Fréttablaðið - 27.01.2014, Blaðsíða 2
27. janúar 2014 MÁNUDAGUR| FRÉTTIR | 2
Kringlunni
heyrnarstodin.is
HEYRNARSTÖ‹IN
VIÐSKIPTI „Ég var að klára samn-
ing við fyrirtæki í Japan um
dreifingu og sölu á hjólunum
núna fyrir áramótin og við erum
með í burðarliðnum samninga
við fyrirtæki í Bandaríkjunum
og Kanada sem eru langt komn-
ir,“ segir Steingrímur Einarsson,
framkvæmdastjóri Fossadals á
Ísafirði.
Fyrirtækið er eini íslenski
veiðihjólaframleiðandinn og
starfsmenn þess smíða hjólin úr
áli frá Alcoa í Bandaríkjunum og
selja undir vörumerkinu Einars-
son.
„Við erum einnig með í undir-
búningi skoðun á mörkuðum í
Rússlandi, Ástralíu og á Nýja-
Sjálandi. Í Skandinavíu og Norð-
ur-Evrópu erum við hins vegar
búnir að koma okkur þokkalega
fyrir. Við höfum þó komist að því
að einn starfsmaður hér á skrif-
stofunni á Ísafirði getur engan
veginn séð um sölu og markaðs-
setningu í öllum þessum löndum
og því erum við að koma okkur
upp neti umboðsmanna um allan
heim sem munu sinna þessum
þætti starfseminnar, með öflug-
um stuðningi frá skrifstofunni
hér á Ísafirði,“ segir Steingrímur.
Hann stofnaði fyrirtækið fyrir
sjö árum og framleiðir nú tvær
gerðir af hjólum í átta mismun-
andi stærðum. Hægt er að flokka
hjólin í tvo verðflokka, annars
vegar hjól sem kosta á bilinu sex-
tíu til hundrað þúsund krónur,
og hins vegar hjól sem kosta frá
hundrað upp í hundrað og fjöru-
tíu þúsund krónur. Ódýrari hjól-
in eru að sögn Steingríms létt og
sterk og hafa getið sér gott orð á
erlendri grundu.
„Hin gerðin eru hjól sem við
köllum Invictus en þar höfum
við hannað nýja gerð af bremsu-
búnaði sem hefur vakið mikla
athygli. Bremsan á því hjóli er
mun mýkri en áður hefur þekkst
sem þýðir í rauninni að veiði-
menn missa færri fiska.
Þau seljast aðallega í löndum eins
og Finnlandi og Noregi þar sem
menn eru í laxveiðinni í stórum
ám og stórum fiskum.“
Steingrímur segir Þýskaland
vera stærsta einstaka markaðinn
en að önnur lönd eins og Finn-
land, Noregur og Svíþjóð séu
einnig að koma sterk inn.
„Svo má ekki gleyma okkar
heimamarkaði sem alla tíð hefur
stutt vel við okkur. Við erum
því mjög bjartsýn á komandi ár.
Núverandi eigendur, sem eru
flestir búnir að vera með okkur
frá upphafi, hafa verið einstaklega
þolinmóðir, og ég get með góðri
samvisku sagt að nú sjö árum eftir
stofnun erum við loksins farin að
sjá árangur erfiðisins.“
haraldur@frettabladid.is
Íslensk fluguveiðihjól
komin í sölu í Japan
Veiðihjólaframleiðandinn Fossadalur á Ísafirði samdi fyrir áramót um sölu og
dreifingu á vörum fyrirtækisins í Japan. Samningar við fyrirtæki í Bandaríkjun-
um og Kanada eru langt komnir. Fyrirtækið framleiðir tvær tegundir af hjólum.
ÍSLENSK
HÖNNUN
Veiðihjólin
frá Fossadal
eru fram-
leidd í mörg-
um litum.
Þau hafa
vakið athygli
langt út fyrir
landsteinana og
eru meðal annars
komin í sölu í Japan.
