Fréttablaðið - 05.11.2013, Side 20
FRÉTTABLAÐIÐ
BÍLAR2 5. nóvember 2013 ÞRIÐJUDAGUR
www.visir.is/bilar
BÍLAR Umsjón blaðsins Finnur Thorlacius
finnurth@365.is
Útgáfufélag
365 miðlar ehf.
Skaftahlíð 24,
105 Reykjavík,
sími 512 5000
Auglýsingar
Sverrir Birgir Sverrisson
sverrirbirgir@365.is
Sími 5125432
Hönnun
Silja Ástþórsdóttir
siljaa@frettabladid.is
2,0 L DÍSILVÉL, 218 HESTÖFL
Fjórhjóladrif
Eyðsla 5,1 l/100 km
í bl. akstri
Mengun 133 g/km CO2
Hröðun 7,0 sek.
Hámarkshraði 240 km/klst
Verð 10.190.000 kr.
Umboð BL
BMW 525D
XDRIVE
BMW 525D XDRIVE
Finnur Thorlacius reynsluekur
B
MW 5-línan hefur
verið í framleiðslu í
41 ár og hefur selst í
6,6 milljónum eintaka.
Fimm-línan er næst-
söluhæst hjá BMW,
á eftir 3-línunni, en
framleiðsla 5-línunnar skilar
engu að síður um 50% hagnaðar
allra seldra bíla BMW. Núverandi
5-lína er af sjöttu kynslóð, hún
kom fyrst á markað árið 2011.
Einhvern veginn hefur þessi bíll,
sama af hvaða kynslóð, verið ein-
staklega fallegur og á það sann-
arlega einnig við nú. Hann er
líka af svo réttri stærð og hentar
mörgum, frá barnmörgum fjöl-
skyldum til forstjóra. Það á ekki
alveg eins vel við BMW 3, sem
er eiginlega of smár sem góður
ferðabíll og með of skert far-
þegarými, eða BMW 7, sem er
hreinræktuð limósína af ríflegri
stærðinni. Það er því ekki nema
von að þessi bíll renni út eins og
heitar lummur um allan heim og
sé sá söluhæsti í sínum stærðar-
flokki lúxusbíla á flestum mark-
aðssvæðum.
Uppáhaldið í heimalandinu
Sá bíll sem nú er í boði er af 2014
árgerð. Hann hefur fengið örlitla
andlitslyftingu, sem ekki hefur
þó haft afgerandi áhrif á útlit
bílsins. Framendinn hefur breyst
hvað mest og þá helst kringum
þokuljósin sem nú eru umlukin
krómi. Framluktirnar hafa einn-
ig breyst lítillega og útblásturs-
rörin. Bíllinn hefur fengið nettari
afturljós sem í sjón gerir hann
breiðari og voldugri að aftan.
Breytingarnar að innan eru enn
þá minni og vart hægt að greina
muninn milli kynslóða. Það er
ekkert skrítið að BMW 5-línan sé
vinsæll bíll, því fyrir utan fallegt
útlit er hann einstaklega góður
akstursbíll. Hann stendur oftast
uppi sem sigurvegari í saman-
burðarprófunum í sínum stærð-
arflokki og hann hefur verið val-
inn uppáhaldsbíll Þjóðverja í föð-
urlandi sínu. Þessar staðreyndir
segja nær alla söguna, en BMW
5 hefur ávallt verið meðal allra
bestu akstursbíla og það sannað-
ist í reynsluakstrinum.
Einstakir aksturseiginleikar
Aksturseiginleikar þessa bíls
verða seint lofaðir um of og
akstri hans er hægt að líkja við
að svífa um á silkiskýi. Svo mikið
er hægt að leggja á hann við akst-
ur að seint verður farið að mörk-
um getu hans og mikla dirfsku
þarf til þess. Hann svínligg-
ur svo í beygjum að leitun er að
öðru eins. Samt er þetta vel stór
fjölskyldubíll og ekki er dóna-
legt að bjóða fjórum farþegum
með í för. Reynsluakstursbílinn
var eins og svo vel hentar við ís-
lenskar aðstæður, fjórhjóladrif-
inn eins og nafnið bendir til, þ.e.
xDrive. Vélin í reynsluaksturs-
bílnum var 2,0 lítra dugleg dísi-
vél, 218 hestöfl sem hentar þess-
um bíl einkar vel. Hún togar vel
á breiðu snúningssviði þó svo
upptaka hans við lægsta snún-
ing sé ekki svo áhrifarík. Þegar
vélin fær hins vegar að snúast að-
eins meira tekur fjörið við og frá-
bær skipting bílsins skilar afl-
inu hressilega. Gripi hjólanna er
dreift með hátæknivæddu fjór-
hjóladrifi þar sem mest átak fer
til þess hjóls sem mestu gripi nær
og því er þessi bíll frábær á hálu
STENDUR UNDIR LOFINU
BMW 5 hefur ávallt verið meðal allra bestu akstursbíla og
það sannaðist í reynsluakstrinum. Stendur oftast uppi sem
sigurvegari í samanburðarprófunum í sínum stærðarflokki.
BMW 5-línan hefur verið valin uppáhaldsbíll Þjóðverja trekk í trekk.
BMW 525 er með allra bestu akstursbílum og ekki skaðar útlitið heldur.