Fréttablaðið - 27.01.2014, Side 1
DÓMSMÁL Fjögur önnur börn eru
til heimilis á sama stað og sex
ára gömul telpa sem Hæstiréttur
úrskurðaði á föstudag að skyldi
dvelja hjá fósturfjölskyldu á meðan
ásakanir um vanrækslu eru til
rannsóknar.
Í fréttum Stöðvar 2 í gær sagði
að grunur léki á að telpan, sem kom
hingað til lands árið 2012 undir
forsjá afa síns, hafi verið fórnar-
lamb mansals, og hafi komið hingað
til lands á fölsuðum skilríkjum, en
Þuríður Halldórsdóttir, lögmaður
afans, þvertekur fyrir slíkt. „Þetta
eru ósannindi sem er verið að bera
upp á þetta fólk,“ sagði hún í sam-
tali við Vísi og segir að misskiln-
ings hafi gætt í úrskurði héraðs-
dóms, sem Hæstiréttur byggi á.
Fólkið er frá Haítí, en við kom-
una hingað vísaði afinn fram gögn-
um þar sem tekið var fram að hann
færi með forsjá telpunnar þar sem
móðir hennar hefði látist í hamför-
unum árið 2010.
Fjölskyldan flutti inn til ættingja
sem búsettir hafa verið hér á landi
um nokkurt skeið. Í dómnum er
meðal annars greint frá tilkynn-
ingum um að á heimilinu hafi börn-
in verið eftirlitslaus og að mikill
barnsgrátur bærist frá íbúðinni á
öllum tímum sólarhrings, í bland
við háværa tónlist, öskur og köll.
Tilkynningar bárust um að afinn
hefði beitt telpuna, sem og aðra á
heimilinu, ofbeldi.
Þuríður segir að ábendingar um
illa meðferð og ofbeldi í garð stúlk-
unnar séu ekki í neinum tengslum
við raunveruleikann. „Þetta er
mjög alvarlegur áburður sem er
verið að bera á manninn. Ég veit
ekki hvort þetta eru kynþáttafor-
dómar eða hvað af hálfu fólksins
sem er að tilkynna þennan hávaða
eða læti,“ segir hún.
- þþ / js
FRÉTTIR
MEST LESNA
DAGBLAÐ Á ÍSLANDI*
*Samkvæmt prentmiðlakönnun Capacent Gallup janúar - mars 2012
Mánudagur
12
SÖFNUN
Sögur um te og te-drykkju, uppskriftir og hefðir má senda Attikatti á Facebo-ok í töl
GOTT HÚSRÁÐÞað getur verið snúið að skera beikon. Góð leið til að auðvelda sér verkið er að frysta sneiðarnar í dálitla stund áður en hnífnum er beitt.
V ið völdum níu hönnuði og arki-tekta til að vinna út frá orðinu Te. Í mars opnum við svo tíma-bundið Te-hús í Sparki Design space á Klapparstíg þar sem kynnt verður „hin íslenska tehefð“, eins og við túlkum hana. Við lýsum því eftir sögum um te og tehefðir fólks, uppskriftum og slíku,“ útskýrir Rúna Thors, ein fjögurra liðs-manna hugmynda- og viðburðatey iins Attikatti
„Þann viðburð kölluðum við TEASER
og buðum upp á te-kökur og fleira unnið
úr tei og gúrkusamlokur en þær ein-kenna breska temenningu. Nú einbeitum
við okkur að því að skoða íslenska te-menningu og munum búa til íslenska tehefð út frá þeim rannsóknum okkar.
Í Sparki munum við setja upp einhvers
konar athöfn í kri
SAFNA SÖGUM UM TEÍSLENSK HÖNNUN Hugmynda- og viðburðasmiðjan Attikatti rannsakar
íslenska temenningu og óskar eftir íslenskum sögum um te og tedrykkju.
ATTIKATTI Hugmynda- og viðburðasmiðjuna Attikatti skipa Hanna Dís Whitehead, Hanna Jónsdóttir, Bára Kristgeirsdóttir og
Rúna,Thors. Þær óska eftir íslenskum sögum um te.
MYND/ATTIKATTI
FASTEIGNIR.IS
27. JANÚAR 2014
4. TBL.
Fasteignasalan Miklatorg
kynnir: Glæsilegt tvílyft
einbýlishús við Tjarnarstíg
á Seltjarnarnesi. Tvöfaldur
bílskúr og útsýni til sjávar.