Við höfum þó komist að því að einn
starfsmaður hér á skrifstofunni á Ísafirði
getur engan veginn séð um sölu og
markaðssetningu í öllum þessum löndum
og því erum við að koma okkur upp neti
umboðsmanna um allan heim
Steingrímur Einarsson, framkvæmdastjóri Fossadals
Benedikt, kemur maður í konu
stað?
„Jú, því konur eru líka menn.“
Benedikt Erlingsson tekur við leikstjórn
leikritsins Svanir skilja ekki af eiginkonu
sinni Charlotte Bøving, sem fékk hlutverk í
kvikmynd Baltasars Kormáks, Everest.
STJÓRNMÁL Sigmundur
Davíð Gunnlaugsson for-
sætisráðherra sagði á
Sprengisandi á Bylgj-
unni í gærmorgun, að
hann vilji afnema verð-
tryggingu eins hratt og
mögulegt er. Hann segir
að bæði meirihluta- og
minnihlutaálit sérfræði-
nefndar um verðtrygg-
ingu boði að verðtrygg-
ingin verði afnumin.
„Sem betur fer þá er megin-
munurinn minnihlut-
ans og meirihlutans í
nefndinni tímafaktor-
inn, þ.e.a.s. hversu lang-
an tíma þau telja að það
muni taka að afnema
verðtryggingu. Þarna
erum við með tvenns
konar álit sem bæði
marka gríðarleg tíma-
mót og fela bæði í sér
að afnema verðtrygg-
inguna. Ég vil að þetta gerist eins
hratt og mögulegt er án þess að
skapa hættur,“ sagði Sigmundur.
Meirihluti sérfræðinefndar
um verðtryggingu sagði í áliti
sínu að ekki sé hægt að afnema
verðtryggingu nema við viss
skilyrði. Sigmundur Davíð telur
hins vegar að það sé tiltölulega
einföld framkvæmd að afnema
verðtrygginguna. Þó vildi hann
ekki að fólk lenti í verulegum
greiðsluerfiðleikum vegna þess
að greiðslubyrðin ykist til muna
einn mánuðinn.
- jjk
Forsætisráðherra um verðtryggingu í útvarpsviðtali á Sprengisandi:
Segir afnámið einfalda aðgerð
VÍSINDI Um 1.800 ára gömul bein
ungbarna í Englandi, hafa breytt
skoðunum vísindamanna á ung-
barnamorðum Rómverja. Gerð
var ný rannsókn á beinum 25
ungabarna, sem drepin voru
skömmu eftir fæðingu. Niður-
stöðurnar gefa í skyn að stúlku-
börn hafi ekki verið myrt oftar
en drengir, eins og áður var talið.
Gömul handrit sýna fram á að
barnsmorð í Rómaveldi voru við-
urkennd venja og eina leiðin til að
stjórna stærð fjölskyldna. - skó
Ný rannsókn um Rómverja:
Báru ekki frek-
ar út meybörn
STJÓRNSÝSLA Bráðadeild Landspítala – háskólasjúkrahúss hlaut fyrir
helgi nýsköpunarverðlaunin 2014 í opinberri þjónustu og stjórnsýslu.
Þetta var í þriðja sinn sem verðlaunin voru veitt og og að þessu sinni
voru yfir 40 verkefni tilnefnd.
Verkefni Landspítalans felur í sér notkun skjáborðs í gæða- og
öryggisstjórnun á bráðamóttöku. Það þykir gefa starfsfólki mikilvæg-
ar upplýsingar og gera stjórnendum kleift að bregðast við álagspunkt-
um með markvissari hætti en áður.
Auk þess hlutu fjögur önnur verkefni sérstakar viðurkenningar
fyrir nýsköpunarverkefni á sínum vegum. - þj
Stofnun stjórnsýslufræða og stjórnmála:
Verðlauna nýsköpun í stjórnsýslu
NÝSKÖPUNARVERÐLAUN Ragnheiður Elín Árnadóttir, iðnaðar- og viðskiptaráð-
herra, afhenti viðurkenningarnar á Grand hóteli á föstudag. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
SIGMUNDUR D.
