Fréttablaðið - 05.11.2013, Blaðsíða 4
5. nóvember 2013 ÞRIÐJUDAGUR| FRÉTTIR | 4
LEIÐRÉTT
Villa slæddist í súlurit sem fylgdi frétt
um könnun á fylgi flokkanna í Frétta-
blaðinu í gær. Eins og fram kom í frétt-
inni mældist fylgi Bjartrar framtíðar
13,7 prósent, ekki 19,7 eins og fram
kom í súluritinu.
7.736 heimili fengu fjár-hagsaðstoð frá
sveitarfélögum landsins á síðasta
ári.
Heimilum sem þáðu slíkar greiðslur
hefur fjölgað um 0,3 prósent frá
árinu áður.
ALMENNINGSÍÞRÓTTIR Snjófram-
leiðsla hófst í Hlíðarfjalli á Akur-
eyri á sunnudag. „Snjóbyssurnar
tíu í Hlíðarfjalli eru í gangi nán-
ast allan sólarhringinn. Einnig
hefur talsvert snjóað þar efra en
þó vantar enn herslumuninn svo
hægt verði að opna skíðabrekk-
urnar,“ segir í frétt á vef Akur-
eyrarbæjar.
Útlit er fyrir að frost haldist
næstu daga í Eyjafirði. „Gefið
hefur verið út að brekkurnar
verði opnaðar laugardaginn 30.
nóvember en Guðmundur Karl
Jónsson, forstöðumaður í Hlíðar-
fjalli, segir ekki ólíklegt að það
geti orðið nokkru fyrr ef frostið
helst næstu daga og vikur.“ - gar
Styttist í opnun Hlíðarfjalls:
Snjóbyssurnar í
gang í Eyjafirði
HLÍÐARFJALL Stefnt er að opnun í
nóvember. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
DÓMSMÁL Hreiðar Már Sigurðsson, fyrrver-
andi forstjóri Kaupþings, svaraði spurning-
um Björns Þorvaldssonar saksóknara í rúma
tvo tíma þegar aðalmeðferð málsins hófst í
Hérað sdómi Reykjavíkur í gær. Hreiðar neit-
ar sök í málinu og fullyrðir að ekkert óeðli-
legt hafi verið við viðskipti bankans og sjeiks-
ins Mohammads Al-Thani á haustmánuðum
2008. Hið sama sagði Sigurður Einarsson,
fyrrverandi stjórnarformaður bankans, sem
og Magnús Guðmundsson, fyrrverandi yfir-
maður Kaupþings í Lúxemborg.
Sérstakur saksóknari hefur nánast frá
hruni rannsakað kaup Al Thani á rétt ríflega
fimm prósenta hlut í Kaupþingi í lok septem-
ber 2008. Ákæra á hendur fjórum fyrrverandi
stjórnendum bankans, Sigurði Einarssyni,
Hreiðari Má Sigurðssyni, Magnús Guðmunds-
syni og Ólafi Ólafssyni, var gefin út í vor þar
sem þeir eru sakaðir, meðal annars, um mark-
aðsmisnotkun, umboðssvik, hylmingu og pen-
ingaþvætti.
Eitt af því sem Björn Þorvaldsson saksókn-
ari þráspurði þá Sigurð, Hreiðar og Magnús
um var hvort fréttatilkynning um kaup Al
Thani hafi ekki verið vandlega samin með
það fyrir augum að telja fólki trú um að hér
væri um að ræða aukningu á lausafé bankans
þegar hann í raun fjármagnaði kaupin sjálfur
að öllu leyti.
Í tilkynningunni segir að eignarhaldsfélag
Al Thani, Q Iceland Holding, hafi fjárfest í
Kaupþingi fyrir 26 milljarða króna. Ekki er
tekið fram hvernig staðið er að fjármögnun
kaupanna né heldur er minnst á að helming-
ur upphæðarinnar komi í gegnum nýstofnað
fjárfestingafélag sem var að fullu í eigu Ólafs
Ólafssonar, eins af stærstu einstöku hlut-
höfunum í Kaupþingi. Í gegnum félag Ólafs
runnu þrettán milljarðar, lánaðir af Kaup-
þingi, til eignarhaldsfélags Al Thani. Hina 13
milljarðana lánaði Kaupþing Al Thani milli-
liðalaust.
„Mér finnst þessi fréttatilkynning fullkom-
lega eðlileg. Þar er allt satt og rétt sem fram
kemur,“ sagði Sigurður Einarsson við skýrslu-
tökuna í Héraðsdómi í gær. Hreiðar neitaði
einnig fyrir dómi í gær að tilkynningin væri
misvísandi. Aldrei hafi verið reynt að halda
því leyndu að Kaupþing fjármagnaði kaupin.
Þá sagði Hreiðar að Al Thani hafi tekið raun-
verulega áhættu með kaupunum. Hann hafi
skrifað undir sjálfskuldarábyrgð upp á 12,5
milljarða króna. Það hafi á endanum leitt til
þess að hann greiddi slitastjórn bankans um
þrjá og hálfan milljarð króna í upphafi árs.
Að auki hafi frekara samstarf Kaupþings og
Al Thani verið fyrirhugað. Það hafi því ekki
verið rangt að kalla Al Thani fjárfesti sem
væri að koma með hlutafé inn í starfsemi
Kaupþings.
hjortur@frettabladid.is
Sagðir hafa slegið ryki í augu
fólks með sölunni til Al-Thani
Saksóknari í Al Thani-málinu segir að fréttatilkynning eftir kaup sjeiksins Mohammads Al Thani á 5 prósenta
hlut í Kaupþingi sýni að slá átti ryki í augu markaðarins. Allt satt í tilkynningunni, segja sakborningarnir.
■ Skýrslutakan af Hreiðari Má tók þrjá klukkutíma.
■ Reiknað með að um 50 vitni verði leidd fyrir
dómara á meðan á réttarhöldunum stendur.
■ Skjöl sem sérstakur saksóknari lagði fram í dómi
við upphaf málarekstursins eru um sjö þúsund
blaðsíður.
■ Rannsókn sérstaks saksóknara á málinu hefur
staðið yfir frá miðju ári 2009.
■ Hreiðar Már og Magnús Guðmundsson voru
handteknir vegna málsins í maí 2011 og voru í
kjölfarið úrskurðaðir í tólf og sjö daga gæslu-
varðhald.
Dagur 1 í Al Thani málinu
ÞÉTTSKIPAÐUR
BEKKURINN
Það var hvert sæti
skipað í dómssal
101 í Héraðsdómi
Reykjavíkur í gær.
Ekki aðeins hjá
sakborningum og
verjendum þeirra,
heldur var fjöldi
áhorfenda mætt-
ur til að fylgjast
með réttarhöld-
unum.
FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
VÍSINDI Hátt í hundrað vísindamenn
fylgdust með umræðu um framtíð
rannsóknarsjóða og nýsköpunar á
Alþingi í gær. Hleypa þurfti fólki
inn í hollum þar sem aðeins er pláss
fyrir þrjátíu manns á þingpöllunum.
Í ályktun 147 vísindamanna til
fjárlaganefndar Alþingis er lýst
yfir áhyggjum vegna niðurskurðar
í fjárframlögum til vísindastarfa á
næsta ári. Rannsóknarsjóður Rann-
ís fær ekki það viðbótarfjármagn
sem gert var ráð fyrir í fjárfestinga-
áætlun síðustu ríkisstjórnar. Erna
Magnúsdóttir, sérfræðingur við
læknadeild Háskóla Íslands, segir
að niðurskurðurinn bitni verst á
ungum vísindamönnum.
„Það skiptir miklu máli fyrir
vísindasamfélagið á Íslandi að það
verði fallið frá þessum niðurskurði.
Rannís greiðir laun ungra vísinda-
manna og hátt í fjörutíu störf gætu
tapast vegna þessa,“ segir Erna.
Svandís Svavarsdóttir, þingmað-
ur VG, sagði í umræðu um málið á
Alþingi að örvænting væri byrjuð
að grípa um sig meðal vísindafólks.
