Fréttablaðið - 02.04.2014, Qupperneq 42
2. apríl 2014 MIÐVIKUDAGUR| SPORT | 26
Það er ekki hægt að
svara betur fyrir sig en á
vellinum og mér fannst
réttlætið hafa betur.
Guðmundur Guðmundsson
Ármúli 8 I 108 Reykjavík I Sími 516 0600 I www.birgisson.is
GLÆSILEGAR
HURÐIR
STERKAR OG HLJÓÐEINANGRANDI
-Einfaldar í uppsetningu. Fjölbreytt úrval.
Sértilboð á hvítlökkuðum hurðum.
Verð frá kr. 29.990. með karmi.
H
ja
rta
la
g
SPORT
HANDBOLTI Guðmundur Guðmunds-
son segir að það hafi verið áfall
fyrir sig að hafa verið dreginn inn
í þá ótrúlegu atburðarás sem átti
sér stað eftir leik Kielce og Rhein-
Neckar Löwen í Meistaradeild Evr-
ópu um þarsíðustu helgi. Eins og
frægt er greindi Guðmundur frá
því að Talant Dujshebaev, þjálfari
Kielce, hefði slegið sig fyrir neðan
beltisstað eftir fyrri leik liðanna í
16-liða úrslitum keppninnar sem
fór fram í Póllandi. Dujshebaev
gekk svo hart fram á blaðamanna-
fundinum eftir leik og sakaði Guð-
mund um afar ósæmilega hegðun í
sinn garð.
„Svo tók við mikið fjölmiðlafár,
eins og kannski eðlilegt er. Sem
betur fer fjölluðu fjölmiðlar um
þetta mál, segi ég í dag,“ sagði Guð-
mundur í samtali við Fréttablað-
ið í gær. Hann var þá í afslöppun
eftir átök mánudagskvöldsins en
þá komst Löwen áfram í Meistara-
deildinni eftir fjögurra marka sigur
á Kielce á heimavelli í síðari viður-
eign liðanna.
Átti ekki að vera hefndarstund
Guðmundur segist hafa ákveðið
fljótlega að ýta málinu til hliðar
og hafa hægt um sig í fjölmiðlum.
Hann setti þess í stað mikinn kraft
í undirbúninginn fyrir leikinn.
„Ég átti mjög mikilvægan fund
með leikmönnum á fimmtudag þar
sem ég lagði upp leikinn. Við vild-
um forðast að nálgast leikinn á
þann hátt að við værum að hefna
einhvers. Þetta snerist um meira en
það því hjartað átti að ráða för. Við
vildum verja heiður minn, liðsins og
handboltans. Það er ekki hægt að
svara betur fyrir sig en á vellinum
og mér fannst réttlætið hafa betur í
þessum leik.“
Guðmundur hefur ætíð lagt ríka
áherslu á að undirbúa lið sín með
svokölluðum „vídeófundum“ og það
var greinilegt að landsliðsþjálfar-
inn fyrrverandi lagði ríka áherslu
á slíkan undirbúning nú.
„Ég hef haldið þá marga en þessir
fundir voru gríðarlega langir,“ sagði
hann og hrósaði sínum leikmönnum.
„Þeir fóru í gegnum allt þetta með
mér og við náðum fram ótrúlegri
samheldni sem var auðmerkjanleg
strax frá fyrstu mínútu leiksins. Það
var í raun ólýsanlegt að sjá hversu
sterk hún var.“
Engin samskipti við Dujshebaev
Guðmundur tók ekki í hönd Dujsh-
ebaev í fyrrakvöld og sagði að sam-
skipti þeirra á milli hafi engin verið.
„Þeim samskiptum er lokið,“
segir Guðmundur. „Ég sá hann ekki
– hvorki fyrir leik né heldur meðan
á honum stóð. Þannig hafði ég ein-
faldlega undirbúið mig fyrir leik-
inn,“ segir hann þó svo að Spán-
verjinn hafi staðið aðeins nokkrum
metrum frá honum á hliðarlínunni,
líkt og venjan er.
Þeir sátu svo saman á blaða-
mannafundi eftir leikinn líkt og
þeim er skylt að gera en þeir rædd-
ust heldur ekki við þar.
„Hann kom með sín ummæli um
leikinn og ég mín. Það var rafmagn-
að andrúmsloft í salnum og upplif-
unin skrítin,“ sagði hann en Guð-
mundur staðfestir að hvorugur hafi
verið spurður út í deilur þeirra á
fundinum. Hann játar að það hafi
komið sér á óvart.
Fengum erfiðasta verkefnið
Í gær var svo dregið í fjórðungs-
úrslit Meistaradeildarinnar og
fékk Rhein-Neckar Löwen það
erfiða verkefni að mæta stórliði
Barcelona.
„Þetta var kannski erfiðasti
andstæðingurinn sem við gátum
fengið enda taldir einna sigur-
stranglegastir í keppninni,“ segir
Guðmundur. „Barcelona er með
þrusulið en við erum líka góðir.
