Vegna viðhaldsvinnu geti verið truflanir á þjónustu Tímarit.is frá 18:00 og fram eftir kvöldi.

Fréttablaðið - 08.05.2014, Blaðsíða 56

Fréttablaðið - 08.05.2014, Blaðsíða 56
8. maí 2014 FIMMTUDAGUR| SPORT | 44 ENSKA DEILDIN MAN.CITY-ASTON VILLA 4-0 1-0 Edin Dzeko (64.), 2-0 Edin Dzeko (72.), 3-0 Stevan Jovetic (89.), 4-0 Yaya Toure (90.+3) SUNDERLAND-WEST BROM 2-0 1-0 Jack Colback (13.), 2-0 Fabio Borini (31.). Sunderland vann sinn fimmta leik í röð og er búið að bjarga sér frá falli. STAÐAN Í DEILDINNI Man City 37 26 5 6 100-37 83 Liverpool 37 25 6 6 99-49 81 Chelsea 37 24 7 6 69-26 79 Arsenal 37 23 7 7 66-41 76 Everton 37 20 9 8 59-39 69 Tottenham 37 20 6 11 52-51 66 Man Utd 37 19 6 12 63-42 63 Southampton 37 15 10 12 53-45 55 Newcastle 37 15 4 18 42-57 49 Stoke 37 12 11 14 43-51 47 Crystal Palace 37 13 5 19 31-46 44 West Ham 37 11 7 19 40-49 40 Swansea 37 10 9 18 51-53 39 Sunderland 37 10 8 19 40-57 38 Aston Villa 37 10 8 19 39-58 38 Hull 37 10 7 20 38-51 37 West Brom 37 7 15 15 42-57 36 Norwich 37 8 9 20 28-60 33 Fulham 37 9 4 24 38-83 31 Cardiff 37 7 9 21 31-72 30 1-0 fyrir Stjörnuna í úrslitaeinvíginu FÓTBOLTI Á fundi stjórnar KSÍ í janúar voru gerðar breyt ingar á regluverki sambandsins hvað varðar aga- og úrskurðarmál. Ný grein, 16. grein aga- og úrskurðar- mála, var tekin í notkun en hún var sett inn vegna tilskipunar Alþjóða- knattspyrnusambandsins. Nýja ákvæðið tekur á mis- munun og á að leggja áherslu á að taka fast á hvers kyns mis- munun eða fordómum. Ákvæðið er þýðing á ákvæði í agareglu- gerð FIFA sem öllum knatt- spyrnusamböndum innan FIFA ber að taka upp, en öllum aðildar- félögum KSÍ var sent dreifibréf um tilkomu nýja ákvæðisins og hvaða viðurlög það hefur í för með sér. Áður hafa íslenskir leikmenn verið settir í bönn og sektaðir fyrir mismunun á knattspyrnu- vellinum en 16. greinin var fyrst notuð í agadómi KSÍ í síðasta mán- uði þegar Gylfi Örn Á. Öfjörð, leik- maður Víðis í Garði, var úrskurð- aður í fimm leikja bann og félagið sektað um 100.000 krónur vegna framferðis hans í leik Víðis og Ísbjarnarins í leik í C-deild Lengjubikarsins. Gylfi fékk rautt spjald á 45. mínútu leiksins, sem fram fór 5. apríl í Garðinum, fyrir að beita Rui Pedro De Jesus Pereira, leikmann Ísbjarnarins, kynþáttaníði . Sá síðarnefndi tæklaði Gylfa hressilega og uppskar gult spjald en Gylfi svaraði fyrir sig með orðum sem ekki eiga að heyrast á knattspyrnuvelli frekar en annars staðar. Þessi nýja 16. grein er í fimm liðum og má lesa hana á vefsíðu KSÍ. Augljóst er að hart á að taka á kynþáttaníði og allri mismunun. Lið getur til dæmis misst stig í móti gerist leikmenn og forsvarsmenn þess sekir um kynþáttaníð. Þá getur áhorfandi sem beitir leikmenn kynþáttaníði verið settur í tveggja ára leikvallabann og viðkomandi félag sektað um 150.000 krónur án tillits til saknæmrar háttsemi eða yfirsjónar félagsins. - tom Leikbann fyrir kynþáttaníð í Garðinum Leikmaður Víðis fyrstur úrskurðaður í leikbann samkvæmt nýrri 16. grein aga- og úrskurðarmála KSÍ. RAUTT Kynþáttaníð er ekki boðlegt. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY NÍU MÖRK Stjörnukonan Jóna Margrét Ragnarsdóttir í leiknum í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL Á TOPPINN Edin Dzeko skoraði tvö mörk með átta mínútna millibili um miðjan seinni hálfleik. MYND/GETTY OLÍS DEILD KVENNA LOKAÚRSLIT LEIKUR EITT STJARNAN - VALUR 22-20 (12-8) Mörk Stjörnunnar (skot): Jóna Margrét Ragnars- dóttir 9/1 (23/1), Sandra Sif Sigurjónsdóttir 4 (4), Esther Viktoría Ragnarsdóttir 4 (6), Helena Rut Örvarsdóttir 3 (13), Sólveig Lára Kjærnested 2 (4). Varin skot: Florentina Stanciu 15 (35/1, 43%), Mörk Vals (skot): Kristín Guðmundsdóttir 5/1 (15/1), Karólína Bærhenz Lárudóttir 4 (6), Anna Úrsúla Guðmundsdóttir 4 (7), Hrafnhildur Ósk Skúladóttir 3 (9), Bryndís Elín Wöhler 2 (3), Rebekka Rut Skúladóttir 1 (1), Ragnhildur Rósa Guðmundsdóttir 1 (2). Varin skot: Berglind Íris Hansdóttir 13 (34/1, 38%), Sigríður Arnfjörð Ólafsdóttir 1 (2, 50%). HANDBOLTI ÍBV og Haukar mæt- ast í kvöld í öðrum leik liðanna um Íslandsmeistaratitilinn í Olís-deild karla en stuðningsfólk liðanna er örugglega enn að ná sér niður eftir spennuna í fyrsta leiknum á mánudagskvöldið sem Haukar unnu með einu marki, 29-28, eftir að hafa skorað þrjú síðustu mörk leiksins. Það má búast við öðrum tauga- trylli í kvöld. Haukar hafa unnið tvo síðustu leiki liðanna með einu marki en þeir unnu 23-22 sigur í leik liðanna í apríl. Eyjamenn eru í lokaúrslitum í annað skiptið en eiga enn eftir að vinna leik í úrslitaeinvígi eftir 3-0 tap fyrir Haukum fyrir níu árum. Það lið verður Íslands- meistari sem fyrr vinnur þrjá leiki og því dugar ekkert fyrir Eyjaliðið nema sögulegur fyrsti sigur ÍBV í úrslitum. - óój Annar tauga- tryllir í kvöld? 1-1 EÐA 2-0? Eyjamenn misstu frá sér sigurinn í fyrsta leik. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM SPORT FÓTBOLTI Ástandið á grasvöllum Kópavogsbæjar er svo slæmt að yngri flokkar Breiðabliks fá ekki að aðgang að þeim fyrr en í fyrsta lagi í júlí. Þetta segir Daði Rafnsson, yfirþjálfari yngri flokka hjá Breiðabliki. Blikar hafa haft aðgang að sex heilum knattspyrnuvöllum á Sala-, Fífuhvamms- og Smára- hvammsvelli en Daði segir að þeir séu ónothæfir vegna mikilla kalskemmda. „Þangað til verðum við í Fífunni, á gervigrasinu í Fagralundi og malarvellinum í Vallargerði.“ Daði segir að síðast hafi verið æft og spilað á mölinni í Vallar- gerði árið 2005. „Völlurinn hefur verið notaður sem markageymsla síðustu ár en verður nú slóða- dreginn og búinn undir notkun.“ Þurfum fleiri gervigrasvelli Hann segir marga með nostalgíu- glampa í augunum enda margir sem minnast þess að hafa æft knattspyrnu á möl í æsku. Það hefur hins vegar verið fáheyrt undanfarin ár. „Persónulega finnst mér þetta afturför og sýnir að við þurfum að fá fleiri gervigrasvelli hér á landi,“ segir Daði en gervigras- væðing hefur verið afar umdeilt málefni meðal knattspyrnu- áhugamanna hér á landi. Margir eru þeirra skoðunar að knatt- spyrna skuli spiluð á náttúru- legu grasi. „Afstaðan gagnvart gervi- grasinu verður að mildast og hún hefur verið að gera það. Flestir í Breiðabliki gera sér grein fyrir því að þetta er framtíðin enda nýtingin margföld. Grasið síð- asta sumar nýttist bara í einn til tvo mánuði á mörgum stöðum og ekki er ástandið betra nú,“ segir Daði og bætir við að samkvæmt fyrstu drögum að æfingaáætlun geri hann ráð fyrir að all flestir yngri flokkar æfi minnst einu sinni í viku í Vallargerði í júní. Taka þátt í fimmta hverjum leik Knattspyrnudeild Breiðabliks er gríðarlega fjölmenn en Daði hefur fengið þær upplýsingar frá KSÍ að Breiðablik spili á bilinu 1.000-1.200 leiki ár hvert. Það sé um tuttugu prósent allra leikja sem KSÍ stendur fyrir. „Breiða- blik býr við mjög góða aðstöðu og því er einkennilegt að þurfa að kvarta undan aðstöðuleysi. En þetta er sá veruleiki sem við búum við.