Fréttablaðið - 02.04.2014, Blaðsíða 28

Fréttablaðið - 02.04.2014, Blaðsíða 28
 | 8 2. apríl 2014 | miðvikudagur Friðbert Traustason, formaður og framkvæmdastjóri Samtaka starfsmanna fjármálafyrir- tækja (SSF), hefur verið formað- ur samtakanna frá 1995. Hann tók við starfi framkvæmda- stjóra fimm árum síðar og var því öllum hnútum kunnugur í kjaraviðræðum SSF og SA sem enduðu með undirritun samn- inga um miðjan síðasta mánuð. „Kjarasamningarnir voru ansi erfiðir enda fyrirfram ákveðnir fyrir alla landsmenn af þremur aðilum, ASÍ, SA og ríkisstjórninni, og það er allt- af erfitt að þurfa að kyngja því. Menn þurftu að velja um ann- aðhvort að éta það hrátt eða fá ekki neitt,“ segir Friðbert. Hann fæddist vestur á Flat- eyri við Önundarfjörð í októ- ber 1954 og byrjaði snemma að vinna. „Í fyrsta starfinu sem ég fékk eitthvað borgað fyrir þurfti ég að hreinsa garnir í sláturhúsinu á Flateyri. Þá var ég átta ára. Það var mjög sérstakt að standa og hreinsa garnirnar ofan í bala sem voru síðan sendar suður til Reykjavíkur til að framleiða úr þeim pylsur. Síðan var ég á sjó frá fermingu og eftirminnileg- asti túrinn var þegar ég fór á síld í Norðursjónum sextán ára gamall.“ Friðbert var í fyrsta útskrift- arárgangi Menntaskólans á Ísa- firði árið 1974. Þaðan lá leiðin í Háskóla Íslands þar sem hann lærði verkfræði í tæp tvö ár. „Síðan söðlaði ég um og fór að vinna hjá Reykjavíkurborg og síðar Reiknistofu bankanna þar sem ég vann við kerfisfræði Keppti í blaki í efstu deild í 15 ár Friðbert Traustason, formaður og framkvæmdastjóri SSF, starfaði áður í sláturhúsi á Flateyri, sem sjómaður og kerfisfræðingur hjá Reiknistofu bankanna. Hann segir afahlutverkið mikilvægasta verkefnið þessa dagana. VESTFIRÐINGUR Friðbert var ráðinn framkvæmdastjóri SFF árið 2000. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA SVIPMYND Haraldur Guðmundsson | haraldur@frettabladid.is Orðheldinn og skemmtilega íhaldssamur og forritun í tuttugu ár. Á þeim árum fór ég aftur í skóla og sótti mér háskólagráðu í hagfræði frá HÍ. Svo fór ég seinna í meist- aranám í stjórnun og stefnumót- un í sama skóla og kláraði þar allt nema ritgerðina, eins og svo margir. Hún er núna sett á júní en hvað verður veit maður aldrei,“ segir Friðbert og hlær. Hann keppti í blaki í efstu deild í fimmtán ár, lengst af með Íþróttafélagi stúdenta, og er að eigin sögn alæta á íþróttir. „Svo var ég viðloðandi öld- ungablakið í seinni tíð þang- að til bakið gaf sig. Ég er einn- ig mikill golfari og svo keypti ég mér hjól í fyrrasumar og er nokkuð duglegur að hjóla í og úr vinnu. Hinum íþróttunum sinn- ir maður orðið mest með því að horfa á sjónvarpið.“ Friðbert er giftur Sigrúnu Ósk Skúladóttur lyfjatækni. Þau eiga tvö börn, lögmanninn Sunnu Ósk og háskólanemann Trausta. „Afahlutverkið er mikilvæg- asta verkefnið þessa dagana. Ég á eina dótturdóttur sem heitir Ragnheiður Ósk og er fjögurra ára. Hún er búin að tilkynna afa sínum að nú vilji hún læra að lesa og að afi þurfi að kenna henni að lesa.“ „Við Friðbert höfum þekkst lengi og unnið saman frá 2004 í stjórn SSF. Friðbert kemur ávallt fram af heilindum og stendur við orð sín. Hann hefur sterka réttlætiskennd og á auðvelt með að sjá báðar hliðar á málum þó hann geti verið harður í samningum. Vestfirska þrjóskan hefur nýst honum vel en jafnframt hefur hann sínar mjúku hliðar og má ekkert aumt sjá. Hann er víðsýnn en á sama tíma skemmtilega íhaldssamur. Í gegnum tíðina hefur hann reynst mér góður lærifaðir. Hann er manna fróðastur um lífeyris- og kjaramál og alltaf tilbúinn að deila upplýsingum og fræða aðra í kringum sig.” Anna Karen Hauksdóttir, formaður Starfsmannafélags Íslandsbanka „Við Friðbert höfum starfað saman að málefnum starfsmanna fjármálafyrirtækja yfir 30 ár. Hann er ótrúlega úrræðagóður þegar leysa þarf flókin mál enda er áhugi hans og þekking á þessu sviði mikil. Þó hann sé