Það er engin ástæða til að fela
okkur fyrir þeim.“
Guðmundur á þó góðar minn-
ingar frá Palau Blaugrana, heima-
velli Börsunga. Hann er einn fárra
þjálfara sem hafa farið þangað
með lið sitt og unnið.
„Það var í fyrsta leiknum
mínum með Löwen og mun ég
seint gleyma honum. En það er
bara góð minning í dag og ekkert
meira.“
Vildum verja heiður minn og liðsins
Guðmundur Guðmundsson stóð uppi sem sigurvegari eft ir baráttu Rhein-Neckar Löwen gegn Kielce í Meistaradeild Evrópu á mánu-
dagskvöld. Hann segist hafa hunsað Talant Dujshebaev, þjálfara pólska liðsins, algjörlega í leiknum og samskipti þeirra hafi engin verið.
STÓR STUND Guðmundur fagnar með leikmönnum sínum eftir sigurinn á Kielce, þeim Patrick Grötzki, Gedeon Guardiola og
Bjarte Myrhol í SAP Arena í Mannheim á mánudagskvöldið. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
Eiríkur Stefán
Ásgeirsson
eirikur@frettabladid.is
Guðmundur Guðmundsson hrósar hornamannin-
um Stefáni Rafni Sigurmannssyni mikið fyrir
framgöngu hans síðustu vikurnar, en hann
hefur fengið meira að spila að undanförnu
vegna meiðsla Uwe Gensheimer.
„Hann átti stórkostlegan leik gegn Ems-
detten í síðustu viku þar sem hann skoraði níu
mörk í tíu skotum, sem er alls ekki sjálfgefið,“ segir
Guðmundur en Stefán Rafn skoraði svo fimm mörk
gegn Kielce. „Hann átti frábæran leik. Stefán hefur
fengið meira að spila síðustu 5-6 vikurnar og staðið sig
frábærlega. Hann er alltaf að bæta sig.“
Framan af tímabili þurfti Stefán Rafn að sitja mikið
á bekknum enda Gensheimer með betri leikmönnum
heims í þeirra stöðu. „En hann tók því af æðruleysi, æfði
vel og var svo til taks þegar á þurfti að halda. Hann var
tilbúinn þegar kallið kom og var frábært að upplifa það.“
Var tilbúinn þegar kallið kom
KÖRFUBOLTI Sverrir Þór Sverrisson, þjálfari Íslands- og bikarmeistara Grinda-
víkur í Dominos-deild karla í körfubolta, verður áfram við störf hjá
félaginu næsta vetur en hann bætir við sig og verður einnig
þjálfari kvennaliðs Grindavíkur.
„Samningurinn við Sverri átti að renna út í sumar
en hann er búinn að skrifa undir nýjan tveggja ára
samning. Það er frágengið að hann þjálfar bæði karla-
og kvennaliðið næstu tvö árin,“ segir Lórenz Óli Ólason,
stjórnamaður í kkd. Grindavíkur, við Fréttablaðið.
Sverrir gerði karlaliðið að Íslandsmeisturum á síðasta
tímabili og bikarmeisturum í febrúar á þessu ári. Liðið er
nú komið í undanúrslit Íslandsmótsins.
Kvennaliðið olli miklum vonbrigðum á tímabilinu en
það endaði í 7. sæti. Jón Halldór Eðvaldsson lét af störfum
sem þjálfari í byrjun febrúar og Lewis Clinch, bandarískur
leikmaður karlaliðsins, stýrði því út tímabilið. - tom
Sverrir þjálfar bæði liðin næsta vetur
FÓTBOLTI Manchester United kom mörgum á óvart í gærkvöldi þegar
það gerði jafntefli við Bayern München, 1-1, í fyrri viðureign liðanna í 8
liða úrslitum Meistaradeildarinnar.
Nemanja Vidic skoraði mark United en Bastian Schweinsteiger mark
gestanna. Sá þýski var svo rekinn af velli og missir af seinni leiknum líkt
og Spánverjinn Javi Martínez sem fékk gult spjald í leiknum.
Bayern var mun meira með boltann en United varðist vel og beitti
skyndisóknum. Liðið varðist ágætlega og átti gamla miðvarðaparið Rio
Ferdinand og Vidic flottan leik.
„Þetta var erfitt. 1-0 hefðu verið góð úrslit en okkur var refsað fyrir ein
mistök með marki,“ sagði Nemanja Vidic eftir leikinn.
Atlético Madrid gerði góða ferð til Barcelona og náði í 1-1 jafntefli.
Portúgalinn Diego kom gestunum yfir með mögnuðu marki en
Neymar jafnaði fyrir Barcelona í seinni hálfleik. „Við bjuggumst
við svona leik. Við vorum meira með boltann en þeir nýttu sín
tækifæri,“ sagði Xavi, leikmaður Barcelona, eftir leikinn. - tom
Allt opið í einvígi United og Bayern
TÆKLING Boltinn straujaður af Danny Wel-
beck í leiknum í gærkvöldi. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY