Fréttablaðið - 08.04.2014, Page 8

Fréttablaðið - 08.04.2014, Page 8
8. apríl 2014 ÞRIÐJUDAGUR| FRÉTTIR | 8 BREYTIR EKKI AFSTÖÐU STJÓRNVALDA Það er gott að skýrslan sé komin fram. Ég verð að viðurkenna að ég hef ekki náð að kynna mér hana út í ystu æsar en hef lesið samantekt og helstu niðurstöður. Skýrslan bætir ekki miklu við það sem hefur komið fram en það kemur þó fram að ferlið hefur þyngst mjög frá því sem það var þegar Norðmenn voru einnig í ferlinu og þar hafði makríll og Icasave mikil áhrif. En annars sé ég ekkert nýtt í skýrslunni á þessum tímapunkti sem breytir afstöðu stjórnvalda um að draga umsóknina tilbaka. Gunnar Bragi Sveinsson, utanríkisráðherra SÉRLAUSNIR HÖFÐU VERIÐ VIÐURKENNDAR Skýrslan vekur mikla athygli því að í henni kemur fram með skýrum hætti að viðræður um aðild að Evrópusambandinu voru í ágætisgangi og fengist hafði ágætisárangur í ferlinu sama við hvað er miðað. Ljóst er að sérlausnir höfðu verið viðurkenndar í ferlinu og því ekki hægt að halda því fram að útilokað sé að fá sérlausnir í aðildarumsóknarferlinu. Það kemur líka skýrt fram að hægt er að fá fullnægjandi lausnir fyrir sjávarútvegshagsmuni Íslands. En efnahagskaflinn hlýtur að vekja mesta athygli þar sem rakinn er sá mikli velferðarábati sem við mundum njóta með upptöku evrunnar sem alþjóðlega viðurkennds gjaldmiðils. (Úr fyrirspurn Árna Páls til Bjarna Benediktssonar á Alþingi í gær.) Árni Páll Árnason, þingmaður Samfylkingar ÓSAMSTAÐA Í RÍKISSTJÓRN VALDIÐ TÖFUM Ég hef nú rétt lesið fyrirsagnirnar um þá skýrslu sem hér er getið um og ekki kynnt mér efni hennar enn, en ég tek eftir því að það eru nokkrar meginniðurstöður komnar í umræðuna, að það hafi verið ágætisgangur í viðræðunum. Gott og vel. Það gengur samt mun hægar en að var stefnt. Í öðru lagi segir víst einhvers staðar í skýrslunni að ósamstaða í ríkisstjórninni, ósam- staða um hvernig vinna ætti að framgangi mála í ein- stökum málaflokkum hafi valdið töfum, sem er athyglis- vert, ekki síst í ljósi þeirrar umræðu sem átt hefur sér stað að undanförnu um hvort það sé yfir höfuð mikilvægt að ríkur stuðningur sé í ríkisstjórn við málið eða ekki. Sumir vilja halda því fram að það skipti bara engu máli. (Úr svari Bjarna við fyrirspurn Árna Páls á Alþingi í gær.) Bjarni Benediktsson, fjármálaráðherra SÝNIR AÐ KLÁRA ÞURFI AÐILDARSAMNINGINN Það sem kemur þarna fram sýnir að mjög erfitt er að segja til um hvernig samning við fáum, hvort samningurinn við ESB reynist þjóðinni til góðs eða ekki, því það er einfaldlega of mörgum spurningum ósvarað. Þeim fáum við ekki svarað nema við klárum aðildarsamninginn í stað þess að tala í viðtengingarhætti og gefa sér forsendur. Eins og í sjávarútvegsmálum, enda hefur engin þjóð sótt um í ESB þar sem þau mál vega svona þungt í efnahag landsins. En við getum ekki lagt mat á heildarhagsmuni fyrr en við erum komin með öll þessi svör og þau fáum við með því að klára ferlið. Margrét Kristmannsdóttir, formaður Samtaka verslunar og þjónustu BYGGT Á NAFNLAUSUM EMBÆTTISMÖNNUM Ég er ekki búin að lesa skýrsluna, því hún var bara birt í [gær]morgun. En það sem ég geri alvarlegar athugasemdir við, er að sjálfsögðu sjávarútvegskaflinn sem byggður er upp á andlitslausum og nafnlausum embættis- mönnum á göngunum í Brussel. Þetta bara herðir mig frekar en hitt í að telja hag Íslands betur borgið fyrir utan Evrópusambandið. Vegna þessara haldlausu raka sem komu hér fram. Ýmislegt sem ekki stenst og er hrakið beinlínis í skýrslu Hagfræðistofnunar þegar þessar tvær skýrslur eru lesnar saman. Vigdís Hauksdóttir, þingkona Framsóknarflokksins og formaður fjárlaganefndar SAMNINGAR VORU Á BÝSNA GÓÐRI LEIÐ Meginniðurstaðan er sú að það mælir allt með því að viðræðunum verði haldið áfram. Það voru ákveðnar spurningar sem þurfti að svara varðandi sjávarút- vegsmálin– það má heita að það sé það eina óþekkta í þessu. Svörin við því fást ekki nema látið verði reyna á samning. Þess vegna finnst mér ljóst að það þurfi að klára viðræð- urnar. En kannski er meginniðurstaðan sú að samningarnir voru á býsna góðri leið. Mikill undirbúningur sem var búið að vinna og talsverður skilningur sem var búið að ná. Össur Skarphéðinsson, þingmaður Samfylkingar GAR ÐIN N Í SUMAR MUN BJÖRN JÓHANNSSON VEITA VIÐSKIPTAVINUM BYKO RÁÐGJÖF VEGNA FRAMKVÆMDA Í GARÐINUM Hálftíma ráðgjöf kostar 5.900 kr. Sú upphæð nýtist sem inneign þegar keypt er efni í garðinn í BYKO. Björn Jóhannsson landslagsarkitekt. GARÐA HÖNNU NPANTAÐU RÁ ÐGJÖF VIÐ TILLÖGUR UNNAR Í ÞRÍVÍDD Skráning á netfangið gudrunhalla@byko.is og í síma 5154144 kl. 9-16 virka daga. PANTAÐU RÁÐGJÖF SKÝRSLA ALÞJÓÐASTOFNUNAR UM ESB Viðbrögð við skýrslunni Fyrstu viðbrögð við nýrri Evrópuskýrslu Alþjóðamála- stofnunar Háskóla Íslands eru misjöfn eins og búast mátti við. Sumum finnst skýrslan sýna það og sanna að aðildarviðræðum skuli haldið áfram en aðrir að slíkt sé byggt á haldlausum rökum embættismanna.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.