Fréttablaðið - 02.04.2014, Síða 2
2. apríl 2014 MIÐVIKUDAGUR| FRÉTTIR | 2
VÍSINDI Ný hágæðasmásjá, sem
kemur til með að valda straum-
hvörfum í rannsóknum í frumulíf-
fræði, verður vígð í Háskóla Íslands
á næstu dögum.
Smásjáin, sem er hýst í Lækna-
garðinum, kostaði tugi milljóna
króna. Hún kemur til með að nýt-
ast í mikilvægum rannsóknum sem
skipta sköpum fyrir læknisfræði-
legar rannsóknir á Íslandi.
Eiríkur Steingrímsson, pró-
fessor í læknadeild HÍ, segir til-
komu smásjárinnar gífurlega
þýðingarmikla fyrir samfélagið.
„Smásjáin gerir okkur vísinda-
mönnum kleift að skoða staðsetn-
ingu próteina innan í frumum, jafn-
vel þegar fruman er lifandi. Hún
verður nýtt í lífvísindarannsóknir,
til að auka skilning á og auðvelda
rannsóknir á alvarlegum sjúkdóm-
um á borð við brjóstakrabbamein,
sortuæxli, arfgenga heilablæðingu
og í stofnfrumurannsóknir.“
Kaupin á tækinu eru afrakst-
ur samvinnu margra vísindahópa,
sem stóðu í sameiningu að styrktar-
umsókninni. „Um er að ræða mörg
rannsóknarteymi, og þau munu öll
koma til með að nýta smásjána í
sínum rannsóknum,“ segir Eiríkur.
„Við erum að leita eftir því að efla
samstarf dreifðra stofnana sem
allar sinna rannsóknum af þessu
tagi, bæði utan og innan háskólans
í þeirri viðleitni að efla samstarfið.
Lífvísindasamfélagið á Íslandi er
lítið, en það er stöðugt að eflast. Til-
koma smásjárinnar er liður í því.“
Smásjáin er af gerðinni Olympus
FV1200, sem er fluorescent conofal-
smásjá af bestu gerð.
Sú smásjá sem áður var nýtt í
rannsóknir af þessu tagi var ekki
nándar nærri eins öflug og þessi,
og umskiptin því gríðarleg.
„Þetta er allt annað, þetta er í
raun eins og að skipta út Trabant
fyrir Benz,“ segir Eiríkur stoltur.
Vígslan fer fram í Lækna-
garði 23. apríl og mun mennta-
málaráðherra annast hana.
julia@frettabladid.is
Tugmilljóna smásjá
til frumurannsókna
Ný hágæðasmásjá var keypt fyrir Læknagarð í Háskóla Íslands. Talið er að hún
muni skipta sköpum í rannsóknum á alvarlegum sjúkdómum á Íslandi.
SMJÁSJÁIN
Sævar Ingþórs-
son doktors-
nemi er stoltur
af nýju smá-
sjánni.
FRÉTTABLAÐIÐ/
DANÍEL
Smásjáin gerir okkur
vísindamönnum kleift
að skoða staðsetningu
próteina innan í frumum,
jafnvel þegar fruman er
lifandi.
Eiríkur Steingrímsson, prófessor við
Háskóla Íslands
➜ Myndu hugleiða
að kjósa hægri-
menn
38,10%
já
61,90%
nei
STJÓRNMÁL MMR kannaði 28.
mars til 1. apríl afstöðu almenn-
ings til þess hvort til greina
kæmi að kjósa nýtt framboð
hægrimanna, sem nyti stuðnings
Þorsteins Pálssonar, fyrrverandi
formanns Sjálfstæðisflokksins,
ef það byði fram í næstu Alþing-
iskosningum.
Af þeim sem tóku afstöðu
sögðu 38,1 prósent að til greina
kæmi að kjósa nýtt framboð
hægrimanna í næstu kosningum
og 61,9 prósent sögðu það ekki
koma til greina.
Þetta er meiri
stuðningur við
mögulegt fram-
boð en áður
hefur mælst,
seg i r M M R.
Svipuð könnun
hafi verið gerð
2012 þegar nýtt
framboð Guð-
mundar Stein-
grímssonar og Besta flokksins
var til umræðu og líka þegar nýtt
framboð Lilju Mósesdóttur kom
til tals.
Þessi framboð nutu stuðnings
23-24 prósenta þeirra sem tóku
afstöðu. Hæst hafi stuðningur
við framboð Guðmundar Stein-
grímssonar farið í 34 prósent í
október 2011. Þeir sem tóku þátt
í könnuninni var fólk 18 ára og
eldra sem valið var handahófs-
kennt úr hópi álitsgjafa MMR.
Svarfjöldi var 960. 65 prósent
þeirra tóku afstöðu til spurn-
ingarinnar. - jme
MMR kannaði afstöðu almennings til nýs framboðs hægrimanna:
Fengi hugsanlega 38 prósent
ÞORSTEINN
PÁLSSON
Þorsteinn, var þeim safnað á
þínu blómaskeiði?
„Já, ég hef löngum verið bæði
blómlegur og ræktarlegur.“
Þorsteinn H. Gunnarsson hefur opnað
sýningu á þurrkuðum íslenskum plöntum
sem hann tíndi árið 1968, sama ár og hann
kvæntist.
