Fréttablaðið - 02.04.2014, Blaðsíða 46

Fréttablaðið - 02.04.2014, Blaðsíða 46
2. apríl 2014 MIÐVIKUDAGUR| LÍFIÐ | 30 „Fyrsta erindið átti ég síðan fyrir einu og hálfu ári og hafði aldrei klárað þetta lag en þótti alltaf svolítið vænt um það og vissi að einn daginn myndi ég klára það,“ segir Rúrik Gíslason fótboltamaður. „Svo hringdi syst- ir mín í mig og sagði að það væri búið að plana óvissuferð fyrir móður okkar á sextugsafmæl- inu og bað hún mig að semja lag til hennar því ég hafði því miður ekki tök á því að vera með.“ Hann segist þá hafa sest niður með gítarinn sinn og klárað lagið sem fjallar um samband þeirra mæðgina og heitir Í augum mínum. Því næst hafði hann sam- band við Sverri Bergmann söngv- ara og Halldór Gunnar Fjalla- bróður sem sungu og spiluðu inn lagið fyrir hann. Hann segir þá félaga eiga mikið hrós skilið fyrir útfærsluna á laginu sem var spilað fyrir móður hans á sjálfan afmælisdaginn. „Ég hef mjög gaman af því að semja lög og geri ágætlega mikið af því en ég hef ekkert verið að reyna meika það því það eru aðrir sem eru betri en ég að flytja lögin. Ég ber ótrúlega mikla virðingu fyrir íslenskri tónlist svo ég hef ekkert verið að troða mér í sviðsljósið,“ segir Rúrik, sem þó vill ekki útiloka að hann gefi út annað lag einn dag- inn. „Fótbolti á hug minn allan og hitt er áhugamál. Það er ómögu- legt að segja hvað ég geri síðar og veltur svolítið á viðbrögðun- um við þessu lagi, hvort maður sé alveg glataður eða hvort maður eigi semja meira. Mamma var að minnsta kosti ánægð og það skiptir mig öllu máli,“ segir hann glaður í bragði. marinmanda@frettabladid.is Fótboltakappi semur lag um móður sína Rúrik Gíslason gaf móður sinni frumsamið lag um samband þeirra á afmælis- daginn. Sverrir Bergmann söng lagið, Í augum mínum, sem var spilað í óvissu- ferð fj ölskyldunnar þegar móðirin varð sextug. Móðir hans var himinlifandi. ALLTAF Í BOLTANUM Rúrik útilokar ekki að gefa út fleiri lög. Mamma var að minnsta kosti ánægð og það skiptir mig öllu máli, Rúrik Gíslason „Við vorum nýbúin að flytja starf- semina hingað,“ segir stílistinn Alda B. Guðjónsdóttir, en nýverið var brotist inn í fyrirtæki hennar, umboðsskrifstofuna Snyrtilegur klæðnaður. „Það átti að setja upp öryggis- kerfið daginn eftir,“ segir Alda en hún hefur grun um að innbrot- ið hafi átt sér stað um miðjan dag, líklegast sunnudaginn 23. mars. „Tölvunum okkar, myndavélun- um okkar og símum var stolið en verst er samt að tapa öllum gögn- unum sem voru inni á tölvunum,“ segir Alda. „Tölvum er hægt að skipta út, en öll gögnin sem við missum er öll vinnan okkar síðasta ár,“ segir Alda. „Við sjáum um útlit auglýsinga, að finna húsnæði, leikmynd og leik- ara eða fyrirsætur. Það er mikil- vægt fyrir okkur að geta afhent nýjar myndir af leikurum og hús- næði,“ segir Alda sem er bjart- sýn þrátt fyrir erfiðleikana. „Við látum þetta ekkert stoppa okkur. Við erum heppin að vinna með góðu fólki sem sýnir þessu skiln- ing og hefur boðið okkur hjálp. Ég er ómetanlega þakklát fyrir það.“ „Við bjóðum hverjum þeim sem getur afhent okkur þessi gögn væn fundarlaun og látum málið kyrrt liggja þar,“ segir Alda og biður þá sem hafa upplýsingar um málið að hafa samband í gegnum netfangið snyrtilegur@gmail.com. - bþ Öll vinna síðasta árs horfi n Alda B. Guðjónsdóttir lenti í leiðinlegu atviki á dögunum þegar brotist var inn í vinnuaðstöðu hennar og dýrum búnaði og verðmætum gögnum stolið. HARMAR GÖGNIN Öldu finnst verst að tapa gögnunum. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI KYNNTU ÞÉR MIÐ-EVRÓPU UU.IS/SERFERDIRÚRVAL ÚTSÝN SÉRFERÐIR 2014 HLÍÐASMÁRA 19, KÓP. | S. 585 4000 | UU.IS Kynning á sérferðum Úrvals Útsýnar til Mið-Evrópu vor og sumar 2014 verður í Hlíðasmára 19, Kópavogi, fimmtudaginn 3. apríl kl. 20:00. Allir velkomnir. „Það eru breytingar á leikaramálum og sex ný nöfn búin að skrifa undir samning við okkur,“ segir Kristín Eysteinsdóttir, leikhússtjóri Borgarleikhússins, sem er þessa dagana í óða önn að skipuleggja næsta leikár. Meðal þeirra sem hafa skrifað undir fastráðningarsamn- ing við Borgarleikhúsið eru leikararnir Björn Thors og Hilmir Snær Guðnason. Báðir eru þeir þekktir fyrir framgöngu sína á sviði sem og á hvíta tjaldinu gegnum tíðina. Björn var til að mynda í aðalhlut- verki í uppfærslu Þjóðleikhússins á Macbeth í fyrravetur og Hilmir Snær er margverðlaun- aður fyrir störf sín sem leikari og leikstjóri. Hann mun bæði leika og leikstýra í Borgar- leikhúsinu. Aðrir leikarar sem bætast í leikara- hóp Borgarleikhússins á nýju leikári eru þau Katla Margrét Þorgeirsdóttir, Hjörtur Jóhann Jónsson, Þórunn Arna Kristjánsdóttir og Maríanna Clara Lúthersdóttir. Næsta leikár verður fjölbreytt og skemmtilegt að sögn Krist- ínar sem hefur búið til listrænt teymi í leikhúsinu sem þau Ilmur Stefánsdóttir, Tyrfingur Tyrfingsson og Gísli Örn Garð- arsson skipa ásamt starfandi dramatúrgum hússins. - áp Björn Thors og Hilmir Snær til Borgarleikhússins Kristín hefur störf af kraft i en sex nýir leikarar skrifuðu á dögunum undir samning hjá Borgarleikhúsinu. UPPÁHALDS TÓNLISTARMAÐUR „Joni Mitchell er í miklu uppáhaldi, hún er bæði frábært tónskáld og textahöfundur. Einnig þykir mér Michael Jackson frábær.“ Védís Hervör Árnadóttir tónlistarkona. Save the Children á Íslandi

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.