Fréttablaðið - 04.01.2014, Side 38
FÓLK|HELGIN
mér fjölskyldu og vini sem nenntu
að skrönglast þetta með mér um
allt land,“ segir Boga, himinsæl
yfir að hafa staðið við áramótaheit
síðasta árs.
Á UNDIRKJÓL Í HAFINU
Áður en Boga byrjaði að stunda
sjósund kveðst hún hafa verið með
áskrift að kvefi, lungnabólgu og
umgangspestum.
„Það þekki ég ekki lengur enda
er sjósund mikil heilsubót og hefur
styrkt ónæmiskerfið til mikilla
muna. Það er líka afar gott fyrir
andlegu hliðina og þann styrk tek
ég með mér í vinnuna og dagleg
samskipti við aðra.“
Boga synti í undirkjólum,
silkikjól og öðrum óhefðbundnum
sundfatnaði til að skapa hverjum
firði þema og segir hvern fjörð ein-
stakt ævintýri.
„Ég reyndi að gera þetta eftir-
minnilegt. Aðgengi var misgott og
stundum þurfti ég að klöngrast
niður bratta bakka en stundum óð
ég út í beint af þjóðveginum,“ segir
Boga og nefnir nokkra eftirminni-
lega firði.
„Í Skálmarfirði var svo mikil
fjara að ég gekk allan fjörðinn nær
þurrum fótum og á 17. júní synti ég
út Hafnarfjörð með íslenska fánann
á lofti sem var mjög þjóðernis-
legt og næstum fjallkonulegt en
bara mín eigin þjóðhátíð. Ég synti
Breiðafjörð út frá Saurbæ, þar sem
ég er fædd og uppalin, en hann
stendur upp úr ásamt Skagafirði og
Eyjafirði þar sem ég stakk mér til
sunds frá Hrísey og ólýsanlegt að
horfa á fjallahringinn úr sævi.“
TÓMLEG ÁRAMÓT ÁN HEITA
Boga skráði ferðasöguna úr hverj-
um firði og lýsingu á veðri, and-
rúmslofti og því sem fyrir augu bar.
„Ég varð aldrei hrædd á sundinu
nema þá helst við að lenda í frá-
sogi eða straumum sem bæru mig
af leið. Ég kynnti mér alla firði vel
áður en ég lagðist til sunds og lenti
aldrei í vandræðum utan hvað
sterkir straumar Súgandafjarðar
toguðu mig aðeins af leið. Ég hugs-
aði vitaskuld út í að rekast á lík eða
til dæmis háhyrninga en hvarvetna
mætti mér gríðarlegt fuglalíf, selir,
krabbar og smádýr og oft syntu
með mér kollur með unga sína,“
segir Boga sem einnig naut útsýnis
undir yfirborði sjávar.
„Ég var eins og landnámsmenn-
irnir sem sáu Ísland rísa úr sæ og
sé landið mitt í nýju ljósi. Þegar
ég steig á land fór ég beint á beit
og át söl og að vera á sundi með
blika eða himbrima og horfa í augu
þeirra eins og hver önnur haf-
meyja gefur nýja sýn á tilveruna og
er hollt veganesti út í lífið.“
Náttúran er sjálfstæð og óút-
reiknanleg og því var mikilvægt að
taka dagsformið með í reikninginn.
„Á tímabili læddist að mér hugs-
un um að ég myndi ekki ná þessu
og eftir Vestfirðina fór þreyta að
segja til sín. Það voru mikil átök
að synda átta firði á dag en líka
óskaplega gaman. Þegar ég steig á
land eftir síðasta sundið í Hofsósi
settist að mér tregi og söknuður
yfir því að sundinu væri lokið.
Allan tímann var mér þó þakklæti
í huga, að hafa heilsu og aðstöðu
til að gera þetta, sem ekki er öllum
gefið. Markmiðið var torsótt og
strembið meðan á því stóð en nú
finnst mér það leikandi létt í minn-
ingunni,“ segir Boga brosandi.
Út frá afmælissundinu vaknaði
með Bogu draumur um að henda
sér út í áheitasund og synda fyrir
góðgerðarmál á nýju ári.
„Áramótin voru hálf tómleg nú
án stórs áramótaheits en ég er
þegar farin að kortleggja stöðu-
vötnin 55 og ég ætla að þjálfa mig
betur á kajaknum mínum til að
takast á við ný markmið þegar ég
verð 55 ára.“ ■ thordis@365.is
Mér tókst ætlunarverkið með léttum leik,“ segir Boga sem strengir stór
áramótaheit á fimm ára fresti.
„Þegar ég varð 45 ára kleif ég 45
tinda og þegar ég verð 55 ára ætla
ég sigla á kajak um 55 stöðuvötn,“
segir Boga, hvergi bangin.
Fyrsta fjörðinn synti hún úr
Nauthólsvík á nýársdag í fyrra og
í ágústlok hafði hún lagt alla fimm-
tíu firðina að velli.
„Flesta firði synti ég á Vestfjörð-
um í júní þegar ég náði 38 fjörðum
á sex dögum, sem var töluvert puð
í öllum veðrum. Ég ætlaði mér að
synda fimmtíu metra í hverjum
firði en synti oftast hundrað metra
og alls 400 metra í Breiðafirði sem
er mér hjartfólginn því ég er fædd
á Saurbæ í Dölum.“
Þrátt fyrir leiðindaveður síðasta
sumar segir Boga veðrið yfirleitt
hafa leikið við sig.
„Þegar maður virðir og dáir
náttúruna spilar hún með. Ég
reyndi að fara varlega og var alltaf
með manneskju á bakkanum sem
var við öllu búin færi eitthvað úr-
skeiðis. Ég hefði ekki náð mark-
miðum mínum nema að hafa með
FRÆKIN HAFMEYJA Í FJÖRÐUM
STÓRHUGA ÁRAMÓTAHEIT Ferðafræðingurinn Boga Kristín Kristinsdóttir strengdi verðugt áramótaheit um áramótin 2012 og 13
en það var að synda 50 metra í 50 fjörðum á 50. aldursári sínu. Hún fylltist söknuði og trega þegar sundinu lauk við Hofsós.
ÖNUNDARFJÖRÐUR Boga synti í 38
vestfirskum fjörðum á sex dögum í fyrra-
sumar. MYND/ÚR EINKASAFNI
GARPUR Boga Kristín starfar sem ferðafræðingur hjá CCP og sér þar um öll ferðamál.
Hún vermdi kroppinn í íslenskri ull þegar hún komst ekki beint í heitan pott að sjósundi
loknu. MYND/GVA
-40%