Fréttablaðið - 08.04.2014, Blaðsíða 46
8. apríl 2014 ÞRIÐJUDAGUR| LÍFIÐ | 30
„Þetta gerist á fimm ára fresti, við
spiluðum síðast árið 2009, þar á
undan árið 2004 og ég held meira að
segja að við höfum spilað í Eyjum
árið 1999. Það er mikil tilhlökkun
innan hópsins,“ segir Herbert Við-
arsson, bassaleikari hljómsveit-
arinnar Skítamórals. Hljómsveit-
in treður upp á Þjóðhátíð í Eyjum
ásamt hljómsveitunum Kaleo og
Mammút. Þjóðhátíð í Eyjum fagnar
140 ára afmæli í ár og verður meira
lagt í dagskrána í ár en oft áður.
Kaleo, Mammút og Skítamórall eru
fyrstu þrjú böndin sem tilkynnt eru
á hátíðinni og verða fleiri listamenn
tilkynntir á næstunni.
„Þetta verður geðveikt. Við reyn-
um alltaf að toppa síðasta skiptið
og það var ógeðslega gaman fyrir
fimm árum. Þetta verður hápunktur
sumarsins og flott að loka sumrinu
þarna,“ bætir Herbert við. Hljóm-
sveitin gaf nýverið út lagið Þú ert
ein af þeim og segir Herbert að þeir
ætli að bjóða upp á fleiri ný lög í
Eyjum um verslunarmannahelgina.
Skítamórall spilaði fyrst á Þjóðhátíð
árið 1991 og man Herbert vel eftir
því. Þá voru meðlimir sveitarinnar
aðeins fimmtán ára gamlir.
„Við sættum okkur við allt og
kipptum okkur ekkert upp við það
þegar við vorum sóttir á pallbíl sem
var fullur af fiski og þurftum við að
sitja innan um fiskikörin. Svo feng-
um við ekki að heita Skítamórall.
Árna Johnsen og þeim í þjóðhátíðar-
nefnd fannst það fulldónalegt nafn
þannig að þeir tóku skítinn framan
af nafninu og við hétum bara Mórall
frá Selfossi.“
„Við erum súper spenntir. Við
erum byrjaðir að vinna í nýju efni
sem skilar sér í spilun á næstunni.
Við tökum klárlega nýtt efni á
Þjóðhátíð ásamt einhverju af plöt-
unni okkar, Kaleo,“ segir Jökull
Júlíusson, söngvari hljómsveitar-
innar Kaleo. Hann segir að hljóm-
sveitarmeðlimirnir hafi ekki hikað
þegar þeir voru beðnir um að troða
upp á hátíðinni.
„Það var aldrei spurning þegar
okkur bauðst að spila á Þjóðhátíð.
Þetta er örugglega langskemmtileg-
asta gigg sem maður fær á Íslandi.“
Þetta er í fyrsta sinn sem sveit-
in spilar á Þjóðhátíð en sveitin var
sigursæl á nýafstöðnum Hlustenda-
verðlaunum og sópaði til sín þrenn-
um verðlaunum.
„Hinir strákarnir hafa farið
áður á Þjóðhátíð að skemmta sér
en ég hef aldrei farið þannig að
þetta er aukagleði fyrir mig,“
bætir Jökull við.
Alexandra Baldursdóttir í hljóm-
sveitinni Mammút er líka full til-
hlökkunar fyrir hátíðinni en með-
limir sveitarinnar hafa aldrei sótt
hana heim.
„Við erum mjög spennt. Við
höfum aldrei farið á Þjóðhátíð. Tón-
listarstefnan okkar hefur ekki beint
verið fyrir markhópinn á hátíðinni
þannig að við vorum mjög ánægð
með að vera beðin að spila. Við
erum sérstaklega ánægð því það
eru alltaf einhverjir fordómar gagn-
vart Þjóðhátíð þannig að þetta verð-
ur góð vísindaferð. Við erum mjög
spennt fyrir því að prófa að spila
fyrir nýtt fólk og ánægð með að fá
þetta tækifæri,“ segir Alexandra,
en árið er fullbókað hjá sveitinni.
„Við erum að spila rosalega mikið
í sumar. Gítarleikarinn okkar, hann
Arnar, er búinn að vera í Finnlandi
í tvo mánuði og kemur heim á morg-
un. Við iðum í skinninu að komast í
húsnæði og æfa saman. Við ætlum
eiginlega að taka íslenskan festi-
valatúr í sumar og erum búin að
bóka okkur á flestar hátíðir.“
liljakatrin@frettabladid.is
Kaleo, Mammút og
Skítamórall í Eyjum
Tilkynnt hefur verið hverjar þrjár fyrstu hljómsveitirnar sem spila á Þjóðhátíð í Vest-
mannaeyjum verða en miðasala á hátíðina hefst um miðjan apríl. Hátíðin fagnar
140 ára afmæli í ár. Skítamórall spilaði fyrst á hátíðinni árið 1991 en Mammút og
Kaleo hafa aldrei troðið upp í Eyjum. Allar sveitirnar lofa nýju efni í Herjólfsdal.
