Fréttablaðið - 04.01.2014, Blaðsíða 24
4. janúar 2014 LAUGARDAGUR| HELGIN | 24
Fatahönnuðurinn Vala Steinsdóttir er uppalin í Norðurbæ Hafnarfjarð-ar. Þar kynntist hún æskuástinni, Þorsteini Þorsteinssyni, aðeins
14 ára gömul, en tók saman við
hann sjö árum síðar. Þau giftu
sig sumarið 2006, eru nú búsett
í Hollandi og eiga saman tvær
dætur. Vala er fatahönnuður að
mennt en starfar nú fyrir einn
stærsta íþróttavöruframleiðanda
í heimi, Nike. Hún vinnur við
hönnun og kynningu á keppnis-
fatnaði og öðrum íþróttabúnaði
fyrir heimsfræg fótboltafélög.
Vala kíkti til landsins yfir jólin
og ég tók við hana spjall um lífið
í Hollandi. Hún var tiltölulega
nýkomin heim þegar ég náði af
henni tali og hafði haft í nógu að
snúast.
„Þegar maður býr svona
erlendis þá kemur maður ekkert
heim til að slappa af, það er alltaf
svo mikið um að vera. Maður þarf
auðvitað að hitta alla, og ekki bara
einu sinni heldur að minnsta kosti
tvisvar. En það er auðvitað rosa-
lega gaman.“
Þú ert búsett í Hollandi um
þessar mundir ekki satt?
„Jú, ég bý rétt fyrir utan
Amsterdam þar sem höfuðstöðvar
Nike í Evrópu eru staðsettar.
Bærinn sem ég bý í heitir
Hilversum. Þetta er í rauninni
bara eins og lítið Nike-þorp, hér
er fótboltavöllur, útitennisvellir,
blakvellir og allt til alls. Hér
gengur allt út á íþróttir.“
Því meira sem maður lærir, því
meira vill maður læra
En þú ert lærður fatahönnuður
ekki satt, hvar lærðirðu?
„Ég lærði tískuhönnun og þróun
fyrir tískuiðnaðinn í London
College of Fashion. Ég valdi þá
braut því þar fékk ég kennslu
í öllum tískuiðnaðinum eins og
hann leggur sig. Ég hafði alltaf
lagt áherslu á fatahönnun en
það rann upp fyrir mér að mig
langaði að læra allan bransann.
Mín reynsla er sú að því meira
sem maður lærir, því meira vill
maður læra.“
Hvað tók svo við hjá þér að
námi loknu?
„Þriðja árið í náminu var starfs-
reynsluár. Þá var meiningin að
maður ynni í ár og skilaði skýrslu
um það sem maður hafði verið að
vinna á árinu að því loknu. Ég var
þá að vinna hjá sprotafyrirtæki
í London sem var að gera rosa-
lega spennandi hluti. Þau höfðu
þá nýverið fundið upp efni sem
þau vissu ekki hvernig þau ættu
að nota, og höfðu samband við
skólann til að finna einhvern sem
væri líklegur til að finna áhuga-
verðar leiðir til að nýta efnið í
flíkur. Ég var ráðin þangað, og
á innan við ári vorum við komin
í framleiðslu. Það var dýrmæt
reynsla fyrir mig, að fá að taka
þátt í uppbyggingu fyrirtækisins
alveg frá grunni.“
Valin úr 800 manna úrtaki
Ertu svo ráðin til Nike strax að
námi loknu?
„Nei, ég vann fyrst um sinn sem
hönnuður í London. Nike hafði svo
samband við skólann þar sem þau
voru að leita að fólki í prógramm
sem var einskonar þjálfun í verk-
efnastjórnun. Hugmyndin var
að ráða inn fólk sem kæmi til
með að gegna stjórnunarstöðum
hjá fyrirtækinu í framtíðinni.
Leitin að rétta fólkinu í starfið
fór fram um allan heim og upp-
haflega voru tekin viðtöl við um
það bil 800 manns. Ég var beðin
um að koma í viðtalið og hugsaði
bara: Hvers vegna ekki? Ég leit
fyrst og fremst á það sem góða
reynslu, að komast í svona viðtal.
Hópurinn var þrengdur niður í 60
manns sem boðið var að koma til
Hollands og kynna sig. Það fóru
fram pallborðsumræður sem tóku
rosalega á. Þá sátu fyrir framan
mig fjórar manneskjur og spurðu
um það bil erfiðustu spurninga
sem hægt er að ímynda sér. Í kjöl-
farið tók við hópverkefni en þá var
okkur skipt í hópa og okkur skipað
að leysa krefjandi verkefni á sem
stystum tíma. Á meðan stóð Nike-
fólkið í kringum okkur og dæmdi.
Að lokum var valinn tólf manna
hópur, en hann saman stóð af fólki
alls staðar að úr heiminum. Þetta
er alveg frábær hópur, allir með
mismunandi styrkleika og saman
myndum við góða heild.“
Hvað er langt síðan þú hófst
störf fyrir fyrirtækið?
„Það eru sjö ár síðan ég byrjaði.
Síðan þá hef ég komið ótrúlega
víða við og unnið fjölbreytta
vinnu. Ég hef fengið yfirsýn og
reynslu á flestum sviðum fyrir-
tækisins, í markaðsmálum,
hönnun, í söludeildinni og
víðar. Þetta byrjaði með svona
þjálfunar ferli og svo fékk ég stöð-
una. Þetta var ótrúlega skemmti-
legt ferli og þessi reynsla gerir
mér kleift að geta hoppað inn í
hvaða aðstæður sem er og tekist
á við krefjandi verkefni.“
Í dag starfarðu mestmegnis við
hönnun á búningum ekki satt?
„Jú ég hef síðustu tvö ár verið í
þeirri deild. Ég byrjaði fyrir þrem-
ur árum að vinna sem vörustjóri
Hannar fyrir mörg af stærstu
fótboltafélögum heims
Fatahönnuðurinn Vala Steinsdóttir er háttsettur starfsmaður hjá íþróttavörufyrirtækinu Nike. Hún er búsett í Hollandi
með fjölskyldunni og þeysist um heiminn í starfi sínu en hún sér um hönnun á íþróttabúningum og öðrum staðalbúnaði
fyrir Manchester United, Juventus og fleiri risastór og vinsæl knattspyrnufélög.
JÓLAFRÍ Vala var stödd á Íslandi með fjölskylduna yfir hátíðirnar. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
það eru margir til dæmis
mjög hjátrúarfullir í
þessum bransa. Ef liðinu
gengur illa á einhverju
móti vilja leikmenn ekki
sjá sömu búningana aftur.
Júlía Margrét
Einarsdóttir