkra hópa á dag um hjólastíga borgarinnar. Spurður út í hugmyndina að fyrirtækinu segist Davíð hafa farið í svipaða ferð um Kaupmannahöfn í fyrrasumar. „Mér fannst þetta skemmtileg nýj- ung og hugmyndin að Sway Reykja- vík varð til í kjölfar ferðarinnar.“ Leiðin sem farin er liggur meðal annars um Gróttu, Ægisíðu, Öskju- hlíð og Tjörnina og tekur hver ferð um tvær klukkustundir. Fjórtán ára aldurstakmark er í ferðirnar en Davíð segir tækin engu hættulegri en venjuleg reiðhjól. „Ef eitthvað fer úrskeiðis stígur maður bara af tækinu,“ segir hann að lokum. sara@frettabladid.is Leiða ferðamenn um Reykjavík á Segway Hjónin Linda Sigurjónsdóttir og Davíð Þorvaldsson reka saman fyrirtækið Sway Reykjavík. Heimamenn reka upp stór augu þegar þeir mæta hópum á Segway. SKEMMTILEGUR FERÐAMÁTI Hjónin Linda Björg Sigurjónsdóttir og Davíð Þór Þorvaldsson reka saman ferðaþjónustufyrirtækið Sway Reykjavík. Þau bjóða upp á ferðir um höfuðborgina á Segway-farartækjum. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON Segway-farartækin komu fram á sjónarsviðið árið 2001 og eru hugarfóstur Bandaríkjamannsins Deans Kamen. Nafn tækisins er samsett úr tveimur orðum; segue, sem þýðir fyrirhafnarlaus breyting, og way, sem þýðir leið. Segway-ferðir eru vinsælar víða um heim og er meðal annars boðið upp á slíkar ferðir í Washington DC, Chicago, Kaupmannahöfn, París, Berlín, Búdapest, Vínarborg og nú Reykjavík. Ferðamátinn er umhverfisvænn og þægilegur og því skal engan undra að vinsældir slíkra ferða fari vaxandi. Umhverfisvænn ferðamáti „Ég hlusta rosalega mikið á Bob Dylan og hef gert síðan ég var unglingur. Hann er alltaf með svo mikla og góða texta. Gotta Serve Somebody er að mínu mati með hans betri lögum.“ Linda Mjöll Þorsteinsdóttir, eigandi Reykjavík Ink. MÁNUDAGSLAGIÐ Save the Children á Íslandi „Við erum búnar að vera þjakaðar af þessari kvenlægu hógværð og hræðslu um að vera ekki full- komnar alltof lengi. Nú ákváðum við samt að segja bless við það allt saman og leyfa okkur að skína,“ segir tónlistarkonan Jóhanna Vala Höskuldsdóttir, sem ásamt Sigríði Eiri Zophoníasardóttur hefur nú stofnað hljómsveitina Eva. Jóhanna Vala og Sigríður eru báðar samkynhneigðar og svo skemmtilega vill til að kærustur beggja heita Eva. Hljóm sveitin var því nefnd í höfuðið á kær- ustunum. „Við semjum rosalega mikið af ástar lögum til þeirra en við leggjum áherslu á að vera ein lægar, einfaldar og kósý og semjum alla textana frá hjartanu,“ segir Jóhanna Vala en þær stöllur semja öll sín lög sjálfar. Eva spilar á sínum fyrstu opnu tónleikum á Café Rosenberg í kvöld og er miðaverðið á tónleikana 1.000 krónur. „Svo verður líka hægt að borga inn á tónleikana með mat, þá helst mjólkurvörum,“ segir Jóhanna Vala en hún ætlar sér að verja júnímánuði án þess að eyða einni einustu krónu. Hún er þegar búin að greiða fyrir leiguna út mánuðinn og stefnir á að það verði öll hennar útgjöld. „Ég er af kyn- slóðinni sem fékk visa-kort í pósti 18 ára og hringir bara í bankann til að fá hærri yfirdrátt. Mig langar að sjá hversu háð neyslunni ég er og hvort ég komist af með minna en ég tel mig þurfa í dag. Ég er skíthrædd við þetta en veit að ég er aldrei að fara að svelta, í versta falli er fullt af fínum mat í gám- unum í Reykjavík,“ segir hún. - trs Lesbíur syngja til kærastanna Kærustur beggja heita Eva og hljómsveitin er nefnd í höfuðið á þeim. HLJÓMSVEITIN EVA Þær Jóhanna Vala og Sigríður Eir leggja áherslu á að vera einlægar, einfaldar og kósý. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.