• Þjóðhátíð í Eyjum fagnar 140 ára afmæli sínu í ár
• Þjóðhátíðarnefnd lofar glæsilegri dagskrá í tilefni af afmælinu
• Hátíðin fer fram dagana 1. til 3. ágúst
• Miðasala hefst mánudaginn 14. apríl á síðunni dalurinn.is
STAÐREYNDIR UM ÞJÓÐHÁTÍÐ 2014
ÞRENNA Mammút hlaut þrenn verðlaun á Íslensku tónlistarverðlaununum. Plata
sveitarinnar, Komdu til mín svarta systir, var valin plata ársins í flokknum popp og
rokk og plötuumslagið það besta. Þá var lagið Salt með hljómsveitinni einnig valið
lag ársins í sama flokki.
SKÍTAMÓRALL Hljómsveitin fékk bara að heita Mórall þegar
hún tróð upp í fyrsta sinn á Þjóðhátíð árið 1991.
VINSÆLIR Sveitin Kaleo var valin nýliði ársins á Hlustenda-
verðlaununum og plata hennar Kaleo plata ársins.
Svo fengum við ekki
að heita Skítamórall.
Árna Johnsen og þeim í
þjóðhátíðarnefnd fannst
það fulldónalegt nafn
þannig að þeir tóku skít-
inn framan af nafninu og
við hétum bara Mórall frá
Selfossi.
Herbert Viðarsson
KATLA FUND
Société d'Investissement à Capital Variable
14, boulevard Royal – L-2449 LUXEMBOURG
R.C.S. Luxembourg B 96.002
(the “SICAV“)
ANNUAL GENERAL MEETING OF SHAREHOLDERS
The Board of Directors is pleased to convene the shareholders of KATLA FUND to attend the annual general
meeting to be held at the registered office of the SICAV on 17 April 2014 at 10.00 a.m. with the following agenda:
1. Report of the Board of Directors and of the approved statutory auditor
2. Approval of the annual accounts as at 31 December 2013
3. Allocation of the results
4. Discharge to the directors
5. Renewal of the mandate of the approved statutory auditor
6. Statutory elections
7. Miscellaneous
The shareholders are advised that no quorum for the statutory general meeting is required and that decisions
will be taken by simple majority of the votes cast. Proxies are available at the registered office of the SICAV.
Shareholders, who wish to attend the annual general meeting, are requested to inform the Board of Directors
(Fax nr: +352 49 924 2501 – ifs.fds@bdl.lu) at least five calendar days prior to the annual general meeting.
ÚRVALSFÓLKSFERÐ
Tenerife 2. – 21. maí
HLÍÐASMÁRA 19, KÓP. | S. 585 4000 | UU.IS
(60+)
Best Tenerife
Hálft fæði innifalið
VERÐ FRÁ
231.900 KR.
á mann miðað við 2 fullorðna í tvíbýli.
Brottför: 2. maí
Heimkoma: 21. maí.
La Siesta
Hálft fæði innifalið
TILBOÐSVERÐ
208.900 KR.
á mann miðað við 2 fullorðna í tvíbýli.
Brottför: 2. maí
Heimkoma: 21. maí
Skemmtanastjóri
á Tenerife
Kjartan Trausti
Ábendingahnappinn má
finna á www.barnaheill.is
„Þetta er rosalega skemmtilegt
sport,“ segir Jón Þór Sigurðsson,
hljómsveitarmeðlimur Diktu, en
hann varð nýverið Íslandsmeist-
ari í skotfimi í flokki liggjandi
fimmtíu metra riffils.
Jón Þór hefur ekki stundað
skotfimi lengi. „Þetta er smá
grillað því ég byrjaði bara að
æfa í lok árs 2009,“ útskýrir
hann, en Jón Þór varð Íslands-
meistari í sama flokki tveimur
árum síðar, árið 2011, og var í
kjölfarið tekinn inn í landsliðið
í skotfimi.
„Síðan var ég bara mættur
fyrir Íslands hönd á smáþjóð-
leikana í Liechtenstein,“ bætir
hann við, en hann hafnaði í
þriðja sæti á leikunum.
„Við vorum einmitt um þetta
leyti að koma úr þriggja vikna
tónleikaferðalagi þegar ég fór
beint að keppa á smáþjóðaleik-
unum,“ útskýrir hann, en ásamt
því að vera afreksmaður í skot-
fimi þá spilar hann á trommur í
hljómsveitinni Diktu og er flug-
maður hjá Flugfélaginu Ernir.
„Þannig að ég fór beint úr
sveittri hljómsveitarrútu og
inn á stóran leikvang að heilsa
áhorfendum,“ segir hinn fjöl-
hæfi Jón Þór að lokum og hlær.
Úr sveittri rútu á stóran leikvang
Þúsundþjalasmiðurinn Jón Þór Sigurðsson er tvöfaldur Íslandsmeistari í skot-
fi mi, trommari í hljómsveitinni Diktu og fl ugmaður hjá Flugfélaginu Ernir.
ÍSLANDSMEISTARI Jón Þór Sigurðsson
er vígalegur með riffilinn.
MYND/EINKASAFN
Ein með remolaði, steiktum lauk og
tómatsósu á Bæjarins bestu er gjör-
samlega ómissandi.
Sunneva Sverrisdóttir
sjónvarpskona
BESTI BITINN