LÖGREGLUMÁL Kona á fimmtugs-
aldri var handtekin við JL-hús-
ið í gær. Starfsmaður Nóatúns
gerði lögreglu viðvart eftir
að hann sá konuna sveifla ein-
hverju sem líktist riffli af svöl-
um í íbúð sinni.
Sérsveitin fór inn í íbúðina og
framvísaði konan þá rifflinum,
sem reyndist vera eftirlíking.
Engum skotum var hleypt af á
meðan á aðgerðum stóð.
Ekki er vitað hvað konunni
gekk til. Hún hefur áður komið
við sögu lögreglu.
- jm
Kona handtekin við Nóatún:
Riffillinn var
eftirlíking
ALÞINGI „Það eru brýnir almanna-
og öryggishagsmunir í húfi,“ sagði
Hanna Birna Kristjánsdóttir inn-
anríkisráðherra þegar hún mælti
fyrir lagafrumvarpi á Alþingi
í gær um að
f r e s t a ve rk-
fallsaðgerðum
undirmanna á
Herjólfi til 15.
september.
Þar með verða
siglingar milli
lands og Eyja
samkvæmt áætl-
un.
Hanna Birna sagði að sátt í
deilunni væri ekki í sjónmáli og
því stæðu stjórnvöld frammi
fyrir þeim erfiða kosti að grípa
inn í kjaramál deiluaðila og sú
ákvörðun væri ekki létt.
Sjómenn eru afar ósáttir við
þá ákvörðun að setja lög á verk-
fallsaðgerðirnar.
Jónas Garðarsson hjá Sjómanna-
félagi Íslands segir að sjómenn séu
ósáttir við þessa ákvörðun.
„Sérstaklega þar sem stjórnar-
herrarnir hafa ekki leitað efnisraka
og kannað hvað er í þessari kröfu-
gerð okkar,“ segir Jónas. „Fólkið
á Herjólfi á rétt á sambærilegum
kjarabótum og félagar þeirra sem
vinna sambærileg störf á öðrum
skipum. Það er það sem verið er að
fara fram á.“ - jme
Lög sett á verkfallsaðgerðir sjómanna á Herjólfi vegna brýnna hagsmuna:
Sátt í deilunni ekki í sjónmáli
LÖG Á VERKFALL Samgöngur á milli lands og Eyja verða samkvæmt áætlun eftir að
lög voru sett á verkfallsaðgerðir undirmanna á Herjólfi. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
HANNA BIRNA
KRISTJÁNSDÓTTIR
SVEITARSTJÓRNIR Tillaga um að
ráðist verði í átak til að uppræta
heimilisofbeldi var samþykkt á
borgarstjórnarfundi í gær.
Borgin kallar eftir samstarfi við
stofnanir á borð við Barnavernd,
Félagsþjónustuna og Mannrétt-
indaskrifstofu, sem hafa þekkingu
í málaflokknum, til að bregðast við
og sporna gegn samfélagsmeininu.
Vonir eru um að árangur geti
náðst í að veita bæði þolendum
og gerendum stuðning og úrræði.
Brýna þarf fyrir fólki að fleiri mál
séu tilkynnt og úr þeim unnið til að
draga úr heimilisofbeldi. - jm
Átak samþykkt í borginni:
Vilja uppræta
heimilisofbeldi
APRÍLGABB Fréttablaðið sagði frá því að fyrsti íslenski sirkusbjörninn
yrði til sýnis fyrir gesti Húsdýragarðsins í gær. Bangsinn var sagður
á vegum Sirkuss Íslands og átti að taka þátt í sirkussýningu hans.
Norski björninn Bamse, sem á íslensku er nefndur Bangsi, er þó
enginn alvöru björn heldur er hann tuskudýr.
Sirkusstjórinn Lee Nelson sagði stemninguna í dýragarðinum hafa
verið frábæra og að enginn hafi verið skúffaður þó að dýrið hafi ekki
verið raunverulegt. „Við lékum listir okkar fyrir gestina og allir voru
sáttir við frábæran dag og skemmtu sér konunglega,“ sagði hann en
nokkur fjöldi mætti á svæðið.
„Mig langar að árétta það að Sirkus Íslands myndi aldrei nota lif-
andi dýr. Slíka meðferð á dýrum líðum við alls ekki.“ - jm
Nokkur fjöldi fólks hljóp apríl í Húsdýragarðinum í gær:
Sirkusdýrið Bangsi er tuskudýr
SIRKUSBJÖRNINN „BANGSI“ Gestir Húsdýragarðins voru alsælir með meðlimi
Sirkuss Íslands í gær þótt stjarnan hafi verið úr tuskuefni. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
SPURNING DAGSINS
Páskar í Dublin
VITA er lífiðVITA
Suðurlandsbraut 2
Sími 570 4444
Skráðu þig
í netklúbbinn - VITA.is
17. – 21.apríl
*Verð án Vildarpunkta 69.900 kr.
Tilboðsverð á mann frá 59.900 kr.
og 12.500 Vildarpunktar*
ÍS
LE
N
SK
A
SI
A
.I
S
V
IT
6
85
04
4
/2
01
4
Innifalið: Beint flug með Icelandair,
gisting á hótel Mespil með
morgunverði í 4 nætur
og íslensk fararstjórn.