„Það sér fram á minnkandi fram-
lag í rannsóknarsjóðina næstu þrjú
árin. Ungt fólk mun flýja land.
Okkar öflugustu framhaldsnemar
og okkar öflugustu nýdoktorar,“
sagði Svandís.
Illugi Gunnarsson menntamála-
ráðherra sagði nauðsynlegt að draga
úr útgjöldum til að koma í veg fyrir
áframhaldandi hallarekstur ríkis-
sjóðs. Áætlað fjárframlag til Rann-
ís á næsta ári væri hins vegar hátt
borið saman við framlög síðustu
ára. - hks
Óttast að 40 störf geti tapast hér á landi vegna niðurskurðar til vísindastarfa:
Vísindamenn fylltu þingpalla á Alþingi
FYLGDUST GRANNT MEÐ Svandís
Svavarsdóttir, þingkona VG, var upphafs-
maður umræðunnar í gær.
AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS– AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Guðmundur Steinsson gudmundur@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynur@365.is, Laila Awad laila@365.is,
Sigríður Dagný Sigurbjörnsdóttir sigridurdagny@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is FÓLK/LÍFIÐ/SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5402: Atli Bergmann atli.bergmann@365.is, Bryndís Hauksdóttir bryndis@365.is, Ívar Örn Hansen ivarorn@365.is, Kolbeinn Kolbeinsson kolli@365.is, Sverrir Birgir Sverrisson sverrirbs@365.is
FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Sólveig Gísladóttir solveig@365.is og Vera Einarsdóttir vera@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is
SVONA ERUM VIÐ
Soff ía Sveinsdóttir
veðurfréttamaður
Veðurspá
Fimmtudagur
Víða 10-15 m/s, hægari inn til
landsins.
VETRARLEGT Í dag og næstu daga blæs hressilega á landinu, það verður austanátt í
fyrstu en síðan NA-átt. Rigning eða slydda S-til í dag en á morgun og fimmtudag má
búast við snjókomu eða éljum norðan- og austanlands.
3°
10
m/s
3°
12
m/s
4°
15
m/s
6°
18
m/s
Á morgun
Strekkingur eða allhvasst á annesjum.
Gildistími korta er um hádegi
4°
-1°
3°
0°
-1°
Alicante
Aþena
Basel
27°
20°
16°
Berlín
Billund
Frankfurt
10°
10°
8°
Friedrichshafen
Gautaborg
Kaupmannahöfn
9°
10°
10°
Las Palmas
London
Mallorca
25°
12°
23°
New York
Orlando
Ósló
11°
27°
6°
París
San Francisco
Stokkhólmur
13°
15°
7°
4°
9
m/s
6°
13
m/s
3°
6
m/s
3°
11
m/s
2°
5
m/s
3°
4
m/s
-2°
5
m/s
3°
1°
2°
3°
1°MIKIÐ ÚRVAL
VARAHLUTA
REYKJAVÍK, Bíldshöfða 9, Funahöfða 13
KÓPAVOGUR, Smiðjuvegi 4a, græn gata
HAFNARFJÖRÐUR, Dalshrauni 17
REYKJANESBÆR, Krossmóa 4, SELFOSS, Hrísmýri 7
AKUREYRI, Furuvöllum 15, EGILSSTAÐIR, Lyngás 13
www.bilanaust.is Gæði, reynsla og gott verð!
3 ÁRA
ÁBYRGÐ
Sími: 535 9000
UMHVERFISMÁL
Áætlun fyrir Hverfjall
Umhverfisstofnun hefur auglýst tillögu
um verndar- og stjórnunaráætlun fyrir
náttúruvættið Hverfjall í Mývatns-
sveit og óskar eftir athugasemdum.
Í áætluninni er fjallað um nauðsyn-
legar verndaraðgerðir, landvörslu og
landnýtingu, s.s. aðgengi ferðamanna
að svæðinu, stígagerð og uppbyggingu
þjónustumannvirkja.