Fréttablaðið - 04.01.2014, Side 76
4. janúar 2014 LAUGARDAGUR| MENNING | 48
„Ég komst ekki heim fyrr en 29.
desember og fór út aftur 2. janúar
því næsta sýning er 4. janúar en það
var gott að ná aðeins að anda að sér
íslensku lofti, þó ekki sé nema í
fjóra daga,“ segir hinn 23 ára dans-
ari Frank Fannar Pedersen sem er
í aðalkarlhlutverki í Svanavatninu
á sviðinu í Wiesbaden í Þýskalandi
um þessar mundir. Frumsýning var
21. desember. „Þetta er ekki hið
klassíska Svanavatn heldur nútíma-
dansuppfærsla eftir stjórnandann,
Stephan Thoss, við tónlist Tsjaj-
kovskís. Hún nefnist Frá miðnætti
til morguns,“ tekur hann fram.
Frank Fannar hefur lifað og
hrærst í sviðslistum frá barnæsku.
Móðir hans er Katrín Hall dansari
sem lengi var listrænn stjórnandi
Íslenska dansflokksins og faðir
hans Guðjón Pedersen, leikari, leik-
stjóri og Borgarleikhússtjóri um
tíma. Fjölskyldan bjó í Köln þegar
móðir hans var dansari hjá dans-
flokki óperuhússins þar, svo Frank
Fannar var í Þýskalandi fyrstu sjö
árin sín. En heimkominn hóf hann
strax nám í Listdansskólanum og
svo leiddi eitt af öðru. „Samt tók ég
aldrei ákvörðun um það að verða
dansari. Þetta bara vatt upp á sig
og var alltaf gaman og það heldur
áfram að vera gaman,“ segir hann
glaðlega. Hann var aðeins átján ára
þegar hann hélt út í hinn stóra heim
til að dansa, fyrst til Barcelona á
Spáni og síðan Þýskalands en áður
hafði hann getið sér gott orð á sviði
hér heima með dansflokknum og í
samkeppnum í Svíþjóð og Kína.
Yfirleitt er dansflokkur, leik-
hús og ópera innan stóru leikhús-
anna í Þýskalandi, að sögn Franks
Fannars. „Við sem erum í dans-
flokknum í Wiesbaden teljumst
heppin að þurfa ekki að dansa í
óperum eða söngleikjum heldur
eru sérstakir dansarar í því. Við
erum bara að búa til dansverk.
Það er skemmtilegra og meira
krefjandi því söngleikir ganga oft
svo lengi.“ Þetta er þriðja ár Franks
Fannars í Wiesbaden en hann býst
við að breyta til á næsta ári. „Það
er verið að skipta um stjórnanda í
leikhúsinu og mér finnst ágætt að
nota tækifærið og fara eitthvert
annað. Finnst kominn tími á nýjar
ögranir og áskoranir,“ útskýrir
hann. Hvert leiðin liggur veit hann
ekki en reiknar með að halda sig í
Mið-Evrópu áfram, í Þýskalandi,
Hollandi eða Sviss.
Margar stórar sýningar eru að
baki í Wiesbaden síðustu árin hjá
Frank Fannari. „Mér hefur gengið
vel, ég hef haft mjög mikið að gera
og auðvitað hef ég lært á því. Það
eru forréttindi að fá að vinna við
það sem manni þykir skemmtileg-
ast.“ Hann segir Svanavatnið svo-
lítið jóla- eða vetrartengt ævintýri
svo það verði varla sýnt langt fram
á vor. „Við byrjum á að fara í leikför
fljótlega eftir áramótin. Einnig er
annað prógramm að fara í gang sem
frumsýnt verður í febrúar þannig
að æfingar á því verða samhliða
sýningarferðalögum svo það verður
nóg að gera,“ segir hann hress.
Um framtíðina vill Frank Fannar
sem minnst spá. „Líf dansarans er
yfirleitt stutt og eftir það er von-
andi tækifæri til að gera eitthvað
allt annað. Það finnst mér bara
heillandi tilhugsun frekar en hitt.
Nú er hægt að stunda nám hvenær
sem er á ævinni og gera hvað sem
er.“ gun@frettabladid.is
Samt tók ég aldrei ákvörðun
um það að verða dansari
Frank Fannar Pedersen dansar aðalkarlhlutverk Svanavatnsins í borgarleikhúsinu í Wiesbaden í Þýskalandi
sem var frumsýnt 21. desember. Hann kíkti aðeins heim í jólafrí en þurft i að hafa hratt á hæli.