“ Eysteinn Pétur Lárusson, fram- kvæmdastjóri Breiðabliks, segir að félagið eigi í vandræðum. „Við erum með stærstu knatt- spyrnudeild landsins og með gríðarlegan fjölda iðkenda í yngri flokkum. Vallarsvæðin koma mjög illa undan vetri og við vitum ekki hvar við eigum að æfa. Sú hugmynd kom upp að fara á mölina og sá möguleiki stendur til boða,“ segir Eysteinn. „Bæjaryfirvöld og þeir sem standa að íþróttamálum þurfa að átta sig á umfangi knattspyrnu- deildarinnar og þeim vandræð- um sem hún stendur nú frammi fyrir,“ bætir hann við. eirikur@frettabladid.is Krakkarnir sendir á mölina Breiðablik hefur fengið þau skilaboð frá Kópavogsbæ að yngri fl okkar félagsins fái ekki að æfa á grasi fyrr en í júlí í fyrsta lagi. Yfi rþjálfari yngri fl okka félagsins telur þörf á að fá aðgang að fl eiri gervigrasvöllum. Ómar Stefánsson, forstöðumaður íþróttavalla í Kópavogi, segist aldrei hafa séð grasvelli bæjarins koma jafn illa undan vetrinum og nú á þeim fjórtán árum sem hann hefur gegnt starfinu. „Þetta eru ákveðnar hamfarir sem hafa átt sér stað,“ sagði Ómar en eins og ítrekað hefur verið fjallað um lágu grasvellir á höfuð- borgarsvæðin undir klaka lengi í vetur sem olli miklum kalskemmdum. „Sáning byrjaði fyrir tveimur vikum og kláraðist fyrir þremur dögum. Svo skoðum við hvort við sáum aftur í sumar en við þurfum klárlega að gera það aftur í haust,“ segir Ómar. „Við munum nú taka stöðuna vikulega og upplýsa félögin um gang mála jafn óðum.“ Hamfarir á íþróttavöllum Kópavogs FJÖLMENNIR YNGRI FLOKKAR Daði Rafnsson, yfirþjálfari yngri flokka hjá Breiðabliki, sést hér í gær í góðum hópi krakka sem æfa með Breiðabliki. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL Önnur umferð Pepsi-deildar karla í fótbolta fer öll fram í dag og þar af fara tveir leikjanna fram á gervigrasvellinum í Laugardal. Tvíhöfðinn í Dalnum hefst á leik Víkinga og Fram klukkan 18.00 en klukkan 20.30 fer síðan fram leikur Vals og Kefla- víkur, tveggja liða sem unnu góða sigra í fyrstu umferð. Íslandsmeisturum KR var spáð titlinum fyrir mót en þeir töpuðu 1-2 á móti Val í fyrsta leik og bíða því enn eftir fyrstu stigunum alveg eins og lið Víkinga, Þórs og Fylkis. KR-ingar heimsækja Blika klukkan 19.15 í kvöld í stórleik dagsins. Leikurinn fer fram á Samsung- vellinum í Garðabæ þar sem Kópavogsvöllur er ekki leikfær. Fyrsti leikur kvöldsins er leikur ÍBV og Stjörnunnar klukkan 17.00 á Hásteinsvelli í Eyjum og Þórsarar taka á móti nýliðum Fjölnis klukkan 18.00 en Grafarvogspiltar sitja í toppsætinu. FH-ingar bjóða aðra um- ferðina í röð upp á grasleik þegar þeir fá Fylkisliðið í heimsókn klukkan 19.15 en Ásmundur Arnarsson, þjálfari Fylkis, er í leikbanni í kvöld. Ná meistararnir í sín fyrstu stig?
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.