Fréttablaðið - 02.04.2014, Page 32
Hin
hliðin
HERDÍS PÁLA
PÁLSDÓTTIR
FYRIRLESARI OG
MARKÞJÁLFI
Á síðustu árum og áratugum hefur
mikið verið fjallað um frammi-
stöðustjórnun. Helstu áherslurnar
hafa verið á hvað stjórnendur þurfa
að gera gagnvart starfsfólki til að ná
fram góðri eða bættri frammistöðu
hjá starfsfólki. Í þessari umræðu
eru gjarnan nefnd nokkur lykilatriði
sem stjórnendur þurfa að sjá um
að séu í lagi. Þetta eru atriði eins
og að starfsmaður þurfi að kunna
starfið, vita til hvers er ætlast af
honum og fá reglulega hvatningu
og uppbyggilega endurgjöf. Minna
hefur verið rætt um í þessu sam-
hengi að stjórnandinn líti reglulega
í spegilinn og skoði hvernig hann
er að standa sig sem stjórnandi.
Er hugsanlegt að ef stjórnandi
er ekki ánægður með frammistöðu
eins eða fleiri starfsmanna að þá
sé stjórnandinn kannski ekki að
standa sig í sínu hlutverki gagn-
vart starfsfólkinu. Vanstjórnun
(e. under-management), þ.e. að
gefa fólki bara fullkomlega lausan
tauminn og tala helst bara við það
ef eitthvað er að, er ekkert betri en
ofstjórnun (e. micro-management)
þar sem stjórnandi andar stöðugt
ofan í hálsmál starfsfólks og krefur
það jafnvel um að bera allt undir
sig sem það þarf að gera.
Lítur þú í spegilinn?
Stjórnendur þurfa að sinna sínu
hlutverki sem stjórnendur, ekki
að verja öllum tíma sínum ofan
í skurði að grafa heldur fara
reglulega upp úr skurðinum og sjá
hvort verið er að moka í rétta átt,
fylgjast með hvort búnaður er í
lagi, hvort starfsfólk starfi við góðar
aðstæður, hvort einhver sé ekki að
skila sínu hlutverki, hvort einhver
sé að standa sig framúrskarandi
vel og svo framvegis. Án þessarar
yfirsýnar er erfitt fyrir stjórnanda að
standa sig vel og vera góður í sínu
hlutverki.
Ekki vera stjórnandi sem er bara
með flott starfsheiti – stattu í lapp-
irnar og taktu ábyrgð á hlutverkinu.
Það besta sem getur komið út
úr því er þegar þú, kæri stjórnandi,
finnur að starfsfólk þitt er að vaxa
og dafna og nær árangri í starfi
vegna stjórnunar þinnar en ekki
þrátt fyrir stjórnun þína.
Stjórnenda-
vandamál?
USD 112,74
GBP 187,73
DKK 20,834
EUR 155,54
NOK 18,89
SEK 17,473
CHF 127,72
JPY 1,09
Netfang rit stjorn@markadurinn.is Sími 512 5000 Fax 512 5301
Netfang auglýsingadeildar auglys ing ar@markadurinn.is Veffang visir.is
Gengi gjaldmiðla FTSE 100
+54,24 (0,82%)
6.652,61
Fylgstu
með
viðskipta-
vef Vísis á Twitter á
@VisirVidskipti
Save the Children á Íslandi
HESTADAGAR
Í REYKJAVÍK 2012
29. MARS - 1. APRÍL
HESTADAGAR
3. - 6. AP ÍL 2014
Dagskrá Hestadaga 2014
Fimmtudagur 3. apríl
Kl. 19:00 – Setningarathöfn í Hörpu. Ungmenni á hestum koma ríðandi að Hörpu. Móttaka
gesta.
Kl. 20:00 - Hestaat í Hörpu - Er hundur í hestunum?? Hér leiða saman hesta sína Hilmir
Snær og hljómsveitirnar Brother Grass og Hundur í óskilum. Nýstárlegt, tónrænt uppistand
í Norðurljósasal Hörpu. Íslenski hesturinn skoðaður frá öllum hliðum og rifjuð upp rysjótt
nokkuð öðrum hætti en fólk á að venjast. Þá mun hljómsveitin Hundur í óskilum leika lausum
Föstudagur 4. apríl
Hestamannafélögin á höfuðborgarsvæðinu bjóða heim! Föstudaginn 4. apríl ætla hestamanna-
félögin Fákur, Hörður, Sóti, Sprettur og Sörli að bjóða gestum og gangandi í félögin sín. Teymt
undir börnum og léttar veitingar í boði.
17:00 - 19:00 Opin hesthús (valin og merkt með blöðrum), skemmtileg atriði og boðið upp á
hestateymingar fyrir börnin í reiðhöllum félaganna (Fáksmenn taka á móti börnum í reiðgerði við
félagsheimilið).
Laugardagur 5. apríl
Kl. 13:00 – Skrúðreið frá BSÍ – ca. 150 hestar – BSÍ, upp Njarðargötu á Skólavörðuholt, niður
Kl. 20:00 – Ístölt þeirra allra sterkustu í Skautahöllinni í Laugardal - töltmót á ís!
Sunnudagur 6. apríl
Fjölskyldusýning - fjölbreytt atriði - frítt inn!
Konur eru 40% stjórnarmanna í aðal-
stjórn Advania og 50% í varastjórn.
Konur eru í dag tæplega þriðjungur
starfsfólks og stjórnenda hjá Advania.
Hefðbundið hlutfall kvenna í upp-
lýsingatæknifyrirtækjum er 10-15%
samkvæmt upplýsingum frá Félagi
kvenna í upplýsingatækni. Stjórn og
varastjórn Advania uppfylla þannig
ákvæði laga um kynjahlutföll í
stjórnum hlutafélaga.
40%
Advania uppfyllir kvótann
Álagning á bensín hækkaði um
116% á lítra frá árinu 2005 til 2013.
Álagning á lítra var 17,5 krónur árið
2005 en 37,9 árið 2013. Álagning á
dísilolíu hækkaði um 157% eða úr
15,3 krónum á lítra í 39,3 krónur frá
2005 til 2013. Á sama tímabili hækk-
aði vísitala neysluverðs um 69%.
Runólfur Ólafsson framkvæmdastjóri
FÍB segir þetta sýna að álagningin
hafi hækkað umfram þróun verðlags.
157%
Álagning á dísilolíu hækkað
31.03.2014 Þvermóðsku
stjórnarandstöðunnar
virðast lítil takmörk sett. Það
er ótrúlegt að heyra þau enn
og aftur hóta endalausu mál-
þófi um fundarstjórn forseta,
í þetta sinn vegna einfaldra
breytinga á dagskrá þingsins.
Ég bauð þeim að ræða skulda-
málin á föstudag, laugardag
og mánudag en það máttu þau
ekki heyra á minnst. Nú halda
þau því svo fram að það sé
ríkisstjórnin sem þori ekki
að ræða frumvörpin. Þetta
er nánast farsakennd
hegðun. Það er ekki frétt-
næmt að dagskrá þingsins
taki breytingum með
skömmum fyr-
irvara síðustu
vikurnar,
slíkt er
alvana-
legt. Á
síðasta
kjörtímabili vissi maður
sjaldnast hvað yrði á
dagskrá fyrr en sam-
dægurs. Með hótunum
um málþóf vegna ein-
faldra dagskrárbreytinga
nær ómálefnaleg stjórn-
arandstaða nýjum
lægðum.
Sigmundur Davíð
Gunnlaugsson
forsætisráðherra