Húsið er steypt með viðarklæðn-
ingu og mikið endurnýjað. Byggt
var við stofu árið 2006. Á efri hæð
eru tvær samliggjandi stofur, eld-
hús, hjónaherbergi, hol og gesta-
snyrting. Stofurnar eru rú góð r
og bjart ð ú
Útsýni til sjávar
Tvílyft einbýli með útsýni til sjávar.
* Starfsemi Landmark byggir á öflugum mannauði sem veitir afburðaþjónustu! Okkur er sönn ánægja að sjá um þín fasteignaviðskipti – þú hringir við seljum!
100% þjónusta = árangur*
Landmark leiðir þig heim!
Sími 512 4900
landmark.is Benedikt
Ólafsson
sölufulltrúi
Sími 661 7788
Magnús
Einarsson
Löggiltur
fasteignasali
Sími 897 8266
Sigurður
Samúelsson
Löggiltur
fasteignasali
Sími 896 2312
Sveinn
Eyland
Löggiltur
fasteignasali
Sími 690 0820
Íris Hall
Löggiltur
fasteignasali
Þórarinn
Thorarensen
Sölustjóri
Sími 770 0309
Kristberg
Snjólfsson
Sölufulltrúi
Sími 892 1931
Eggert
Maríuson
Sölufulltrúi
Sími 690 1472
Haraldur
Ómarsson
sölufulltrúi
sími 845 8286
Sigurður Fannar
Guðmundsson
Sölufulltrúi
Sími 897 5930
2 SÉRBLÖÐ
Fasteignir | Fólk
Sími: 512 5000
27. janúar 2014
22. tölublað 14. árgangur
Deila um utangarðsfólk
Stjórnvöld og Reykjavíkurborg greinir
á um ábyrgð á málefnum utan-
garðsfólks. Heilbrigðisráðherra segir
að hlutverk sveitarfélaganna sé að
tryggja framfærslu íbúa sinna 4
Íslenskt veiðihjól fer víða Fyrir-
tækið Fossadalur á Ísafirði framleiðir
fluguveiðihjól sem eru komin í sölu í
Japan. Bandaríkjamarkaður er næstur
á dagskrá 2
Bíða í tvö ár eftir parkúr Um 140
bíða eftir því að komast að í æfingar
í parkúr-götufimleikum hjá fimleika-
félaginu Gerplu vegna aðstöðuleysis.
Hið sama er uppi á teningnum víðast
hvar, að sögn þjálfara. 10
Ég veit ekki
hvort þetta eru
kynþáttafordómar
eða hvað af hálfu fólksins
sem er að tilkynna
þennan hávaða
eða læti.
Þuríður Halldórsdóttir, lögmaður
SKOÐUN Guðmundur Andri segir
hvalveiðar Íslendinga grundvallast af
mótþróaröskunarfíkn. 13
MENNING Jóhanna Guðleif safnaði
fyrir græna kortinu á netinu til að
geta verið með eiginmanni sínum. 30
SPORT Grannarnir Elvar Már Friðriks-
son og Gunnar Ólafsson verða áfram
erkifjendur vestan Atlantshafsins. 26
Paratabs®
Nú er opio allan
sólarhringinn
í Engihjalla
ht.is
ÞVOTTAVÉLAR
Mörg dæmi eru um að
lögum um túlkaþjónustu
sé ekki fylgt á Íslandi
og börn eða kunningjar
látnir túlka í viðkvæmum
aðstæðum.
Íslensk lög kveða á
um að þeir sem ekki tala
íslensku eigi rétt á túlki
við ýmsar aðstæður, til
dæmis í lögum um rétt-
indi sjúklinga. Þrátt fyrir lögin
er því í mörgum tilfellum sleppt
að kalla til túlk segir fagfólk,
sem vinnur að málefnum inn-
flytjenda og er það rakið til
sparnaðar ríkis og sveitarfélaga.
„Við fáum fréttir af þessu á
hverjum degi,“ segir Jolanta Pol-
anska, sem hefur starfað sem
túlkur í fimmtán ár og rekur
Túlkaþjónustuna. „Ég
hef sjálf orðið vitni að
því að börn og kunningj-
ar túlka fyrir ættingja
eða vini í mjög viðkvæm-
um aðstæðum. Í mörgum
tilfellum verður túlkunin
ekki nógu góð eða skýr
þar sem íslenskukunnátt-
an er ekki nægileg. Börn
hafa ekki nægilegan orða-
forða til að standa í túlkunum á
til dæmis flóknum læknisfræði-
heitum og þetta getur skapað
mikla vanlíðan hjá þeim. Fyrir
utan það að þau ættu ekki að vera
milliliður í heilbrigðisþjónustu
foreldra sinna.“
Jolanta telur að hér sé um
sparnað að ræða og þá sérstak-
lega í heilbrigðiskerfinu. „Ég veit
um nokkur tilfelli í mæðraeftir-
liti þar sem konum er tilkynnt
að þær geti aðeins tvisvar feng-
ið túlk í mæðraskoðun. En það
er ekki rétt, þær eiga rétt á því
í hvert skipti samkvæmt lögun-
um.“
Edda Ólafsóttir, sérfræðing-
ur í innflytjendamálum á mann-
réttindaskrifstofu Reykjavíkur,
tekur í sama streng. „Ráðgjaf-
arnir sem starfa hjá okkur hafa
heyrt ótal dæmi um börn sem
túlka fyrir foreldra. Núna nýlega
var tíu ára barn til sex um morg-
uninn á bráðamóttökunni með
veikum föður sínum að túlka.
