Fréttablaðið


Fréttablaðið - 25.03.2014, Qupperneq 31

Fréttablaðið - 25.03.2014, Qupperneq 31
ÞRIÐJUDAGUR 25. mars 2014 | LÍFIÐ | 23 E N N E M M / SÍ A / N M 61 80 6 Glæsileg Vínbúð verður opnuð í Helluhrauni 16-18, Hafnarfirði í dag og Vínbúðinni í Firði verður lokað. Í nýju búðinni verður eitt mesta úrval Vínbúðanna og starfsfólkið tekur vel á móti ykkur. Verið hjartanlega velkomin. Við opnum nýja Vínbúð í Hafnarfirði 11-18 MÁN-FIM FÖS 11-19 LAU 11-18 vinbudin.is Íslenska fatamerkið KALDA hefur átt mikilli velgengni að fagna undanfarið, en Katrín Alda Rafns- dóttir er eigandi og yfirhönnuður merkisins. Nú nýlega skaut hún myndband í samvinnu við ljós- myndarann Silju Magg þar sem Ísland og KALDA eru í forgrunni, en myndbandið þykir einstaklega fallegt og hefur vakið gríðarlega athygli á netinu. Kolfinna Kristófersdóttir fyrir- sæta, sem meðal annars hefur gengið tískupalla fyrir tískurisa á borð við Marc Jacobs, leikur stórt hlutverk í myndbandinu sem var meðal annars tekið upp við Rauð- hóla. Um tónlist sá listamaðurinn Úlfur Hansson. - ósk KALDA vekur athygli ÚR TÖKUM Silja Magg og Kolfinna Kristófersdóttir. MYND/ÚR EINKASAFNI Tónlistarmennirnir Stefán Hilm- arsson og Eyjólfur Kristjánsson verða með tónleika í Edrúhöllinni, húsi SÁÁ, Efstaleiti 7, í kvöld. Tón- leikarnir eru hluti af tónleikaröð- inni Kaffi, kökur og rokk&ról sem SÁÁ hefur haldið úti nú í nokkur ár við góðar undirtektir. „Þetta er svo góður valkostur fyrir alla þá sem vilja njóta lifandi tónlistar í edrú umhverfi. Tónleik- arnir eru opnir öllum, ekki bara alkóhólistum og við fáum alltaf fullt af fólki sem kemur hingað til að njóta tónlistarinnar fyrst og fremst,“ segir Rúnar Freyr Gísla- son, samskiptafulltrúi SÁÁ, en boðið er upp á kaffi og kökur fyrir tónleikana. Tónleikarnir hefjast klukkan 20.30 og húsið verður opnað klukk- an 20.00. - glp Stebbi og Eyfi í Edrúhöllinni SKEMMTA SAMAN Stefán Hilmarsson og Eyjólfur Kristjánsson koma fram í Edrúhöllinni í kvöld. MYND/EINKASAFN „Við erum að verðlauna allt frá auglýsingaherferðum, plötuum- slögum, bókakápum, vefsíðum og allt þar á milli,“ segir Högni Valur Högnason, formaður Félags íslenska teiknara, um hina árlegu FÍT-verðlaunaafhendingu sem fer fram næstkomandi mið- vikudag. „Félag íslenskra teiknara er elsta hönnunarfélagið á Íslandi, en þessi athöfn verðlaunar bestu grafísku hönnunina á liðnu ári,“ segir Högni um verðlaunin sem eru afhent í 17 mismunandi flokkum. Einn af þeirra er svo- nefndur Nemendaflokkur. „Nemendaflokkurinn er fyrir fólk sem er nemendur í grafískri hönnun. Nemendur í Myndlista- skólanum á Akureyri, Listahá- skólanum og síðan eru líka nem- endur að læra erlendis sem senda inn,“ segir Högni en eina skilyrð- ið er að vera Íslendingur í hönn- unarnámi. „Aðalmarkmið okkar er að efla starfsstéttina, kynna hana út á við og auka samstöðu félags- manna,“ segir Högni en eftir verðlaunaafhendinguna, sem fer fram í Þjóðmenningarhúsinu klukkan 17.00 miðvikudaginn 26. mars, verður sýning á þeim verk- um sem hljóta verðlaun og viður- kenningu ásamt opnun á sýning- unni Fegursta orðið. baldvin@365.is Íslenskir teiknarar verðlaunaðir Aðalmarkmið Félags íslenskra teiknara er að efl a starfsstéttina og auka sam- stöðu félagsmanna. Félagið er jafnframt elsta hönnunarfélagið á Íslandi. HÖGNI VALUR Er formaður elsta hönnunarfélags á Íslandi. Hljómsveitin Pixies ætlar að senda frá sér nýja plötu með vor- inu og mun hún bera titilinn Indie Cindy. Um er að ræða fyrstu plötu sveitar innar í heil 23 ár en síðasta plata hennar, Trompe le Monde, kom út árið 1991. Breski upptökustjórinn Gil Nor- ton sér um upptökustjórn á plöt- unni líkt og á síðustu plötu Pixies. David Lovering, trommuleikari Pixies, sagði í yfirlýsingu að sveit- in hefði byrjað að tala um plötu- gerð af alvöru fyrir um fjórum árum og sagði hana jafnframt vilja fara að bjóða aðdáendum sínum upp á nýtt efni á tónleikum. Platan kemur út undir lok apríl- mánaðar hjá útgáfufyrirtæki sveit- arinnar, Pixiesmusic. Pixies með nýja plötu NÝ PLATA Hljómsveitin sendir frá sér plötu eftir 23 ára hlé. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.