Fréttablaðið - 05.11.2013, Side 40
FRÉTTIR
AF FÓLKI
Mest lesið
1 „Ekki tala niður til mín,“ sagði Bubbi
Morthens
2 Eldri hjólreiðamaður varð fyrir
bifreið
3 Át hundinn sem bjargaði lífi hans
4 Sagði frá staðsetningu Bin Laden
árið 2003
5 Gefa bíómiða um hábjartan dag á
leik Íslands og Króatíu
VIÐ SEGJUM FRÉTTIR · SMÁAUGLÝSINGASÍMINN OG SKIPTIBORÐ: 512 5000 DREIFING: dreifing@postdreifing.is
EF BLAÐIÐ BERST EKKI: 512 5060
VÍSIR
RITSTJÓRN 512 5313, Fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is AUGLÝSINGADEILD auglysingar@frettabladid.is PRENTUN Ísafoldarprentsmiðja
FRÉTTIR VIÐSKIPTI ÍÞRÓTTIR LÍFIÐ UMRÆÐAN
Meiri Vísir.
Þú færð Blaðberann þinn í
Skaftahlíð 24 alla virka daga
frá kl. 9-17.
...góðar fréttir fyrir umhverfið
Blaðberinn...
Blaðberinn
bíður þín
Sporðdrekaprinsessa fædd
Leikkonan Lilja Nótt Þórarins-
dóttir eignaðist sitt fyrsta barn
á sunnudaginn með sínum heitt-
elskaða, Ólafi Gauta Guðmundssyni.
Eignuðust þau tólf marka stúlku, eða
„sporðdrekaprinsessu“, eins og Lilja
Nótt orðar það svo skemmtilega á
Facebook-síðu sinni. Lilja Nótt státar
af farsælum leiklistarferli og hefur
meðal annars leikið í kvikmyndum á
borð við 101 Reykja-
vík, Strákarnir
okkar og Reykjavík
Rotterdam.
- lkg
Fljúgandi veðurfræðingur
„Að sjálfsögðu var ég stressuð en
þetta var gaman,“ sagði Birta Líf
Kristinsdóttir veðurfræðingur. Hún
birtist í fyrsta skiptið á skjánum hjá
RÚV í gær og spáði áframhaldandi
stormi með suðurströndinni.
Það var í október sem komið var
að máli við Birtu Líf og hún beðin
um að verða einn af veðurfrétta-
mönnum sjónvarpsins.
„Ég var búin að fá nokkra æfinga-
tíma áður en ég birtist á skjánum.
Hér eftir kem ég til með að taka
fimm til sex vaktir í sjónvarpinu í
hverjum mánuði,“ segir Birta Líf sem
er búin að vinna á Veðurstofu Íslands
í tvö ár. Hún hefur líka ódrepandi
áhuga á flugi og er með atvinnuflug-
mannspróf. Í sumar var hún að vinna
hjá Icelandair.
„Ég hef mikinn áhuga
bæði á flugi og veðri.
Þetta tengist vel
saman því það er
gott að hafa góða
þekkingu á veðrinu
þegar maður er að
fljúga.“
- jme