Fréttablaðið - 02.04.2014, Blaðsíða 24

Fréttablaðið - 02.04.2014, Blaðsíða 24
FÓLK|FERÐIR FÓLK ER KYNNINGARBLAÐ sem býður aug- lýsendum að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og umfjallana ásamt hefðbundnum auglýs- ingum. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega. Útgefandi: 365 miðlar | Ábyrgðarmaður: Jón Laufdal Sölumenn: Bryndís Hauksdóttir, bryndis@365.is, s. 512 5434 Sverrir Birgir Sverrisson, sverrirbs@365.is, s. 512 5432 Kolbeinn Kolbeinsson, kolli@365.is, s. 512-5447 | Hönnun: Silja Ástþórsdóttir Ég mun taka þátt í uppskeru á kaffi og læra allt um kaffi frá baun í bolla. Ég verð hérna næstu þrjá mánuðina,“ segir Steinarr Ólafsson, sem staddur er í steikjandi sólinni í smá- bænum Pedregulho í Brasilíu. Brennandi áhugi Steinars á kaffi tog- aði hann út en hann komst í samband við fyrirtækið O’Coffee gegnum vinkonu sína, kaffispekúlantinn Sonju Grant. Hann segir fyrstu dagana hafa verið afar áhugaverða og spennandi en líka erfiða. „Dagurinn hefst hjá mér klukkan 5.30, bókstaflega við fyrsta hanagal! Ég er síðan mættur í vinnuna klukkustund síðar. Uppskeran hefst ekki fyrr en eftir tvær vikur svo ég er ekki enn farinn að tína baunir. Þess í stað fylgist ég með undirbúningi uppskerunnar, alþrifum á búnaði, plöntun nýrra kaffirunna og fleira. Ég ver líka miklum tíma í að ná tökum á tungumálinu og eyði líka tals- verðum tíma í skjóli skuggans. Sólin og hitinn eru mér næstum um megn,“ segir hann. „Maturinn er heldur einhæfur, kjöt og baunir upp á hvern einasta dag og ekkert grænmeti á boðstólum.“ Steinarr bloggar á steinarro.word- press.com og rekur þar það helsta sem drífur á daga hans. En hvað tekur við þegar kaffiævintýr- inu í Brasilíu lýkur? „Með þessa þekkingu í farteskinu ætla ég bara að sjá til hvað framtíðin ber í skauti sér. Mér liggur ekkert á enn sem komið er, ég er ekki nema 21 árs,“ segir Steinarr sposkur. Hvernig vill svo eldheitur áhugmaður um kaffi hafa kaffið sitt? „Ég vil undantekningarlaust hafa kaffið mitt gott.“ KAFFIÁHUGI TOGAÐI HANN TIL BRASILÍU FERÐIR Steinarr Ólafsson, eldheitur áhugamaður um kaffi, lærir allt um kaffi- rækt í Brasilíu. Hann bloggar um ævintýrið á steinarro.wordpress.com BAUNIR Nýtíndar kaffibaunir.Á AKRINUM Undirbúningur fyrir uppskeru kaffibauna. FALLEGT ÚTSÝNI Horft yfir kaffiakrana. RJÚKANDI SOPI Steinarr kann að meta gott kaffi. RÆKTUN Þar til tínsla hefst á ökr- unum lærir Steinarr að planta nýjum kaffirunnum. FRÁ BAUN Í BOLLA Óbrenndar kaffibaunir. KAFFIÁHUGAMAÐUR Steinarr Ólafsson dreif sig út til Brasilíu til að læra allt um uppáhalds- drykkinn sinn, kaffi. MYND/ÚR EINKASAFNI ■ Nafn Sveindísar Önnu Jóhannsdóttur félagsráðgjafa misritaðist í sérblaðinu Brúðkaup sem fylgdi Fréttablaðinu síðast- liðinn laugardag. Beðist er velvirðingar á því. LEIÐRÉTTING Nicovel®lyfjatyggigúmmí VILTU HÆTTA AÐ REYKJA? Nicovel Fruit og Nicovel Mint lyfjatyggigúmmí, innihalda 2 mg af nikótíni sem nikótín resinat. Nicovel er ætlað reykingamönnum 18 ára og eldri. Ekki má nota Nicovel ef um er að ræða ofnæmi fyrir nikótíni eða einhverju öðru innihaldsefni tyggigúmmísins eða ef þú reykir ekki. Leitið ráða hjá lækni áður en Nicovel er notað ef: þú hefur nýlega fengið hjartaáfall eða heilablóðfall, þú hefur fengið ofnæmisviðbrögð (ofsabjúgur) eða útbrot með kláða (ofsakláði). Einnig ef þú ert með: brjóstverk, hjartakvilla sem hefur áhrif á hraða eða takt hjartsláttar, ómeðhöndlaðan háþrýsting, lifrarsjúkdóm, nýrnasjúkdóm, sykursýki, ofvirkan skjaldkirtil, æxli í nýrnahettumerg (krómfíklaæxli), magasár eða bólgu í vélinda. Einstaklingar undir 18 ára aldri ættu ekki að nota Nicovel nema því sé ávísað af lækni. Viðeigandi skammtur fyrir fullorðna getur haft mikil eituráhrif eða verið banvænn fyrir lítil börn. Þungaðar konur og konur með barn á brjósti skulu eingöngu nota Nicovel í samráði við lækni. Skammtar eru einstaklingsbundnir og valdir út frá nikótínþörf. Yfirleitt er nóg að nota 8-12 tyggigúmmí á dag. Hámarksskammtur er 24 stykki á dag. Nánari upplýsingar um notkun er að finna í fylgiseðli lyfsins. Lesið allan fylgiseðilinn vandlega áður en byrjað er að nota lyfið. Markaðsleyfishafi: Orifarm Generics A/S. Umboð á Íslandi: Icepharma hf. Lynghálsi 13, 110 Reykjavík. NEY140201

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.