Fréttablaðið - 08.05.2014, Blaðsíða 23

Fréttablaðið - 08.05.2014, Blaðsíða 23
FIMMTUDAGUR 8. maí 2014 | SKOÐUN | 23 Miklar umræður hafa orðið í fjölmiðlum að undan- förnu um málefni geð- sjúkra sem kljást að auki við fíknivanda. Koma þess- ar umræður í kjölfar bruna á heimili konu með þennan erfiða vanda og viðtöl við aðstandendur hennar og fleiri, m.a. framkvæmda- stjóra Geðhjálpar. Við, starfsmenn geð- sviðs, getum ekki rætt þetta einstaka mál opin- berlega. En ofarlega á baugi í umræðunum er hvernig kerfið hafi brugðist, hve mikið hafi verið skorið niður á geð- deildum og hve mikill skortur er á úrræðum í kjölfar þessa niður- skurðar á leguplássum. Mér finnst þessar umræður aðeins á villi- götum og sýna hversu skammt við erum komin í að breyta viðhorfum okkar til geðheilbrigðisþjónustu til samræmis við það sem ger- ist í þeim löndum sem við berum okkur saman við og hve átakan- lega okkur skortir stefnu í mála- flokknum. Síðastliðin ár hefur orðið mikil breyting í þessum málaflokki í Evrópu og víðar. Þar er víðast hvar lögð áhersla á samþætta geðheilsu- og félagsþjónustu í nær- samfélaginu meðan legu- plássum á geðspítölum er fækkað. Þróunin er hæg- ari hér en aðeins þrjú ár eru síðan síðustu lang- legugeðdeildinni var lokað á geðsviði Landspítalans og nú á þó enginn lengur heima á geðdeildum hér. Erlendis hafa svokallað- ar geðheilsumið stöðvar verið stofnaðar í bæjarhlutum stórborga og úti á landi. Þar hefur fólk getað leitað geðþjónustu eftir því sem þörf er á. Þar eru oftast nokkur bráðapláss ef innlagnar er þörf í styttri tíma, dagdeildir og þverfagleg og fjölbreytt hreyfan- leg teymi sem sinna fólki á heima- velli. Þrátt fyrir þessar breytingar hefur verið sýnt fram á að sé enn þörf á bráðageðdeildum á spítölum og að blanda af þessu tvennu sé það sem nýtist fólki best. Þverfagleg geðteymi Það sýnir líka hversu stutt við erum komin á veg hér í umræðunni að í fjölmiðlaumfjöll- uninni um fyrrnefndan atburð voru ekki nefnd þau þverfaglegu geðteymi sem þó starfa á höfuð- borgarsvæðinu, þ.e.a.s. geðteymi heimaþjónustu Reykjavíkur borgar sem hefur verið starfandi síðan 2005, nýtilkomin geðheilsumiðstöð Breiðholts og samfélagsgeðteymi geðsviðs Landspítala, sem tók til starfa 2010 og er þverfaglegt geð- teymi sem sinnir fólki með alvar- legar geðraskanir og aðstandend- um þeirra. Það teymi var stofnað í kjölfar markvissra breytinga á geðsviði þrátt fyrir niðurskurð og fjármálakreppu. Eins má nefna teymi á vegum heilsugæslunnar á höfuð borgar- svæðinu, sem kallast Geðheilsa – eftirfylgd, að ógleymdum úrræðum frjálsra félagasamtaka sem reka fjölþætta dagþjónustu á höfuðborgarsvæðinu og úti á landsbyggðinni. Þessi úrræði og fleiri starfa eftir hugmyndafræði vald eflingar og bata (e. recovery), sem hefur rutt sér rúms í geðmeð- ferð undanfarin ár með áherslu á réttindi, val og ábyrgð fólks á lífi sínu sem fullgildir þjóðfélags- þegnar. Það veitist mörgum erfitt að þurfa að reiða sig á stuðning annarra og ekki eru allir í stakk búnir að taka á móti aðstoð, en þá reynir sérstaklega á lausn siðferði- legra vandamála, svo sem hve- nær eigi að grípa inn í líf fólks og svipta það frelsi. Betur má ef duga skal og það er þörf á að efla þennan málaflokk. Það er ekki nóg að breyta geð- deildum og stuðningi þaðan, vel- ferðarþjónusta sveitarfélaga verð- ur að koma að málum á breiðum grundvelli. Dæmi eru erlendis um alvarleg atvik af þeim toga sem hér hefur verið til umræðu