GUNNLAUGSSON
ÚKRAÍNA,AP Þúsundir Úkraínu-
manna hrópuðu „Hetja!“ og sungu
þjóðsönginn þegar líkkista manns
sem lést í síðustu viku í mótmæl-
um gegn stjórnvöldum, var borin
um miðborg Kænugarðs.
Mikhail Zhiznevsky, 25 ára, var
einn þriggja mótmælenda sem lést
í átökum við lögregluna.
Mótmælin í Úkraínu héldu
áfram í gær þrátt fyrir tillögu
forsetans Viktors Janúkóvíts um
að stjórnarandstöðuleiðtogar
yrðu gerðir að forsætis- og vara-
forsætisráðherra. Stór hópur mót-
mælenda réðst til atlögu á stærsta
sýningar- og ráðstefnuhús Kænu-
garðar, köstuðu þangað eldsp-
rengjum og skutu flugeldum. Lög-
reglan svaraði með táragasi.
Arsení Jatsenjúk, fyrrverandi
utanríkisráðherra Úkraínu, sem
reyndi að færa þjóðina nær inn-
göngu í Evrópusambandið, sagði
hópi mótmælenda á aðaltorgi
Kænugarðs að Janúkóvíts forseti
yrði að gangast við helstu kröfum
stjórnarandstöðunnar og að við-
ræður myndu halda áfram.
Stjórnarandstaðan hafnaði til-
lögu hans um að stjórnarand-
stöðuleiðtogar yrðu gerðir að for-
sætis- og varaforsætisráðherra.
Hún krefst þess að stjórnvöld geri
fríverslunarsamning við Evrópu-
sambandið, leysi pólitíska fanga
úr haldi og að haldnar verði for-
setakosningar sem allra fyrst.
- fb
Þúsundir Úkraínumanna sungu þjóðsönginn í miðborg Kænugarðs:
Báru líkkistu mótmælanda
KISTAN
BORIN
Stjórnarand-
stæðingar
halda á kistu
manns sem
lést í mót-
mælunumn í
síðustu viku.
MYND/AP
STJÓRNMÁL Þorleifur Gunnlaugs-
son varaborgarfulltrúi gefur ekki
kost á sér á lista Vinstri grænna
fyrir komandi borgarstjórnar-
kosningar í vor.
„Mér hefur ekki fundist mínar
áherslur hljóta nógu mikinn
hljómgrunn í flokknum og upp-
lifi ekki þennan flokk sem þann
róttæka félagshyggjuflokk sem ég
gekk í á sínum tíma,“ segir Þor-
leifur í samtali við Fréttablaðið.
Þorleifur útilokar þó ekki að
hann muni taka áfram þátt í
borgarpólitíkinni. „Ég hef rætt
við marga, þar á meðal við félags-
hyggjufólk úr VG, Samfylking-
unni, búsáhaldafólk úr Dögun og
óflokksbundna.“ - ebg
Þorleifur fetar nýjar slóðir:
Gefur ekki kost
á sér fyrir VG
GÓÐGERÐARMÁL Kvenfélagið
Hringurinn fagnaði 110 ára
afmæli sínu í gær og veitti af því
tilefni Barnaspítala Hringsins
110 milljón króna gjöf sem verð-
ur nýtt til tækjakaupa á deildum
spítalans.
Fyrir tveimur árum fékk spít-
alinn 70 milljón króna gjöf frá
kvenfélaginu og því alls um 180
milljónir króna á rúmum tveimur
árum. „Þær hafa stutt barna-
spítalann bæði með húsnæði og
tækjabúnaði. Við erum sam-
bærilega tækjum búin og bestu
barnaspítalar í heiminum,“ segir
Jón Hilmar Friðriksson, fram-
kvæmdastjóri kvenna- og barna-
sviðs LHS. -jjk
Hringurinn á afmæli:
110 milljónir til
Barnaspítalans
SPURNING DAGSINS