Fréttablaðið - 04.09.2013, Blaðsíða 18
FÓLK|FERÐIR
FÓLK ER KYNNINGARBLAÐ sem býður aug-
lýsendum að kynna vörur og þjónustu í formi
viðtala og umfjallana ásamt hefðbundnum auglýs-
ingum. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega.
Útgefandi: 365 miðlar | Ábyrgðarmaður: Jón Laufdal
Sölumenn: Bryndís Hauksdóttir, bryndis@365.is, s. 512 5434
Sverrir Birgir Sverrisson, sverrirbs@365.is, s. 512 5432 Kolbeinn
Kolbeinsson, kolli@365.is, s. 512-5447 | Hönnun: Silja Ástþórsdóttir
Sumir gestir eru velkomnari en aðrir eins og sjá
má á nýlegum lista yfir tíu bestu ferðamannaþjóðir
heims. Þær eiga sameiginlegt að vera hvorki uppi-
vöðslusamar, ókurteisar né óskiljanlegar á heims-
flakki sínu.
■ Kanadabúar þykja einstaklega kurteisir, heiðarlegir
og einlægir ferðalangar. Þú þekkir þá úr vegna kan-
adíska fánans sem prýðir farangur þeirra og fatnað.
■ Englendingar tala góða ensku og vinskapur þeirra
endist ævilangt sé þeim boðinn bjór. Þeir eru auð-
þekkjanlegir vegna náföls litarhafts sökum sólar-
leysi í heimalandinu.
■ Kínverjar eru vel undirbúnir ferðalangar, tilbúnir í
að prófa hvaðeina úr eldhúsi gesta sinna og ósparir
á eyðslufé. Þeir þekkjast úr þegar þeir ferðast í
hópum með fararstjóra sér við hönd.
■ Ástralir þykja með eindæmum geðprútt og afslapp-
að ferðafólk. Þeir þekkjast af sumarléttum ferða-
klæðnaði og sandölum, sama hvernig viðrar.
■ Ítalir kunna öðrum þjóðum betur að lifa lífinu með
stæl, gera vel við sig og skemmta sér. Þeir þekkjast
af fínni merkjavöru og fara ekki einu sinni ótilhafðir
út með ruslið.
■ Japanir eru ævintýragjarnir á ferðalögum. Þú þekk-
ir þá úr vegna myndavéla og annars tæknibúnaðar
sem alltaf er á lofti.
■ Svíar eru stundum nefndir Kaliforníubúar Evrópu.
Þeir eru kurteisir, sólbrúnir og með flottan kropp
en stundum dálítið stífir og þráir. Þeir eru hávaxnir
og þekkjast vegna ljósa hársins, heilbrigðs útlits og
yfirvegunar.
■ Bandaríkjamenn eru áhugasamir ferðamenn,
næmir fyrir hvers kyns menningu og gefa þjórfé
fyrir allt og ekkert. Þeir þekkjast vegna klæðaburð-
arins og margir klæðast eins og atvinnugolfarar á
ferðalögum.
■ Þjóðverjar eru útivistarfólk af Guðs náð og forvitnir
um menningu annarra þjóða. Þeir eru sannir heims-
borgarar, kurteisir, vinalegir og snjallir.
■ Chilebúar fæðast með flökkueðli og hafa jafn mikla
ánægju af ferðalaginu sjálfu og áfangastaðnum. Þeir
bera af vegna örlætis, jákvæðni og góðs skaps.
HEIMSINS BESTA FERÐAFÓLK
FERÐAMENN VIÐ SKAFTAFELLSJÖKUL MYND/GVA
Yfirleitt vinn ég ekki nytjahluti en í þetta sinn sýni ég skálar. Ég vinn eingöngu í tré, annaðhvort birki
eða lerki, alltaf íslenskan við,“ segir Lára
Gunnarsdóttir myndlistarmaður.
Lára opnaði sýninguna Hannað í tré
á Skörinni um liðna helgi. Sýningin er
hluti af sýningaröðinni Matur er manns
gaman, sem stendur yfir í Gallerý Leir 7 á
Stykkishólmi.
Lára tálgar skálarnar út í höndunum
og olíuber þær með matvænni olíu. Hún
segir gott að tálga úr birkinu, það sé hart
og hafi fallegan hljóm.
„Það klingir fallega þegar skálunum
er slegið saman, birkið hefur ekki holan
hljóm. Margir nota léttan við sem auðvelt
er að tálga úr en mér finnst íslenska birk-
ið rétta efnið til að vinna úr. En það þarf
beittari áhöld og meira átak. Eins miðast
stærð skálanna við stærð íslensku trjánna
svo þær eru ekki stórar. En það má fella
fleiri borð saman til að búa til stærri
hluti. Það eru ekki margir að vinna úr ís-
lensku birki, það nennir þessu kannski
enginn nema ég,“ segir Lára hlæjandi.
„Þó er að aukast að smíðað sé úr ís-
lensku lerki, enda er lerkið fínn smíðavið-
ur. Það er með innbyggðri viðarvörn svo
í raun þarf ekki að bera á það. Ég held að
íslenska birkið verði vinsælt, til dæmis í
útihúsgögn.“
Sýning Láru stendur til 23. septem-
ber. Nánar má forvitnast um verk Láru á
vefsíðunni, www.smavinir.is. ■ heida@365.is
NOTAR EINUNGIS
ÍSLENSKAN VIÐ
HÖNNUN Lára Gunnarsdóttir tálgar muni úr íslensku lerki og birki.
Nú stendur yfir sýning hennar Hannað í tré á Skörinni í Aðalstræti 10.
SKÁLAR Sýning Láru
Gunnarsdóttur mynd-
listarmanns, Hannað í
tré, stendur yfir á Skör-
inni til 23. september.
MYND/GVA
GÓÐUR SMÍÐAVIÐUR
Lára vinnur eingöngu úr
íslensku lerki og birki.
Stærð skálanna mið-
ast við stærð íslensku
trjánna.
TÁLGAR OG
SKER Nánar má
forvitnast um
verk Láru á www.
smavinir.is.
MYND/LÁRA
GUNNARSDÓTTIR
F
ÍT
O
N
/
S
ÍA
40% afsláttur af bílaþvotti
að utan alla daga.
O
N
/
S
ÍA
AFSLÁTTUR
40
Byrjaðu strax að spara. Skráðu kortin ykkar
núna á www.stod2.is/vild
35% afsláttur af matseðli
ef verslað er fyrir 2.000 kr.
eða meira.
AFSLÁTTUR35
Save the Children á Íslandi