Fréttablaðið - 04.09.2013, Blaðsíða 10

Fréttablaðið - 04.09.2013, Blaðsíða 10
4. september 2013 MIÐVIKUDAGUR| FRÉTTIR | 10 RENAULT MEGANE SALOON Nýskr. 07/08, ekinn 35 þús. km. bensín, sjálfskiptur. VERÐ kr. 1.550 þús. Rnr. 141645 HYUNDAI I30 CLASSIC Nýskr. 04/12, ekinn 40 þús. km. bensín, beinskiptur. VERÐ kr. 2.380 þús. Rnr. 141684 Allt að 80% lánamöguleikar Kletthálsi 11 -110 Reykjavík Sími 525 8000 - bilaland@bilaland.is www.bilaland.is www.facebook.com/bilaland.is RANGE ROVER SPORT SE Nýskr. 06/08, ekinn 77 þús. km. dísil, sjálfskiptur. Rnr. 270266 LEXUS RX350 EXE Nýskr. 07/08, ekinn 85 þús. km. bensín, sjálfskiptur. VERÐ kr. 5.490 þús. Rnr. 270552 SUBARU LEGACY SPORT WAGON Nýskr. 06/09, ekinn 62. þús. km. bensín, sjálfskiptur. VERÐ kr. 3.190 þús. Rnr. 280832 VW GOLF TRENDLINE Nýskr. 06/10, ekinn 63 þús. km. bensín, sjálfskiptur. VERÐ kr. 2.490 þús. Rnr.170332 PEUGEOT 508 ACTIVE Nýskr. 12/11, ekinn 16 þús. km. dísil, sjálfskiptur. TILBOÐ kr. 3.690 þús. Verð áður: 4.290 þús. kr. – Rnr.151576 Glæsilegt eintak kr. 7.590 þús. Tökum notaðan uppí notaðan! Gerðu frábær kaup! TILBOÐ! SÝRLAND Barack Obama Banda- ríkjaforseti ítrekaði í gær, á fundi sínum með þingmönnum, að hernaðaraðgerðir gegn Sýr- landsstjórn ættu að vera tak- markaðar og taka stuttan tíma. „Þetta er ekki Írak. Þetta er ekki Afganistan,“ sagði hann til að leggja áherslu á að Bandaríkin væru ekki að búa sig undir lang- varandi átök. Hins vegar gaf hann jafn- framt í skyn að hinar takmörk- uðu aðgerðir gætu orðið hluti af langtímaverkefni sem gæti með tímanum orðið til að styrkja stjórnarandstöðuna og skapa þann efnahagslega og pólitíska þrýsting sem þyrfti til að koma á breytingum og skapa stöðug- leika, ekki aðeins í Sýrlandi held- ur einnig í nágrannalöndunum. Með þessu virðist hann vera að höfða til harðlínusjónarmiða sumra repúblikana, sem telja tak- markaðar aðgerðir ekki líklegar til að skila neinum árangri. Eftir fundinn lýsti John Boehner, leiðtogi repúblikana í fulltrúadeildinni, yfir stuðn- ingi við áform forsetans: „Ég tel að félagar mínir ættu að styðja þetta ákall um aðgerðir,“ segir hann. B a nd a r í k j a þi n g ke mu r saman eftir helgina og ræðir þá hugsan legar aðgerðir gegn Sýrlandsstjórn. Varnarmála- nefnd öldunga deildir þingsins er hins vegar byrjuð að undirbúa umræðurnar og kallaði í gær þá John Kerry utanríkisráðherra og Chuck Hagel varnarmála- ráðherra á sinn fund. Einnig var Jack Dempsey, yfirmaður banda- ríska herráðsins, yfirheyrður af nefndinni. Francois Hollande Frakk- landsforseti lýsti því yfir í gær að Frakkar myndu ekki standa einir að neinum hernaði á hendur Sýrlandi. Hann myndi bíða eftir niðurstöðu Bandaríkjaþings, en franska þingið kemur saman í dag til að ræða þetta mál. Breska þingið hefur hafnað því að Bretar taki þátt í slíkum hernaði og þýska stjórnin hefur sömuleiðis lýst því yfir að þátt- taka komi ekki til greina. Helle Thorning-Schmidt, for- sætisráðherra Danmerkur, sagði hins vegar í gær að Dönum bæri ótvíræð skylda til að styðja hern- aðaraðgerðir gegn Assad Sýr- landsforseta og stjórnarher hans. Málið verður til umræðu á leiðtogafundi 20 stærstu iðn- ríkja heims, sem haldinn verður í Rússlandi á fimmtudag og föstu- dag. Þar verður reynt að komast að sameiginlegri niðurstöðu. gudsteinn@frettabladid.is Obama gefur lengri tíma íhlutun í skyn Bandaríkjaforseti hefur fengið stuðning leiðtoga beggja flokka á þingi