vegna skorts á úrræðum í samfélaginu. En þetta er ekki bara mál geð- sjúkrahússins, ég efast um að fólk vilji að hér verði fólk lokað inni á geðdeildum eins og tíðkaðist fyrir áratugum, gleymt og ósýni- legt. Við eigum að gera þá kröfu til stjórnvalda að þau setji stefnu í málaflokknum. Það er fyrsta skref. En svo þarf að setja í það nægilegt fjármagn til að uppbygg- ing verði markviss, með aðkomu notenda og fagfólks og byggð á mannréttindum og fjölbreytni sem hæfir þörfum samfélagsins. Lýst er eftir stefnu Árið er 2014 og hér á landi ríkir ekki raun- verulegt jafn- rétti. Kyn bundið ofbeldi er enn útbreitt. Konur eru enn í minni- hluta í stjórnum fyrirtækja og stofnana. Þá er óút skýrður launamunur kynjanna enn til staðar, sem gerir það að verkum að ís lenskar konur eru á starfsævi sinni hlunn- farnar um margar milljónir króna. Reykjavíkurborg er stærsti vinnustaður landsins og á hún að beita sér af fullum þunga fyrir því að uppræta það mein sem kyn- bundinn launamunur er á íslensku samfélagi. Hann fær hærri laun Dóttir mín er þriggja ára og vel má hugsa sér að hún verði sam- ferða skólabróður sínum af leik- skólanum gegnum lífið og upp- lifi sams konar hluti – þar sem þau verða sjö ár í Fossvogsskóla, eigi sömu vinina, æfi hand- og fótbolta með Víkingi, verði þrjú ár í Réttar holts skóla, fari í sama menntaskólann og ljúki sama háskólanámi. Það er grátlegt að hugsa til þess að þrátt fyrir sama bakgrunn, reynslu og menntun eru raunveru- legar líkur til þess að hann muni fá hærri laun en hún fyrir sam- bærilegt starf. Ef ekkert breytist mun uppsafnaður launamismunur að starfsævi þeirra lokinni nema skuggalega háum upphæðum. Þessu verður að breyta. Borgin sýni gott fordæmi Reykjavíkurlistinn beitti sér gegn kynbundnum launamun hjá borg- inni og dró þá verulega saman með kynjunum, en þrátt fyrir það er launamunurinn enn til staðar líkt og kannanir sýna. Meirihluti Samfylkingar og Besta flokks tók alvarlega niðurstöðum sem sýndu að konur sem starfa hjá borginni fá lægri laun en karlar. Í framhaldinu var fyrir hálfu ári sett upp metnaðarfull áætlun um aðgerðir gegn kynbundnum launa- mun sem fylgja verður eftir. Inn- leiða þarf svokallaðan jafnlauna- staðal sem aðstoðar fyrirtæki og stofnanir við að koma á og við- halda launajafnrétti. Höfuð borgin á að ganga fram með góðu for- dæmi og mun Samfylkingin beita sér fyrir því á komandi kjörtíma- bili. Borg launa- jafnréttis HEILBRIGÐIS- MÁL Guðbjörg Sveinsdóttir geðhjúkrunar- fræðingur ➜ Erlendis hafa svokallaðar geðheilsumiðstöðvar verið stofnaðar í bæjarhlutum stór- borga og úti á landi. Þar hefur fólk getað leitað geðþjónustu eftir því sem þörf er á. JAFNRÉTTI Magnús Már Guðmundsson frambjóðandi Samfylkingarinnar til borgarstjórnar SPENNANDI MORGUNVERÐARFUNDUR Við hvetjum þig til að taka frá fimmtudaginn 15. maí, kl. 8:30-10:00, og mæta á spennandi morgunverðarfund hjá RB. Á fundinum verður sögð reynslusaga um hjúpun grunnkerfa og þeim áskorunum sem því fylgir. Fundurinn verður haldinn í höfuðstöðvum RB Höfðatorgi, Katrínartúni 2, á 4. hæð. REYNSLUSAGA UM HJÚPUN GRUNNKERFA FRÁ GLUGGAUMSLÖGUM TIL TÖLVUSKÝJA AÐGANGUR ÓKEYPIS Nánari upplýsingar og skráning á www.rb.is Ingþór Júlíusson forstöðumaður Hugbúnaðarþróunar RB Þorsteinn Björnsson framkvæmdastjóri Viðskiptaþróunar og ráðgjafar hjá RB Guðjón Karl Arnarson Vörustjóri hjá RB Á R N A S Y N IR Framsögumenn fundarins:
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.