HEIMA „Það var gott að ná að anda að sér íslensku lofti,“ sagði Frank Fannar í stuttu
fríi frá dansi í nútímadansuppfærslu á Svanavatninu í Þýskalandi. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Í RÓMEÓ OG JÚLÍU Frank Fannar dansaði Tybalt í Rómeó og Júlíu, dansverki eftir
Stephan Thoss, stjórnanda dansflokksins í Wiesbaden.
„Jólakonsertinn frægi, sem allir
kannast við, er inni í þessu pró-
grammi sem við flytjum núna og
því er það sérstaklega vel við-
eigandi,“ segir Martin Frewer
fiðluleikari um tónleika strengja-
sveitarinnar Spiccato í Neskirkju
og Selfosskirkju. Þar verða fluttir
konsertar 7-12 ópus 6 „Concerti
Grossi“ eftir Arqangelo Corelli.
„Við spiluðum fyrstu sex
konserta Corellis í vor og þess
vegna langaði okkur að taka þá
sex síðari núna. Þetta er svo
frábær tónlist,“ heldur Martin
Frewer áfram.
Á tónleikunum á Selfossi á
mánudaginn verður einnig fluttur
1. kaflinn úr fiðlukonsert í a-moll
eftir Vivaldi. Þá ætla tíu fiðlunem-
endur úr Tónlistarskóla Árnes-
inga að spila með sveitinni. - gun
Jólin verða kvödd með Corelli
Strengjasveitin Spiccato heldur tvenna tónleika á næstu dögum, í Neskirkju á
morgun, sunnudag, klukkan 20 og í Selfosskirkju á mánudag á sama tíma.
SPICCATO Þau ætla að kveðja jólin með stæl í tveimur kirkjum á næstu dögum.
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Það er verið
að skipta um stjórnanda
í leikhúsinu og mér finnst
ágætt að nota tækifærið
og fara eitthvert annað.
Finnst kominn tími á nýjar
ögranir og áskoranir.
Forlagið hefur tryggt sér
útgáfuréttinn á bók finnska höf-
undarins Salla Simukka, Rauð
eins og blóð, sem farið hefur
sigurför um heiminn. Bókin
kemur út næsta haust í þýðingu
Erlu Elíasdóttur.
Rétt fyrir jól hlaut finnski
höfundurinn Salla Simukka
„Finland Prize 2013“ fyrir
alþjóðlega velgengni spennu-
bókaflokks fyrir unglinga sem
kenndur er við Mjallhvíti. Verð-
launin nema 26.000 evrum og
skiptust að þessu sinni á milli
sjö finnskra listamanna sem
þóttu skara fram úr á árinu,
í heimalandi sínu eða alþjóð-
lega. Fyrstu tvær bækurnar úr
bókaflokknum eru komnar út í
Finnlandi og nutu báðar mikilla
vinsælda. Eftirtektarverðast
þykir þó að áður en fyrsta bókin
var komin út í Finnlandi höfðu
fjölmargir erlendir útgefendur
tryggt sér þýðingarréttinn að
bókaflokknum. Nú hefur réttur-
inn verið seldur til 37 landa og
enginn finnskur höfundur hefur
notið jafn skjótrar og mikillar
alþjóðlegrar hylli og Salla
Simukka.
Salla Simukka stundaði nám
í norrænum málvísindum,
finnsku, bókmenntafræði,
skapandi skrifum og kvenna-
fræðum í háskólanum í Turku.
Fyrsta bók hennar, ástarsagan
Þegar englarnir líta undan (Kun
enkelit katsovat muualle), kom
út 2002 og áratug síðar komu
framtíðartryllarnir Engin
slóð (Jäljellä) og Annarstaðar
( Toisaalla), en fyrir þá fékk
Salla Topelius-verðlaunin 2013.
En það var ekki fyrr en hún
kynnti Mjallhvítarþríleikinn til
leiks sem athygli erlendra útgef-
enda vaknaði. Fyrsta bókin,
Rauð eins og blóð, kom út í Finn-
landi vorið 2013 og miðbókin,
Hvít eins og snjór, fylgdi í kjöl-
farið strax um haustið.
Rauð eins og
blóð á íslensku
SLÓ Í GEGN Bókaflokkur Salla Simukka
um Mjallhvíti hefur hlotið ótrúlegar
viðtökur.
Byrjum 6. janúar
Dans og skapandi hreyfing
Afró fyrir börn og foreldri
Tónlistarleikhús Break
Yoga FRU
MK
VÖ
ÐU
LL
Í 3
0 Á
R
Barna námskeið
SKRÁNING
STENDUR
YFIR
MENNING