Fréttablaðið - 05.11.2013, Page 16

Fréttablaðið - 05.11.2013, Page 16
5. nóvember 2013 ÞRIÐJUDAGUR| SKOÐUN | 16 Fyrir liggur forhönn- un að nýjum og glæsileg- um Landspítala, háskóla- sjúkrahúsi. Um hönnunina má lesa á: http://www.nyr- landspitali.is/nyrlandspi- tali/islenska/forsida/. Gert er ráð fyrir að sjúkrahúsið rísi í áföngum og leysi af hólmi stóran hluta starf- semi núverandi Landspít- ala sem er á 17 stöðum í 100 byggingum á höfuð- borgarsvæðinu. Ekki þarf því að bíða – forhönnun fyrsta áfanga er lokið og unnt að hefjast handa um leið og Alþingi hefur tekið um það ákvörðun. Í kjölfar hrunsins 2008 var horfið frá smíði nýs háskóla- sjúkrahúss við Hringbraut. Verk- efninu var síðan hleypt af stokk- unum á nýjan leik í nóvember 2009 með viljayfirlýsingu for- sætisráðherra, fjármálaráðherra, heilbrigðisráðherra og lífeyris- sjóða um fjármögnun verkefnis- ins. Árið 2010 voru samþykkt lög nr. 64/2010 um byggingu nýs Landspítala við Hringbraut í Reykjavík. Opinbert hlutafélag, Nýr Landspítali ohf. – NLSH, tók til starfa í samræmi við viljayfir- lýsinguna og nefnd lög í júlí sama ár. Félagið hefur að markmiði að bjóða út byggingu nýs Landspít- ala og er heimilt að gera samn- inga til að ná markmiðum sínum á sem hagkvæmastan hátt. Þó er ekki heimilt að hefja fram- kvæmdir að loknu útboði fyrr en Alþingi hefur heimilað þær með lögum. Í vor ákvað Alþingi að falla frá ofangreindri leiguleið. Var lögum frá 2010 því breytt þannig að verkefnið er nú hefð- bundin ríkisframkvæmd. For- gangsröðun Alþingis, er varðar fjárheimildir í fjárlögum, ræður því framkvæmdahraða og er því óvíst hvenær unnt er að hefjast handa. Hagkvæm framkvæmd Í grein sem Alma D. Möller, yfir- læknir á gjörgæsludeild Landspítala við Hring- braut, skrifaði í sumar segir að í skýrslu norsks ráðgjafafyrirtækis sé áætlað, að rekstrar- legur ávinningur verði um 2,6 milljarðar á ári. Hagræðing til ársins 2050 sé að nettónúvirði 2,3 milljarðar sem þýðir að hagræðing af bygg- ingunni gerir betur en að greiða upp bygging- arkostnað. Væri ekkert byggt, er niðurstaða samsvar- andi núvirðisreiknings neikvæð um 25,3 milljarða. Það er því mun hagstæðara að byggja nýtt en að hafast ekki að og er þá hagur sjúklinganna og starfs- manna ekki reiknaður til fjár. Samkvæmt nýrri áætlun er kostn- aður við byggingu fyrsta áfanga 48 milljarðar og kostnaður vegna tækjakaupa, endurnýjunar eldra húsnæðis og fjármögnunar um 36 milljarðar. Gert er ráð fyrir að byggingartími fyrsta áfanga sé 5 ár. Nettónúvirði reksturs Land- spítala án nýbyggingar er hins- vegar verulega neikvætt. Í greininni bendir Alma D. Möller á færa leið til að fjár- magna byggingu nýs Landspít- ala: að íslenskir lífeyrissjóðir láni fé til framkvæmdanna. Fjárfest- ingaþörf lífeyrissjóðanna sé áætl- uð um 150 milljarðar á ári og fjár- festingatækifæri séu fábreytt. Sjóðina skorti heimild til að fjár- festa í erlendum eignum og trygg- ir fjárfestingakostir séu fáir innanlands. „Líklegt er að þátt- taka í fjármögnun slíkrar fram- kvæmdar myndi tryggja ávöxt- un sem væri í takt við þá áhættu sem þessari fjárfestingu er sam- fara. Þar að auki er þetta sam- félagsleg fjárfesting og til hags- bóta fyrir umbjóðendur þeirra, lífeyrisþega,“ segir í grein Ölmu D. Möller. Og hún heldur áfram: „Fyrir liggur endurskoðun fjárreiðulaga. Er rætt um að þeim verði breytt þannig að ríkisstofn- anir í A-hluta færi fullt rekstrar- og eignabókhald. Ef fasteignir LSH yrðu settar í sérstakt fast- eignafélag, t.d. NLSH ohf., þá gæti Landspítalinn fengið bygg- inguna til afnota gegn leigugjaldi en byggingin yrði færð til eign- ar hjá fasteignafélaginu. Þá gæti t.d. NLSH ohf. tekjufært leigu frá Landspítalanum sem dygði til að greiða niður fjármagnskostnað- inn á skilgreindum notkunartíma eignanna. Slíkar lagabreytingar myndu gera leiguleiðina mögu- lega.