Fréttablaðið - 05.11.2013, Qupperneq 10
5. nóvember 2013 ÞRIÐJUDAGUR| FRÉTTIR | 10
SVÍÞJÓÐ Jan Björklund, menntamála-
ráðherra Svíþjóðar, hyggst leggja til
breytingar á lögum þannig að sameigin-
legt inntökukerfi verði fyrir sjálfstæða
grunnskóla og grunnskóla sveitarfélag-
anna.
Björklund varar samtímis við því að
slíkt komi ekki í veg fyrir að sjálfstæðir
skólar, sem eru sjálfseignarstofnanir og
eiga að vera opnir öllum, hafni ákveðnum
nemendum.
Í kjölfar afhjúpana sjónvarpsfrétta-
manna um að sjálfstæðir skólar hafni
erfiðum nemendum eða nemendum sem
glíma við námsörðugleika hafa margir
krafist breytinga á biðraðakerfinu.
Björklund vill að kerfið verði gagn-
særra en efast um að lagabreyting leysi
vandann. Í viðtali á vef Dagens Nyheter
telur hann að flokkunin fari fram fyrir
inntöku þegar foreldrarnir hringja til að
kanna hvort pláss sé í skólanum.
Ráðherrann segir að eftirlitsstofnun
með málefnum skólanna verði að fylgj-
ast betur með þessum málum. Auk þess
sé mikilvægt að foreldrar láti vita þegar
þeim finnst að barni þeirra hafi verið
hafnað. - ibs
Sameiginlegt inntökukerfi fyrir almenna og sjálfstæða grunnskóla boðað af ráðherrra í Svíþjóð:
Breyting gagnast ekki erfiðum nemendum
JAN BJÖRKLUND menntamálaráðherra Svíþjóðar.
NORDICPHOTOS/AFP
www.tskoli.is
Aukin þekking
og færni
Skráning og nánari upplýsingar:
www.tskoli.is/namskeid | endurmenntun@tskoli.is
Sími 514 9602
Fjölbreytt úrval námskeiða við allra hæfi.
Hönnun og handverk
Bókagerð – handgerðar bækur
Búnar eru til bækur úr mismunandi efnum,
áferð, formi og litum. Hefst 19. nóvember.
Höggvið í stein
Kennd eru undirstöðuatriði í almennri steinsmíði
og höggverki. Þátttakendur hanna og smíða
hlut úr steini. Hefst 5. nóvember.
Taulitun og tauþrykk
Kenndar eru ýmsar aðferðir við að lita
og þrykkja á efni. Hefst 9. nóvember.
Málmur og tré
Húsgagnaviðgerðir
Hefst 26. nóvember.
Málmsuða
Grunnur. Hefst 2. desember.
Framhald. Hefst 11. nóvember.
Skipstjórn
ECDIS
ECDIS rafrænt sjókorta- og upplýsingakerfi.
Hefst 9. desember.
Hásetafræðsla
Hásetafræðsla – aðstoðarmaður í brú.
Hefst 11. nóvember.
IMDG námskeið
Meðferð og flutningur á hættulegum farmi
um borð í þurrlestarskipum.
Hefst 9. desember.
Smáskipanámskeið
Kennt í fjarnámi.
Opið fyrir skráningu til 8. nóvember.
Skemmtibátanámskeið
Kennt í fjarnámi.
Opið fyrir skráningu til 8. nóvember.
Tölvur og
upplýsingatækni
App fyrir iPhone|iPad
Lærðu að búa til þitt eigið app.
Helgarnámskeið 23. og 24. nóvember.
Hljóðsetning
Farið í hljóðsetningu fyrir myndbönd og leiki,
helstu aðferðir við upptökur og eftirvinnslu
á hljóði. Haldið 9. nóvember.
Nuke eftirvinnsla
Farið yfir hvernig nota má Nuke í eftirvinnslu
á kvikmyndum. Hefst 14. nóvember.
jQuery
Viltu setja meira líf á vefsíðuna þína með
jQuery? Lærðu grunninn á þessu námskeiði.
Hefst 18. nóvember.
Photoshop fyrir byrjendur
Farið yfir helstu tól forritsins, maska og leiðir
til að lagfæra og litaleiðrétta myndir.
Hefst 9. nóvember.
Revit Architecture
Grunnnámskeið. Hefst 2. desember.
Revit lagnir
Farið í notkun á Revit MEP sem er notað
til að setja upp lagnateikningar við
mannvirkjahönnun. Hefst 9. desember.
SketchUp þrívíddarteikning
Hefst 19. nóvember.
Tölvuleikjagerð í þrívídd
Unity 3D forritið kynnt og búinn til
tölvuleikur. Hefst 2. desember.