lærður hagfræðingur en ekki lögfræðingur hefur hann mikla innsýn í lög- fræðina og hefur mörg erfið mál leyst á grunni þeirrar þekkingar. Þá tel ég að fáir hafi meiri þekkingu á lífeyrismálum og er endalaust hægt að fletta upp í honum þegar þau mál eru til umfjöllunar. Hann er góður stjórnandi og hefur farsællega leitt starfsemi SFF og Lífeyrissjóð bankamanna á liðnum áratugum.” Sveinn Sveinsson hæstaréttarlögmaður Umræðan um gjaldeyris- og pen- ingamál hefur verið býsna ein- sleit á Íslandi. Hún hefur grund- vallast á því að valkostir Íslands séu einkum tveir. Að hafa styrka umgjörð um krónuna og hafa hana áfram eða taka upp evru með aðild að Evrópska mynt- bandalaginu (EMU) með und- anfarandi aðild að ESB. Heiðar Már Guðjónsson hagfræðingur og fjárfestir er með mörg járn í eldinum. Hann hefur skrifað bók um tækifærin á norðurslóðum, hefur fjárfest í fjölda fyrirtækja á Íslandi og varð nýlega stjórnar- formaður Vodafone. Heiðar er einn fárra sem hafa látið til sín taka í opinberri um- ræðu um peningamál og hafa verið tilbúnir að skoða fleiri val- kosti en evru og krónu og hefur hann m.a. fært ágætis rök fyrir því að skynsamlegt geti verið að skoða einhliða upptöku ann- ars gjaldmiðils. Heiðar er gestur okkar í nýjasta þætti Klinksins þar sem hann fer yfir þessi mál. HEIÐAR MÁR GUÐJÓNSSON Krónan verður alltaf vandamál FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI „Nei í rauninni ekki. Það er verið að breiða undir vandann með peninga- prentun. Áður en Mario Draghi (bankastjóri Evrópska seðlabankans) kom fram með sína yfirlýsingu þá höfðu tveir þýskir herramenn frá Bundes- bank sagt af sér í stjórn Evrópska seðlabankans vegna þess að þeir voru á móti því að það kæmu fram lausatök í peningamálum bankans til þess að undirbyggja, fyrir það fyrsta, bankakerfið í Evrópu sem síðan var til þess að undirbyggja ríkisfjármálakerfið í Evrópu. Því bankarnir voru í raun að kaupa ríkisskuldabréf ríkja sem voru í mestri hættu. Seðlabanki Evrópu var svo að endurfjármagna bankana. Þarna ertu kominn með keðju sem hangir öll saman og er ekki sterkari en veikasti hlekkurinn.“ Er evran með fast land undir fótum? „Já, en frekar hugsanlega Evrópusambandið og að aðildarríkin gangi einhvern veginn út úr fjór- frelsinu sem er grundvöllur evrópska samstarfsins. Við sjáum það núna á Kýpur að það er búið að skera á frjálsa flutninga á vörum og fjármagni. Það er ennþá frjáls flutningur vinnuafls, en það eru tvær grunnstoðir þarna sem er búið að loka á. Það er mjög freistandi fyrir ríki í Evrópusambandinu sem eru í vandræðum að minnka samstarf sín á milli.“ Varst þú einn þeirra sem hugsuðu: Það eru raunverulegar líkur á því að evrusvæðið liðist í sundur? Þorbjörn Þórðarson thorbjorn@365.is Viðtalið við Heiðar Má Guðjons- son er hægt að sjá í þættinum Klinkinu á www.visir.is. „Það er merkilegt við peningamálaumræðuna á Íslandi að hún er búin að fara í marga hringi á síðustu 30 árum. (…) Það sem hefur gerst er að menn hafa endurtekið mis- tökin. Endurtekið þessa tilraun að vera með krónu, hvort sem hún er fljótandi, hvort sem hún er föst, hvort sem hún er hálffljótandi, hvort sem hún er innan hafta, menn eru alltaf með mismunandi útgáfur af sama gjaldmiðli sem bíður alltaf skipbrot. Í stað þess að finna sjálf upp hjólið er eðlilegast að við lítum í reynslubanka annarra. Það eru 33 lönd í heiminum sem hafa tekið einhliða upp aðra mynt og þeim hefur öllum vegnað vel. Það eru líka um það bil 60 þjóðir sem hafa bundið sinn gjaldmiðil við annan gjaldmiðil með svokölluðu myntráði. (…) Íslenska krónan er ekki til fyrir almenning í landinu heldur fyrir stjórnmálamenn og embættismenn. Svo þeir geti miðstýrt kerfinu.“ Ertu sammála því að það sé ekki æskilegt fyrir Íslendinga að nota krónuna næstu áratugina nema það breytist eitthvað hérna varanlega í stýringu hennar?

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.