“ Undir þessi orð má taka. Nú hafa tíu þingmenn lagt fram þingsályktunartillögu um bygg- ingu nýs Landspítala þar sem segir að Alþingi álykti að fela rík- isstjórninni að ljúka eins fljótt og verða má undirbúningi byggingar nýs Landspítala við Hringbraut í Reykjavík og hefja byggingu hans strax að því loknu. Nýr Landspít- ali ohf. eða ríkissjóður fái heim- ild til að taka lán fyrir byggingar- kostnaði, hvort heldur er beint hjá traustum lánveitendum eða óbeint með milligöngu ríkisins. Heilsugæsla frá vöggu til grafar er einn af hornsteinum samfélags- ins. Traustur Landspítali sem mið- stöð lækninga og rannsókna er undirstaða heilsugæslu í landinu. Alþingi þarf nú að sameinast um smíði nýs spítala og gera lífeyr- issjóðum kleift að lána til fram- kvæmdanna. Leiðin er greið og bygging nýs Landspítala við Hringbraut þolir enga bið. Nýr Landspítali STRAX Ríkisstjórn Íslands vekur náttúruverndarfólki ugg. Ýmislegt sem gert var til varnar náttúru landsins á síðustu árum hefur verið tekið til baka. Fólk minn- ist með hryllingi mestu umhverfisspjalla Íslands- sögunnar, Kárahnjúka- virkjunar, sem ákveðin voru með offorsi þvert á ráðleggingar fagfólks og almenna skynsemi. Sú afstaða og vanþekk- ing stjórnmálamanna sem birtist í þeirri framkvæmd hræðir. Þar fóru framsóknarmenn fremstir, studdir einstaklingum úr öðrum flokkum. Hins vegar, ef skoðuð er saga náttúruverndar á Íslandi, sést ólík afstaða fyrri tíðar fram- sóknarmanna og þeirra sem réðu við Kárahnjúka. Á síðustu öld voru framsóknarmenn lykilmenn þegar tekin voru þrjú stærstu framfara- skref Íslendinga til verndar nátt- úru landsins, Jónas frá Hriflu við stofnun Þingvallaþjóðgarðs, Eysteinn Jónsson þegar sett voru almenn náttúruverndarlög og Steingrímur Hermannsson var for- sætisráðherra þegar umhverfis- ráðuneytið var stofnað. Atvinnugreinar og auðlindir Ferðaþjónusta er hinn nýi, stóri atvinnuvegur Íslendinga. Hún byggir á ákveðinni nýtingu nátt- úruauðæfa þjóðarinnar, rétt eins og landbúnaður, fiskveiðar og orkuiðnaður en hefur það fram yfir þær að hún getur verið sjálf- bær og það er eingöngu undir okkur sjálfum komið hvort svo er. Landbúnaður hefur lengst af gengið á gróðurauðlind landsins og deilt hefur verið um, bæði innan- lands og við aðrar þjóðir, hvort fiskveiðar Íslend- inga séu sjálfbærar eða ekki. Orkuiðnaðurinn er að stórum hluta ósjálfbær því að virkjanir hafa stutt- an líftíma og verða ónýtar á fáum áratugum. Virkjan- ir og háspennulínur spilla jafnframt þeirri auðlind sem ferðaþjónustan bygg- ir á, sérstakri og fagurri náttúru og lítt röskuðum víðernum. Íslensk náttúra er ekki aðeins grunnur ferðaþjónustu, hún er fyrst og fremst mikilvæg þeim sem á landinu lifa. Nú óttast margir fólks- og atgervisflótta, að Íslendingar sem verið hafa í námi erlendis komi ekki heim og að vel menntað fólk leiti til útlanda þar sem gefast betri kjör en hérlend- is. Árum saman hefur fólk þó látið sig hafa það að koma heim og búa hér, fjölskyldan dregur, upprun- inn og menningin en ekki er vafi á því að þar á íslensk náttúra líka stóran hlut. Það felast í því veruleg lífsgæði að lifa á Íslandi, hafa tök á því að upplifa íslenska náttúru í daglegu lífi, ganga á fjöll, rölta með árbökkum og ströndum og njóta ómældrar víðáttu íslenskra heiðalanda allt árið um kring. Nú óttast margir skerðingu á þessum lífsgæðum. Nauðsynlegt skref til framsóknar Mörg verðmætustu svæði lands- ins eru í hættu vegna vanrækslu, óstjórnar og þess öngþveitis sem ríkir í stjórnskipan verndarsvæða og ferðamannastaða á Íslandi. Þetta eru friðlýst svæði eins og þjóðgarðar, friðlönd eða náttúru- vætti, ýmis önnur verndarsvæði í umsjón ríkisins, s.s. skógræktar-, landgræðslu- og fornminjasvæði og loks ýmsar þjóðlendur fyrst og fremst á hálendi landsins. Þessi svæði eru undir stjórn fjölmargra ólíkra stofnana sem falla undir nokkur ráðuneyti. Skrefið sem nú þarf að stíga til náttúruvernd- ar og framfara er að samræma stjórn þeirra undir einni stofnun. Meginhlutverk slíkrar stofnunar væri að standa vörð um þau gæði landsins sem hafa vísindalegt eða fagurfræðilegt gildi og veita fólki, innlendu sem erlendu, nauðsyn- lega útivist, upplifun og hughrif. Stofnunin væri fjármögnuð með komugjaldi sem allir ferðamenn til landsins greiddu. Munu nútíma framsóknarmenn nýta tækifærið og snúa til fyrri viðhorfa eða halda áfram á óheilla- braut síðustu ára? Fjárlagafrum- varp gefur ekki tilefni til bjartsýni en þar eru skornar niður fjárveit- ingar til uppbyggingar á náttúru- verndarsvæðum. Þingið tekur nú frumvarpið til umræðu og vænt- anlega er langt í samþykkt þess. Talað er um breytingar á stjórn- kerfinu, tilfærslur og fækkun stofnana og enn hefur sérstakur umhverfisráðherra ekki tekið til starfa. Nú er tækifæri til og rík þörf á að taka enn eitt framsóknar- skref sem komandi kynslóðir gætu minnst sem heillaskrefs til náttúru verndar. Framsóknarskref Samtök um sorg og sorgarviðbrögð NÝ DÖGUN www.nydogun. is www.sorg. is sorg@sorg. is Hulda Guðmundsdóttir guðfræðingur og Brynhildur Hall sjúkraliði ræða um makamissi á samveru Nýrrar dögunar fimmtudagskvöldið 7. nóvember kl. 20:00 í safnaðarheimili Háteigskirkju. Aðgangur er ókeypis og opinn öllum. Stuðningshópur hefst í kjölfarið. Allir velkomnir. HJARTNÆM OG AFHJÚPANDI Metsölulisti Eymundsson Handbækur / fræðibækur / ævisögur 23.10.13 - 29.10.13 1. Samband Jóhönnu Sigurðardóttur og Jónínu Leósdóttur fór lengi leynt en endaði í heimspressunni. Við Jóhanna er áhrifamikil ástarsaga þeirra – drama- tísk sigursaga um aflið sem býr í ástinni. HEILBRIGÐIS- MÁL Tryggvi Gíslason formaður Holl- vinasamtaka líknarþjónustu ➜ Heilsugæsla frá vöggu til grafar er einn af horn- steinum samfélagsins. Traustur Landspítali sem miðstöð lækninga og rann- sókna er undirstaða heilsu- gæslu í landinu. Alþingi þarf nú að sameinast um smíði nýs spítala og gera líf- eyrissjóðum kleift að lána til framkvæmdanna. ➜ Munu nútíma fram- sóknarmenn nýta tækifærið og snúa til fyrri viðhorfa eða halda áfram á óheillabraut síðustu ára? NÁTTÚRUVERND Sigrún Helgadóttir líf- og umhverfi s- fræðingur AF NETINU Ósýnilega höndin í vösum skattgreiðenda Ósjálfbær orkuframleiðsla á Hellisheiði fyrir álver hefur orðið til þess að afköst jarðhitavirkjunarinnar minnka um sex megavött á ári að meðaltali. Af þeim sökum þarf Orkuveita Reykjavíkur nú að leggja gufulögn frá Hverahlíð að Hellisheiðarvirkjun til að afla þeirrar orku sem hún þarf til að geta staðið við samninga við álver Norðuráls á Grundartanga. Áætlað er að það kosti fyrirtækið 4,3 milljarða króna og geri orkusölu til stóriðju enn óarðbærari. Þar sem verð á orku til Norðuráls er fastbundið í samningum er líklegt að þessi nýju útgjöld leiði til verri afkomu Orkuveitu Reykjavíkur, fyrirtækis í almannaeigu, eða enn frekari hækkana á orkuverði til almennings. http://www.dv.is/blogg Guðmundur Hörður Guðmundsson

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.