MENNTAMÁL Rétt er að skoða hvort
rukka eigi íslenska námsmenn, sem
taka námslán til að fjármagna nám
erlendis en skila sér ekki heim að
námi loknu, um markaðsvexti af
námslánunum, að mati formanns
fjárlaganefndar Alþingis.
„Það er ekki óeðlilegt að þeir sem
ekki skila sér heim að námi loknu
borgi einhvers konar álag,“ segir
Vigdís Hauksdóttir, þingmaður
Framsóknarflokksins og formaður
fjárlaganefndar Alþingis.
Hún segir þetta vangaveltur á
þessu stigi, en hefur lagt fram fyr-
irspurn á Alþingi þar sem mennta-
málaráðherra er spurður hvort
hann telji rétt að námsmenn erlend-
is greiði markaðsvexti af námslán-
unum skili þeir sér ekki heim.
Vigdís á sæti í hagræðingarhópi
ríkisstjórnarinnar, sem skilaði
nýverið til ráðherranefndar, sem
skipaði hópinn, tillögum sínum. Vig-
dís vill ekki segja til um hvort þær
hugmyndir sem hún reifar hér séu í
niðurstöðum hagræðingarhópsins.
Rétt sé að bíða þess að ríkisstjórnin
geri tillögurnar opinberar.
„Þetta eru mínar vangaveltur.
Allir sjóðirnir okkar eru tómir og
við þurfum að forgangsraða gríðar-
lega í ríkisrekstrinum af því það var
ekki gert af síðustu ríkisstjórn. Við
í hagræðingarhópnum höfum velt
við hverjum einasta steini í ríkis-
rekstrinum til að finna einhverja
hagræðingarmöguleika. Þá er það
ekki óeðlilegt að þeir sem ekki skila
sér heim borgi einhvers konar álag,
enda vextir af námslánunum langt
undir markaðsvöxtum.“
Hún segir marga aðra möguleika
á að breyta námslánakerfinu. Til
dæmis megi hugsa sér að umbuna
þeim sem ljúki námi á stuttum tíma
með því að breyta hluta lánanna í
styrk.
„Okkur líst mjög illa á þessar
hugmyndir, sem gætu haft alvarleg-
ar afleiðingar í för með sér,“ segir
Hjördís Jónsdóttir, framkvæmda-
stjóri Sambands íslenskra náms-
manna erlendis (SÍNE).
Hún bendir á að það gæti orðið
til þess að draga úr fjölda fólks
sem sæki sér menntun erlendis ef
það geti átt það á hættu að þurfa að
borga háa vexti af lánunum.
„Maður veit aldrei hvar tæki-
færin liggja,“ segir Hjördís. Náms-
menn sem ætli sér að flytja til ann-
ars lands til að læra geti óvænt
fengið starfstilboð þar.
„Það getur komið okkur á Íslandi
til góða ef fólk vinnur í nokkur ár
erlendis og kemur svo heim reynsl-
unni ríkara. Fólk veit ekki fyrir-
fram hvar það endar,“ segir Hjör-
dís.
Hún telur að stjórnvöld ættu
frekar að einbeita sér að því að
skapa aðstæður hér á landi sem
dragi námsmenn heim, í stað þess
að velta fyrir sér kvöðum á þá sem
kjósi að búa áfram utan landstein-
anna. brjann@frettabladid.is
Skoðar álag
á námsmenn
sem ílengjast
Eðlilegt er að skoða hvort námsmenn sem taka náms-
lán í námi erlendis en skila sér ekki heim að námi
loknu ættu að borga markaðsvexti af láninu, segir for-
maður fjárlaganefndar. Getur haft alvarlegar afleið-
ingar í för með sér, segir framkvæmdastjóri SÍNE.
NÁMSMENN Fjölmargir Íslendingar eru í námi erlendis, til dæmis við Karolinska
háskólasjúkrahúsið í Stokkhólmi. NORDICPHOTOS/AFP
DANMÖRK Fimmtugur maður er
nú í haldi lögreglunnar á Suður-
Jótlandi fyrir að skjóta sautján
ára pilt í höfuðið með öflugum
loftriffli í Esbjerg á sunnudag.
DR segir frá þessu.
Pilturinn, sem liggur nú þungt
haldinn á sjúkrahúsi með hagl í
heilanum, var á skellinöðru þegar
skotið var á hann og var því fyrst
talið að um umferðaróhapp væri
að ræða. Annað kom þó á daginn
og maðurinn hefur gengist við
því að hafa skotið á piltinn. - þj
Maður í haldi í Danmörku:
Skaut táning
með loftbyssu
Það er
ekki óeðlilegt
að þeir sem
ekki skila sér
heim að námi
loknu borgi
einhvers-
konar álag.
Vigdís Hauksdóttir,
formaður fjárlaganefndar Alþingis
Save the Children á Íslandi