Fréttablaðið - 08.04.2014, Blaðsíða 19
BÍLAR
Reynsluakstur Peugeot 308
Sala til einstaklinga jókst um 34,1%
Reynsluakstur Hyundai i10
Kína stjórnar ákvörðunum bílasmiða
Ekki telst það algengt að bíla-
merki fari á milli þeirra átta
bílaumboða sem eru hér á landi.
Þær fréttir bárust þó í síð-
ustu viku að þýska merkið Opel
hefði flust til Bílabúðar Benna
frá BL. Þau bílamerki sem Bíla-
búð Benna hefur selt fram að
þessu eru Porsche og Chevrolet,
auk þess sem Ssang Yong-bílar
voru seldir þar um tíma. Chev-
rolet-merkið er í eigu General
Motors, líkt og Opel, svo nú má
segja að Bílabúð Benna sé orðinn
fulltrúi GM á Íslandi. Sameigin-
legur sýningarsalur fyrir Opel
og Chevrolet verður á Tangar-
höfða 8-12 þar sem Chevrolet-
sýningarsalurinn er í dag. Stefnt
er að formlegri vígslu þess sýn-
ingarsals í byrjun júní.
Margir nýir bílar
Þegar sameiginlegur sýningar-
salur Opel og Chevrolet verður
opnaður í júní mun Bílabúð
Benna samhliða kynna nokkra
nýja Opel-bíla sem ekki hafa áður
sést á Íslandi. Það eru smábíllinn
Opel Adam, sem selst mjög vel
á meginlandi Evrópu, ný fernra
dyra Opel Astra í veglegri út-
gáfu, breytt útgáfa Opel Insignia
og Opel Insignia Tourer. Þar
fer upphækkaður, fjórhjóladrif-
inn bíll með 195 hestafla dísilvél
með tveimur forþjöppum. Einnig
er stefnt að því að frumsýna at-
vinnubílalínuna hjá Opel, sem
er mjög vegleg. Combo er þeirra
minnstur, Vivaro er af millistærð
og Movano er stærstur. Þessir
bílar verða fáanlegir í ýmsum
stærðum og gerðum.
Unnið að færslu varahluta og
þjónustu
„Nú er unnið að undirbúningi
færslu Opel frá BL til okkar,“
segir Björn Ragnarsson, fram-
kvæmdastjóri bílasviðs Bílabúð-
ar Benna, „og er þar að mörgu
að hyggja. Nú í apríl munum við
færa varahluta- og verkstæðis-
þjónustu til okkar frá BL og
munum við kynna það um leið
og það gerist en nú er unnið að
þjálfun okkar starfsmanna vegna
þessa. Engir sölumenn Opel fær-
ast á milli fyrirtækjanna, né
heldur hvað varðar þjónustuna,
en hér á bæ er mikil þekking til
staðar er varðar bíla frá General
Motors og hér hefur okkar fólk
þjónustað Opel-bíla til nokkurs
tíma. Auk þess munum við ráða
fleira fólk vegna þjónustu við
Opel-bíla.“
Kaupa beint frá Þýskalandi
Sú breyting hefur orðið sam-
hliða flutningnum að Opel-bílar
sem hingað munu koma fara ekki
í gegnum söluaðila Opel í Dan-
mörku, heldur beint frá Opel í
Þýskalandi. Mun það hafa já-
kvæð áhrif á verð Opel-bíla hér
og verða þeir því á afar sam-
keppnishæfu verði. Þessi grund-
vallarbreyting mun hafa mikla
þýðingu fyrir Opel-merkið hér-
lendis, bæði hvað varðar afhend-
ingu á bílum sem og verð þeirra.
„Það eru spennandi tímar fram
undan fyrir Bílabúð Benna. Við
höfum náð flottum árangri með
Chevrolet á undanförnum árum
og nú bætum við Opel í okkar
vöruframboð. Við munum leggja
áherslu á að veita Opel-eigendum
fyrsta flokks þjónustu hér eftir
sem hingað til ásamt því að bjóða
gott úrval bíla á samkeppnishæfu
verði,“ segir Benedikt Eyjólfsson,
eigandi Bílabúðar Benna ehf.
BÍLABÚÐ BENNA TEKUR VIÐ OPEL
Bílarnir eru keyptir beint frá Þýskalandi og verða margar nýjar bílgerðir kynntar í júní, meðal annars Opel Adam.
ÖRUGGT START
MEÐ EXIDE RAFGEYMUM
Endingargóðir og sterkbyggðir rafgeymar fyrir flestar gerðir
bifreiða. Veldu þaulreynda vöru frá gæðaframleiðanda.
PI
PA
R\
TB
W
A
•
SÍ
A
•
13
18
58 Exide rafgeymarnir fást hjá:
ÞRIÐJUDAGUR 8. APRÍL 2014