Fréttablaðið - 08.04.2014, Blaðsíða 8
8. apríl 2014 ÞRIÐJUDAGUR| FRÉTTIR | 8
BREYTIR EKKI AFSTÖÐU STJÓRNVALDA
Það er gott að skýrslan sé komin fram. Ég verð að
viðurkenna að ég hef ekki náð að kynna mér hana
út í ystu æsar en hef lesið samantekt og helstu niðurstöður.
Skýrslan bætir ekki miklu við það sem hefur komið fram en
það kemur þó fram að ferlið hefur þyngst mjög frá því sem
það var þegar Norðmenn voru einnig í ferlinu og þar hafði
makríll og Icasave mikil áhrif. En annars sé ég ekkert nýtt í
skýrslunni á þessum tímapunkti sem breytir afstöðu
stjórnvalda um að draga umsóknina tilbaka.
Gunnar Bragi Sveinsson, utanríkisráðherra
SÉRLAUSNIR HÖFÐU VERIÐ VIÐURKENNDAR
Skýrslan vekur mikla athygli því að í henni kemur
fram með skýrum hætti að viðræður um aðild að
Evrópusambandinu voru í ágætisgangi og fengist hafði
ágætisárangur í ferlinu sama við hvað er miðað. Ljóst er að
sérlausnir höfðu verið viðurkenndar í ferlinu og því ekki
hægt að halda því fram að útilokað sé að fá sérlausnir í
aðildarumsóknarferlinu. Það kemur líka skýrt fram að hægt
er að fá fullnægjandi lausnir fyrir sjávarútvegshagsmuni
Íslands. En efnahagskaflinn hlýtur að vekja mesta athygli þar sem rakinn er sá
mikli velferðarábati sem við mundum njóta með upptöku evrunnar sem
alþjóðlega viðurkennds gjaldmiðils. (Úr fyrirspurn Árna Páls til Bjarna
Benediktssonar á Alþingi í gær.)
Árni Páll Árnason, þingmaður Samfylkingar
ÓSAMSTAÐA Í RÍKISSTJÓRN VALDIÐ TÖFUM
Ég hef nú rétt lesið fyrirsagnirnar um þá skýrslu
sem hér er getið um og ekki kynnt mér efni
hennar enn, en ég tek eftir því að það eru nokkrar
meginniðurstöður komnar í umræðuna, að það hafi verið
ágætisgangur í viðræðunum. Gott og vel. Það gengur samt
mun hægar en að var stefnt. Í öðru lagi segir víst einhvers
staðar í skýrslunni að ósamstaða í ríkisstjórninni, ósam-
staða um hvernig vinna ætti að framgangi mála í ein-
stökum málaflokkum hafi valdið töfum, sem er athyglis-
vert, ekki síst í ljósi þeirrar umræðu sem átt hefur sér stað að undanförnu um
hvort það sé yfir höfuð mikilvægt að ríkur stuðningur sé í ríkisstjórn við málið
eða ekki. Sumir vilja halda því fram að það skipti bara engu máli. (Úr svari
Bjarna við fyrirspurn Árna Páls á Alþingi í gær.)
Bjarni Benediktsson, fjármálaráðherra
SÝNIR AÐ KLÁRA ÞURFI AÐILDARSAMNINGINN
Það sem kemur þarna fram sýnir að mjög erfitt er
að segja til um hvernig samning við fáum, hvort
samningurinn við ESB reynist þjóðinni til góðs eða ekki, því
það er einfaldlega of mörgum spurningum ósvarað. Þeim
fáum við ekki svarað nema við klárum aðildarsamninginn í
stað þess að tala í viðtengingarhætti og gefa sér forsendur.
Eins og í sjávarútvegsmálum, enda hefur engin þjóð sótt um
í ESB þar sem þau mál vega svona þungt í efnahag landsins.
En við getum ekki lagt mat á heildarhagsmuni fyrr en við erum komin með öll
þessi svör og þau fáum við með því að klára ferlið.
Margrét Kristmannsdóttir, formaður Samtaka verslunar og þjónustu
BYGGT Á NAFNLAUSUM EMBÆTTISMÖNNUM
Ég er ekki búin að lesa skýrsluna, því hún var bara
birt í [gær]morgun. En það sem ég geri alvarlegar
athugasemdir við, er að sjálfsögðu sjávarútvegskaflinn sem
byggður er upp á andlitslausum og nafnlausum embættis-
mönnum á göngunum í Brussel. Þetta bara herðir mig
frekar en hitt í að telja hag Íslands betur borgið fyrir utan
Evrópusambandið. Vegna þessara haldlausu raka sem komu
hér fram. Ýmislegt sem ekki stenst og er hrakið beinlínis í
skýrslu Hagfræðistofnunar þegar þessar tvær skýrslur eru lesnar saman.
Vigdís Hauksdóttir, þingkona Framsóknarflokksins og formaður fjárlaganefndar
SAMNINGAR VORU Á BÝSNA GÓÐRI LEIÐ
Meginniðurstaðan er sú að það mælir allt með því
að viðræðunum verði haldið áfram. Það voru
ákveðnar spurningar sem þurfti að svara varðandi sjávarút-
vegsmálin– það má heita að það sé það eina óþekkta í þessu.
Svörin við því fást ekki nema látið verði reyna á samning.
Þess vegna finnst mér ljóst að það þurfi að klára viðræð-
urnar. En kannski er meginniðurstaðan sú að samningarnir
voru á býsna góðri leið. Mikill undirbúningur sem var búið að
vinna og talsverður skilningur sem var búið að ná.
Össur Skarphéðinsson, þingmaður Samfylkingar
GAR
ÐIN
N
Í SUMAR MUN BJÖRN JÓHANNSSON
VEITA VIÐSKIPTAVINUM BYKO RÁÐGJÖF
VEGNA FRAMKVÆMDA Í GARÐINUM
Hálftíma ráðgjöf kostar 5.900 kr.
Sú upphæð nýtist sem inneign þegar
keypt er efni í garðinn í BYKO.
Björn Jóhannsson
landslagsarkitekt.
GARÐA
HÖNNU
NPANTAÐU RÁ
ÐGJÖF
VIÐ
TILLÖGUR UNNAR Í ÞRÍVÍDD
Skráning á netfangið
gudrunhalla@byko.is
og í síma 5154144
kl. 9-16 virka daga.
PANTAÐU RÁÐGJÖF
SKÝRSLA ALÞJÓÐASTOFNUNAR UM ESB
Viðbrögð við
skýrslunni
Fyrstu viðbrögð við nýrri Evrópuskýrslu Alþjóðamála-
stofnunar Háskóla Íslands eru misjöfn eins og búast
mátti við. Sumum finnst skýrslan sýna það og sanna
að aðildarviðræðum skuli haldið áfram en aðrir að
slíkt sé byggt á haldlausum rökum embættismanna.