Þrátt fyrir að foreldrarnir vilji
mögulega að barnið túlki þá eiga
yfirvöld að vernda börnin og
kalla til túlk.“ - ebg / sjá síðu 6
Sparað að kalla út
túlk þrátt fyrir lög
Samkvæmt lögum um réttindi sjúklinga á að kalla til túlk ef sjúklingur talar ekki
íslensku. Samt sem áður eru mörg dæmi um að börn túlki fyrir foreldra sína í við-
kvæmum aðstæðum. Fagfólk í innflytjendamálum telur sparnað vera ástæðuna.
TÓNLIST Íslandi hefur verið form-
lega boðið að vera heiðursgestur
á Eurosonic-tónlistarhátíðinni í
Groningen í Hollandi á næsta ári
en hátíðin fer fram um miðjan
janúar ár hvert.
„Nú er að fara
í gang fjármögn-
un verkefnisins
og við verðum að
svara því hvort
Ísland þiggur
boðið fyrir
miðjan febrúar,“
segir Sigtryggur
Baldursson,
framkvæmdastjóri Útóns.
„Eurosonic er orðin að öflugustu
kynningarhátíð Vestur-Evrópu
um þessar mundir og má segja að
þetta sé ekki ósvipað því þegar
Ísland var heiðursgestur á bók-
menntahátíðinni í Frankfurt árið
2011,“ bætir Sigtryggur við.
- glp / sjá síðu 30
Íslensk tónlist gerir það gott:
Í aðalhlutverki
á Eurosonic
JOLANTA
POLANSKA
SIGTRYGGUR
BALDURSSON
Bolungarvík 1° ANA 8
Akureyri 0° ANA 4
Egilsstaðir 0° ANA 5
Kirkjubæjarkl. 1° ANA 6
Reykjavík 3° ANA 4
Él á Vestfjörðum, dálítil úrkoma
austanlands en annars úrkomulaust að
mestu. Strekkingur með SA-ströndinni
en annars hægari vindur. 4
ALLAR SEM EIN Alþjóðlegu Reykjavíkurleikunum lauk í gær en þetta var í sjöunda sinn sem þeir fóru fram. Íþróttafélag
Reykjavíkur stendur að leikunum í samstarfi við sérsambönd ÍSÍ og íþróttafélögin í Reykjavík. Keppt var í tuttugu íþróttagrein-
um að þessu sinni og á fi mmta hundrað erlendra gesta sóttu leikana heim. Meðal annars var keppt í hópfi mleikum og hér má
sjá stúlkur úr Fimleikafélagi Akureyrar leika listir sínar. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Málefni stúlku sem var fjarlægð af heimili vegna ásakana um vanrækslu:
Fjögur önnur börn á heimilinu
FJÖLMIÐLAR Líklegt er að tilkynnt
verði í dag hver verði ráðinn nýr
útvarpsstjóri RÚV. Fram kom á
vefsíðu RÚV í gær að búið væri að
ákveða hverjum hinna 39 umsækj-
enda verði boðin þessi eftirsóknar-
verða staða. Nafn Magnúsar Geirs
Þórðarsonar, leikhússtjóra Borgar-
leikhússins, hefur oft verið nefnt
varðandi stöðuna. Ekki náðist í
Magnús Geir í gær og ekki heldur
í Ingva Hrafn Óskarsson, formann
stjórnar RÚV. Ekki hafði verið
rætt við Ólínu Þorvarðardóttur og
Stefán Jón Hafstein, sem voru á
meðal umsækjenda, þegar blaða-
maður hafði samband við þau í
gær. - fb
Stjórn RÚV tók ákvörðun:
Útvarpsstjóri
tilkynntur í dag
RÚV Líklegt þykir að í dag verði tilkynnt
um ráðningu á útvarpsstjóra.