Fréttablaðið - 08.05.2014, Síða 32

Fréttablaðið - 08.05.2014, Síða 32
FÓLK|TÍSKA FÓLK ER KYNNINGARBLAÐ sem býður aug- lýsendum að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og umfjallana ásamt hefðbundnum auglýs- ingum. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega. Útgefandi: 365 miðlar | Ábyrgðarmaður: Jón Laufdal Sölumenn: Bryndís Hauksdóttir, bryndis@365.is, s. 512 5434 Kolbeinn Kolbeinsson, kolli@365.is, s. 512-5447 Hönnun: Silja Ástþórsdóttir Það er eftirsóknarvert að klæðast íslenskri fata-hönnun og bera sérsmíðað, íslenskt skart,“ segir Fjóla Guð- mundsdóttir hjá Handverki og hönnun. „Íslensk hönnun er bæði framsækin og flott og íslenskir hönnuðir skapandi og fljótir að tileinka sér nýjungar.“ Meðal þess sem gleður gests augað á vorsýningunni í Ráð- húsi Reykjavíkur verður hand- unnið band, skartgripir, barnaföt, trémunir, leðurvörur, skór og fatnaður. „Sýningin Handverk og hönn- un sló strax í gegn þegar hún var fyrst haldin árið 2006 og aðsókn- in hefur vaxið stöðugt síðan. Í boði hverju sinni er takmark- aður fjöldi sýningarplássa og er valið inn af faglegri valnefnd sem gerir miklar gæðakröfur til hönn- uða. Afraksturinn er því einstök sýning á íslensku handverki, list- iðnaði og hönnun,“ segir Fjóla. Sýningin er nú haldin í ellefta sinn. „Upphaflega var blásið til Handverks og hönnunar einu sinni á vetri en fyrir þremur árum var aðsóknin orðin svo mikil að ákveðið var að bæta við vorsýningu. Hún litast mjög af árstíðinni, hefur yfir sér létt og skemmtilegt yfirbragð með litríkari vörum og heillandi sumarstemningu,“ segir Fjóla um sýninguna sem hefur fest sig rækilega í sessi. Á vorsýningunni nú sýna tæplega fjörutíu hönnuðir, þar af sextán í fyrsta sinn. „Fyrir hönnuði felst mikið tækifæri í því að ná til jafn mikils gestafjölda og kemur í Ráðhúsið yfir sýningardagana. Þannig koma meðal annars þrír íslenskir hönnuðir sem starfa í París, London og Danmörku til að kynna Íslendingum hönnun sína.“ Á sýningunni verður einnig kynning á hugmyndafræði MAKE by Þorpið og þjónustu við skap- andi fólk á Austurlandi. Hægt er að skoða kynningu á öllum þátttakendum á www. handverkoghonnun.is/radhusid. Sýningin verður opnuð í Ráð- húsinu fimmtudaginn 15. maí klukkan 16 og stendur til mánu- dagsins 19. maí. Allir eru velkomnir og er að- gangur ókeypis. ÍSLENSKA TÍSKAN HÖNNUN Vorsýning Handverks og hönnunar verður haldin í Ráðhúsi Reykja- víkur dagana 15.-19. maí. Þar gefst einstakt tækifæri til að skoða íslenska hönnun og handverk og kynnast listamönnunum á bak við sköpunarverkin. PUUKI HALLDÓRA FJÖRUPERLUR DJULSDESIGN ÞÓRA BJÖRK SCHRAM NOSTRUM Sjá fleiri myndir á Ný sending af flottum sumarkjólum 20% afsláttur FYRIR VEISLUNA Ábendingahnappinn má finna á www.barnaheill.is

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.