við hernað gegn Sýrlandsstjórn en á þó engan veginn vísan stuðning nægilega margra þing- manna. Varnarmálanefnd Bandaríkjaþings yfirheyrði John Kerry og Chuck Hagel. Á FUNDI MEÐ BANDARÍSKUM ÞINGMÖNNUM Í GÆR Barack Obama verður á faraldsfæti næstu daga, kemur til Svíþjóðar í dag og heldur síðan áfram til Péturs- borgar í Rússlandi á leiðtogafund 20 stærstu iðnríkja heims. FRÉTTABLAÐIÐ/AP „Ja, það er alveg ljóst að menn verða að leggja fyrir okkur trúverðug gögn. Það vill enginn að það endur- taki sig að menn fari í einhverjar slíkar æfingar án haldbærra gagna,“ segir Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra, spurður hvort Íslendingar séu eins og fleiri brenndir af þeim upplýsingum sem Bretar og Bandaríkjamenn lögðu fram fyrir innrásina í Írak árið 2003 en reyndust vera á sandi byggðar. „En um leið er skelfilegt að hugsa til þess að einhver komist upp með að beita efnavopnum og alþjóða- samfélagið sé ekki í stakk búið til að taka á því. Það er alveg ómöguleg staða,“ segir Gunnar Bragi, sem í gær sat fund utanríkisráðherra Norðurlandaríkjanna og Eystrasaltsríkjanna í Visby í Svíþjóð. Hann segir að Ísland hafi stutt tillögu um að öryggis- ráð Sameinuðu þjóðanna vísaði málefnum Sýrlands til Alþjóðasakamáladómstólsins. Hann trúi því að enn sé ekki fullreynt með að öryggisráðið geti komist að sam- eiginlegri niðurstöðu um aðgerðir gegn Sýrlandsstjórn. „Við lifum ennþá í þeirri von að niðurstaða rann- sóknar Sameinuðu þjóðanna á þessari beitingu efnavopna og mögulega þær sannanir sem Bandaríkja- menn virðast búa yfir, og Bretar og Frakkar og fleiri hafa sagt að séu fullnægjandi, geri það að verkum að öryggisráðið geti tekið afstöðu í málinu. Ég vil ekkert útiloka það.“ Í kvöld mun Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætis ráðherra, ásamt forsætisráðherrum Svíþjóðar, Noregs, Danmerkur og Finnlands, eiga fund með Barack Obama, forseta Bandaríkjanna, í Stokkhólmi þar sem þessi mál verða eflaust rædd. Menn verða að leggja fyrir okkur trúverðug gögn GUNNAR BRAGI SVEINSSON UTANRÍKISRÁÐHERRA Telur ekki enn fullreynt með að öryggisráð Sameinuðu þjóðanna komist að niðurstöðu. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN DÓMSMÁL Ríkissaksóknari hefur gefið út ákæru á hendur Þór Óliver Gunnlaugssyni, sem áður hét Þórhallur Ölver Gunnlaugsson, fyrir hótanir í garð lögreglumanna sem höfðu afskipti af honum þegar hann var staddur í annarlegu ástandi inni á bensínstöð. Hann er jafnframt ákærður fyrir að hafa lítilræði af fíkniefnum í fórum sínum. Þór Óliver, þá Þórhallur Ölver, fékk sextán ára fangelsisdóm árið 2000 fyrir að bana Agnari W. Agnarssyni. Árið 2004 fékk hann svo tveggja og hálfs árs fangelsisdóm fyrir skjalafals og að reyna að svíkja fé út úr dánarbúi Agnars. Árið 1995 hafði Þórhallur fengið einn þyngsta dóm Íslandssögunnar fyrir fjársvik, þrjú ár í máli sem kennt var við fyrirtækið Vatnsberann. Síðan hefur hann fengið fjölda styttri dóma. Hann strauk af Litla-Hrauni í júlí 2011 en var veitt reynslulausn árið eftir. Þá átti hann 2.075 daga eftir óafplánaða, sem eru tæp sex ár. Hann hefur nú hafið afplánun eftirstöðva þessara eldri dóma. - sh Þór Óliver fékk reynslulausn í fyrra en er nú kominn aftur í afplánun: Ákærður fyrir að hóta lögreglu ÞÓR ÓLIVER GUNNLAUGSSON Þetta er ekki Írak. Þetta er ekki Afganistan. Barack Obama Bandaríkjaforseti

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.