Fréttablaðið - 02.04.2014, Blaðsíða 22
| 6 2. apríl 2014 | miðvikudagur
Framtakssjóður Íslands skilaði
metafkomu á síðasta ári, hagn-
aður ársins 2013 nam 7.636
milljónum króna og arðsemi
eiginfjár var 30 prósent. Heild-
areignir félagsins nema 35.862
milljónum króna og bókfært
eigið fé er 32.193 milljónir og
eiginfjárhlutfall 90 prósent.
Síðasta ár var fjórða heila
árið í rekstri sjóðsins frá stofn-
un hans í lok árs 2009. Stofnend-
ur voru sextán lífeyrissjóðir og
upphafleg hlutafjárloforð námu
30 milljörðum króna, sem síðan
voru aukin í 54 milljarða króna.
ALLS 27,5 MILLJARÐAR VERIÐ
GREIDDIR Í ARÐ
Hlutverk Framtakssjóðsins er
að taka þátt í því uppbyggingar-
og umbreytingaferli sem fyrir-
sjáanlegt var að þyrfti að eiga
sér stað í kjölfar bankahruns-
ins og vera þátttakandi í end-
urreisn íslensks atvinnulífs. Þá
var honum ætlað að skila góðri
ávöxtun til eigenda sinna. Sjóð-
urinn skuldsetur sig ekki heldur
innkallar hlutafé hjá eigendum
vegna þeirra fjárfestinga sem
ráðist er í. Jafnframt er sölu-
verði fyrirtækja í eigu sjóðs-
ins skilað til eigenda að lokinni
sölu. Á aðalfundi sjóðsins í lok
mars var samþykkt að greiða
hluthöfum 6,6 milljarða í arð.
Alls hefur sjóðurinn þá greitt
27,5 milljarða til eigenda sinna
sem eru einkum lífeyrissjóð-
ir landsmanna og Landsbank-
inn, sem kom síðar inn sem stór
hluthafi sjóðsins í tengslum við
kaup hans á Vestia sem var
eignarhaldsfélag nokkurra fé-
laga í eigu Landsbankans.
HUGMYND UM NÝJAN
FRAMTAKSSJÓÐ
Þorkell Sigurlaugsson, stjórnar-
formaður Framtakssjóðsins, segir
sjóðinn standa á tímamótum.
„Í fyrsta lagi vorum við með
aðalfund núna sem gekk mjög
vel og við erum að skila metaf-
komu. Það hefur reyndar verið
mjög góð afkoma af sjóðnum
þessi ár sem hann hefur verið
starfandi en þetta er svona með
því betra sem maður sér. Síðan
voru framkvæmdastjóraskipti
hjá okkur og í þriðja lagi höfum
við verið að fá mjög góðar við-
tökur við hugmyndum okkar um
nýjan sjóð,“ segir Þorkell í sam-
tali við Markaðinn.
Hinn nýi sjóður hefur verið
kynntur fyrir hluthöfum sjóðs-
ins, en hugmyndin er að hann
myndi sinna nýjum verkefnum
sem tengjast þeirri uppbygg-
ingu efnahagslífsins sem fram
undan er að sögn Þorkels.
„Rifjum upp að Framtaks-
sjóðurinn var stofnaður í lok
árs 2009 í kjölfar efnahags-
hrunsins sem var einfaldlega
bara hrun fjárhagskerfisins og
bankanna. Þá var tilgangurinn
að endurreisa efnahagslífið,
koma okkur út úr þessum rúst-
um, og lífeyrissjóðirnir þurftu
og vildu koma að þessu verk-
efni. Það hefur gengið mjög vel
og við erum sem sagt búin að
fjárfesta fyrir yfir 70 prósent
af þeim fjárfestingum sem við
höfum heimild fyrir, sem voru
54 milljarðar og líftími sjóðs-
ins er þannig að fjárfestinga-
tímabilinu lýkur eftir ár og þá
er bara verkefnið að vinna úr
þessum eignum sem sjóðurinn
á. Þetta var verkefnið en núna
er ástandið í þjóðfélaginu þann-
ig að við erum að komast í gegn-
um fyrsta fasa erfiðleikanna,
það er dálítið langt um liðið
síðan hrunið varð og það sem
fram undan er er að menn vilja
reyna að fara að byggja upp til
framtíðar, auka hagvöxt, auka
nýtingu okkar á náttúruauðlind-
um og mannauðnum og komast
á það stig að vera ekki bara að
fást við rústir efnahagshrunsins
heldur byggja upp til framtíðar
og komast út úr gjaldeyrishöft-
unum,“ segir Þorkell.
Hann segir mörg verkefni
fram undan sem slíkur sjóður
myndi skoða en það séu öðru-
vísi verkefni heldur en Fram-
takssjóður Íslands hefur verið í.
BYGGT Á FYRIRLIGGJANDI GRUNNI
„Við höfum rætt við nokkra eig-
endur sjóðsins sem eru lífeyris-
sjóðir, um verkefni sem þeir sjá
fram á að þurfi að ráðast í. Þetta
eru svona samfélagsleg verk-
efni sem allir eru sammála um
að þurfi að koma á koppinn, en
aftur á móti enginn einn lífeyr-
issjóður eða einhver einn aðili
sem getur komið að. Og til þess
að búa til sterkan kjarna þá sjá
menn tækifæri til að byggja á
grunni þess sem er til,“ segir
Þorkell og á þá við Framtaks-
sjóðinn.
Hann segir að þau hafi grunn-
stoðirnar, starfsfólkið, þekk-
ingu og öflugan hóp eigenda
sem hefur áhuga á þessum verk-
efnum.
„Þessi sjóður yrði rekinn inni
í þessari umgjörð sem við erum
með og mun kalla inn fjármuni,
með sambærilegum hætti og
við höfum verið að gera, eftir
því sem verkefnin koma upp.
Ef við förum inn í verkefni þá
innköllum við til eigendanna
og getum þá lagt þannig eigið
fé inn í verkefnið. Við myndum
vilja reyna að hafa þennan sjóð
sambærilega stóran, kannski
20 til 30 milljarða til að byrja
með, sem væri þá upphafsskuld-
binding þeirra eigenda sem vilja
vera með í þeim verkefnum sem
Eftir endurreisn þarf uppbyggingu
Framtakssjóður Íslands skilaði metafkomu árið 2013 og hefur alls greitt eigendum sínum, aðallega lífeyrissjóð-
um og Landsbankanum, 27,5 milljarða í arð frá stofnun árið 2009. Þorkell Sigurlaugsson stjórnarformaður hefur
viðrað hugmyndir um nýjan sjóð sem ekki bara fengist við rústir hrunsins heldur uppbyggingu til framtíðar.
VIÐTAL
Fanney Birna Jónsdóttir |
fanney@frettabladid.is
ADVANIA
INVENT FARMA N1 PROMENS
ICELANDAIR
GROUP
ICELANDIC
GROUP
Eignarhlutir FSÍ í félögum
71,6% 7,0%
100%
49,5%20,9%38,0%
Framtakssjóður-
inn vill styðja við
stefnu stjórnvalda og
annarra við afléttingu
gjaldeyrishafta.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA