Fréttablaðið - 08.04.2014, Blaðsíða 10

Fréttablaðið - 08.04.2014, Blaðsíða 10
8. apríl 2014 ÞRIÐJUDAGUR| FRÉTTIR | 10 Málsvari byggingamanna AÐALFUNDUR BYGGIÐNAR – FÉLAGS BYGGINGAMANNA FIMMTUDAGINN 10. APRÍL N.K. Á fundunum er boðið upp á kvöldverð. Fundinum verður sjónvarpað milli fundarstaða. Fundurinn er haldinn samtímis í húsnæði félagsins í: REYKJAVÍK Borgartúni 30, 6. hæð AKUREYRI Skipagötu 14, 2. hæð DAGSKRÁ 1 Skýrsla félagsstjórnar. 2 Skýrslur fastanefnda. 3 Reikningar félagsins og skýrsla endurskoðenda. 4 Lagabreytingar og breytingar á skipulagsskrám sjóða, eftir atvikum. 5 Ákvörðun um félagsgjald og mælingagjald. 6 Kosning stjórnar, trúnaðarmannaráðs, uppstillingarnefndar, kjörnefndar og félagslegra skoðunarmanna reikninga félagsins. 7 Kosning fastanefnda. 8 Kosning fulltrúa á ársfund Sameinaða lífeyrissjóðsins, ársfund Stapa lífeyrissjóðs og þing ASÍ. 9 Önnur mál. V E R T - snjallar lausnir 545 3200 wise.is sala@wise.isGold Enterprise Resource Planning Silver ndependent Software Vendor ( SV) Borgartún 26, Reykjavík » Hafnarstræti 102, Akureyri sími: 545 3200 » wise@wise.is » www.wise.is Dynamics NAV er einn mest seldi bókhaldshugbúnaður á Íslandi í dag. Wise er í fararbroddi í upplýsingatækni með sérstaka áherslu á ráðgjöf, hugbúnaðargerð og innleiðingar ásamt öflugri og persónulegri þjónustu. Fjölbreyttar lausnir á sviði fjármála, viðskiptagreindar, verslunar, sérfræðiþjónustu, sjávarútvegs, sveitarfélaga og flutninga, sem einfalda þér þitt hlutverk. Sími 412 2500 - sala@murbudin.is - www.murbudin.is GÆÐAMÁLNING mmako pensill 50 225 Deka Gólfmálning grá 3 lítrar 4.295 rtl LH.apS akeD 3lítrar 909.1 Kletthálsi Reykjavík Reykjanesbæ Deka Pro 10 Innimálning. 10 lítrar 6.995 lt rapsggeVF L r artil5 0, 597 M D ke Ca ryl 7 Innimál in ng. 10 lí trar Deka Pro 4. Veggja- og loftamálning. 10 lítrar 5.795 GÓÐ Þ VOTTA HELDN I kaeD 07Meista kkaal r kk. hv tt .í alýlrkA 1 líter 1 895. Bakki, 25 cm rúlla, grind og pensill. - Sett 951.5 ÚKRAÍNA Aðskilnaðarsinnar í Donetsk lögðu á sunnudag undir sig þinghúsið þar og samþykktu í gær sjálfstæðisyfirlýsingu hér- aðsins. Þeir vilja svo fá þjóðarat- kvæðagreiðslu í héraðinu í næsta mánuði, þar sem kosið verði um sameiningu við Rússland. Donetsk er eitt þeirra héraða í austurhluta Rúmeníu þar sem Rússar eiga mikil ítök. Meirihluti íbúa þar er rússneskumælandi og á rætur að rekja til Rússlands. Aðskilnaðarsinnar réðust einnig inn í stjórnarbyggingar í tveimur öðrum borgum á sunnudag: Luh- ansk og Kharkiv. Rússnesk stjórn- völd segja að á öllum þessum stöð- um hafi mennirnir verið vopnaðir. Oleksandr Túrtsjínov, sem til bráðabirgða gegnir forsetaemb- ættinu í Úkraínu, sakar rússnesk stjórnvöld um að standa á bak við þessar aðgerðir í þeim tilgangi að kynda undir óstöðugleika í landinu. Arsení Jatsenjúk forsætisráð- herra tók undir þessar ásakanir: „Planið er að grafa undan stöðug- leika og senda erlent herlið yfir landamærin til að hertaka hluta landsins. Sem við munum ekki leyfa að gerist.“ Rússneska utanríkisráðuneyt- ið neitar þessum ásökunum, en ítrekar gamlar kröfur sínar um að úkraínsk stjórnvöld breyti stjórn- skipan landsins í sambandsríkis- fyrirkomulag, þannig að héruðin fái meiri sjálfstjórnarvöld. Úkraínskar öryggissveitir reyndu í gær að ná stjórnarbygg- ingunum aftur úr höndum aðskiln- aðarsinna. „Gripið verður til hryðjuverka- varna gegn þeim sem gripu til vopna,“ sagði Túrtsjínov. Hann sagði að þingið myndi koma saman í dag til að ræða harðari refsingar gegn aðskilnaðarsinnum og jafn- vel banna stjórnmálaflokka sem hafa sýnt aðskilnaði áhuga. Rússar innlimuðu Krímskaga í síðasta mánuði eftir að aðskiln- aðarsinnar þar höfðu knúið fram kosningu um sameiningu við Rúss- land. Rússneskir hermenn eru í við- bragðsstöðu víða við austurlanda- mæri Úkraínu. gudsteinn@frettabladid.is Krefjast aðskilnaðar og vilja í Rússland Hópar rússneskumælandi fólks í austanverðri Úkraínu réðust á sunnudag inn í stjórnarbyggingar í þremur héruðum. Í Donetsk lýstu þeir í gær yfir aðskilnaði frá Úkraínu. Túrtsjínov forseti sakar Rússland um að kynda undir óstöðugleika. Rússneskumælandi íbúar í austan- og suðvestanverðri Úkríanu hafa lengi sýnt töluverðan áhuga á nánari tengslum við Rússland. Sama gildir um íbúa í Transnistríu, héraði austast í Moldóvu. Planið er að grafa undan stöðug- leika og senda erlent herlið yfir landa- mærin til að hertaka hluta landsins. Sem við munum ekki leyfa að gerist. Arsení Jatsenjúk forsætisráðherra UNGVERJALAND Ungverjar eru greinilega upp til hópa sáttir við þjóðernissinnann Viktor Orban, sem hefur verið forsætisráðherra Ungverjalands síðan 2010. Flokkur hans, Fidesz, vann yfirburðasigur í þingkosning- um á mánudag, fékk 45 prósent atkvæða og hreinan þingmeiri- hluta. Flest benti til þess að flokk- urinn hefði tryggt sér 133 þing- sæti af 199 og þar með rétt svo nægan þingstyrk til að breyta stjórnarskrá landsins að vild. Árangur Fidesz er í samræmi við skoðanakannanir en góður árangur annars þjóðernis- sinnaflokks, sem heitir Jobbikk, hefu r kom ið nokkuð á óvart. Jobbikk fékk meira en 20 prósent atkvæða og 23 þingsæti, en sá flokkur gengur enn lengra til hægri en Fidesz í þjóðern- isstefnu sinni. Orban hefur ítrekað sætt gagn- rýni, meðal annars af hálfu ráða- manna Evrópusambandsins og ýmissa mannréttindasamtaka, fyrir stjórnarskrárbreytingar og lagabreytingar sem sagðar eru hafa grafið undan lýðræði í landinu. Orban hefur sömuleiðis verið gagnrýndur fyrir lýðskrumsstefnu og flokkur hans hefur einnig sætt gagnrýni fyrir að hafa alið á andúð á bæði gyðingum og rómafólki. - gb Þjóðernissinnar unnu yfirburðasigur í Ungverjalandi á sunnudag: Orban fær nýtt kjörtímabil VIKTOR ORBAN ÍTÖK RÚSSA Í ÚKRAÍNU Kænugarður R Ú M E N Í A MOLDÓVA BÚLGARÍA T Y R K L A N D Abkasía Georgía: Héruð rússneskra aðskilnaðarsinna sem Rússland viðurkennir Svæði með sterk tengsl við Rússland Úkraína: Svæði þar sem rúss- neskumælandi íbúar eru fjölmennir Krímskagi: Innlimaður í Rússland í kjölfar sjálfstæðisyfirlýsingar Sevastópól Suður- Ossetía Ú K R A Í N A R Ú S S L A N D HVÍTA-RÚSSLAND PÓ LL A N D Donetsk Kharkiv Luhansk Ódessa TRANSNISTRÍA 200 km 125 mílur Svarta- hafið

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.