Fréttablaðið - 08.05.2014, Qupperneq 42
8. maí 2014 FIMMTUDAGUR| MENNING | 30
TÓNLIST ★★★ ★★
Afmælistónleikar til heiðurs
Þóri Baldurssyni sjötugum
Þórir Baldursson ásamt Stórsveit
Reykjavíkur og gestasöngvurum í
Silfurbergi í Hörpu mánudaginn 5. maí.
Sumir atvinnutónlistarmenn eru
býsna sérhæfðir. Þeir eru fimir
hljóðfæraleikarar, en geta ekki
samið tónlist, hvað þá leikið af
fingrum fram. Aðrir eru tónskáld
en eru lélegir spilarar. Þeir þurfa
aðra til að flytja verkin sín.
Þórir Baldursson er hins vegar
músíkant af guðs náð. Hann spil-
ar einstaklega fallega á Hammond-
orgel, semur flott lög og útsetur
allt mögulegt. Hann er sjö tugur
um þessar mundir og í tilefni
afmælisins hélt Stórsveit Reykja-
víkur tónleika honum til heiðurs í
Silfurbergi í Hörpu á mánudags-
kvöldið. Þar var spilað á málm-
blásturshljóðfæri, saxófóna, þver-
flautur, trommur, gítar og bassa,
auk þess sem Þórir stjórnaði frá
orgelinu.
Þórir hefur fallegt bros og heil-
mikinn sviðssjarma. Það átti ekki
lítinn þátt í því hve dagskráin var
vel heppnuð. Hljómsveitin var óað-
finnanleg, samspilið nákvæmt og
alls konar impróvisasjónir ýmissa
hljóðfæraleikara voru fagrar og
dillandi.
Lögin voru úr ýmsum áttum,
þótt yfirbragð þeirra væri fremur
svipað. Swing-ið var alltaf áber-
andi og það vantaði bara mann
í hvítum jakkafötum á sviðið.
Náunga á borð við Fredo Corleone
úr Guðföður-myndunum. Einhvers
konar Las Vegas-stemning sveif
yfir vötnunum, sem var skemmti-
legt að upplifa.
Nokkrir hljóðfæraleikarar voru,
fyrir utan Þóri, í aðalhlutverkum.
Þar má nefna saxófónleikarana
Sigurð Flosason og Jóel Pálsson.
Þeir skiluðu sínu með afburðum.
Jóel lék listavel eftirlíkingu af
sólói sem Rúnar Georgsson heitinn
spilaði á sínum tíma af fingrum
fram í lagi eftir Magnús Eiríksson.
Og eftir Sigurð var flutt skondið
lag, Hankaður, auk þess sem hann
lék einleik í fyrsta laginu sem
Þórir samdi, Sunnubraut seytján.
Nokkrir söngvarar heiðruðu
afmælisbarnið. Þar fór fyrst á
svið dóttir Þóris, Sunna Margrét.
Hún skartaði fallegri rödd, en
íslenski textaframburðurinn í lag-
inu Leyndarmál eftir Þóri var ein-
kennilega bjagaður. Raggi Bjarna
var hins vegar með allt á hreinu ef
undan er skilið að hann mundi ekki
textann í laginu Flottur jakki eftir
Leon René. Besti söngvarinn var
Björgvin Halldórsson, sem söng
um Brúðarskóna, lag Þóris frá því
þegar hann var í Savannatríóinu.
Röddin var þétt og flott, sviðsfram-
koman afslöppuð. Björgvin var
miklu meira ekta en Bubbi Mort-
hens, sem virkaði tilgerðarlegur í
Þingmannagælu og Ísbjarnar blús.
Það var pínlegt að horfa á.
En aðalmaðurinn var auðvitað
Þórir sjálfur. Eins og áður sagði
er hann fagmaður fram í fingur-
góma og lögin hans eru mörg frá-
bær. Persónulega held ég mest upp
á Jarðarfarardag, sem var ekki á
dagskránni að þessu sinni, en það
á eftir að lifa með þjóðinni. Maður
sem getur samið slíkan gullmola er
ekkert annað en snillingur. Jónas Sen
NIÐURSTAÐA: Misflottir söngvarar,
en hljómsveitin var frábær og Þórir
Baldursson lék meistaralega vel á
Hammondinn.
Fagurlega leikið og
dillandi impróvisasjón
AFMÆLISBARNIÐ „Þórir Baldursson er hins vegar músíkant af guðs náð. Hann spilar
einstaklega fallega á Hammond-orgel, semur flott lög og útsetur allt mögulegt.“
FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Íslenski saxófónkvartettinn kemur fram á tónleikum í
Hjallakirkju í Kópavogi á laugardaginn klukkan 13. Leikin
verður fjölbreytt efnisskrá með verkum sem spanna sögu
tónsmíða fyrir saxófónkvartett. Saxófónnemendur úr
Skólahljómsveit Kópavogs munu leika með í upphafs-
og endaverkum tónleikanna. Rakin verður saga saxó-
fónsins og ólíkir möguleikar hljóðfærisins kynntir
með tóndæmum. Íslenska saxófónkvartettinn skipa
þau Vigdís Klara Aradóttir á sópransaxófón, Sigurður
Flosason á altsaxófón, Peter Tompkins á tenórsaxófón og
Guido Bäumer á barítónsaxófón.
Saxófónninn hylltur
Íslenski saxófónkvartettinn með tónleika í Kópavogi.
Spurningin um hvort Ísland hafi
verið dönsk nýlenda er meðal
umræðuefna sem tekin verða
fyrir á opnu málþingi sem fram
fer í Þjóðminjasafninu á morgun
og laugardag og ber yfirskriftina
„Að finna sér stað í veröldinni:
Ísland í Danaveldi og norðurslóðir
sem nýr heimshluti“.
Er það einhver spurning að
Ísland var nýlenda? „Já, það er
spurning sem hefur vafist svo-
lítið fyrir sagnfræðingum í gegn-
um tíðina,“ segir Ólafur Rastrick,
nýdoktor við Hugvísindasvið HÍ,
einn frummælenda á málþinginu.
„Sumir hafa algjörlega hafnað því
að Ísland hafi verið nýlenda og
frekar viljað skoða stjórnskipu-
lega stöðu Íslands í danska heims-
veldinu. Fólk hefur þá talað um
Ísland sem hjálendu Danmerkur,
þannig að það eru margar útgáfur
af þessu.“
Auk þess að ræða stöðu Íslands
í Danaveldi og áhrif þess í sam-
tímanum munu fræðimenn frá
Kaupmannahafnarháskóla, Við-
skiptaháskólanum í Kaupmanna-
höfn og Háskóla Íslands fjalla um
viðleitni Íslendinga til að skilja
stöðu sína í heiminum með tilvísun
meðal annars til heimsvaldastefnu
og sjálfstæðisbaráttu, kynþátta-
hyggju og sjálfsmyndar, menn-
ingararfleifðar og utanríkisstefnu
og mikilmennsku og minnimáttar-
kenndar. Aðalfyrirlesarar verða
sagnfræðingarnir Uffe Østerga-
ard og Guðmundur Hálfdanarson
og bókmenntafræðingurinn Kirs-
ten Thisted en auk þeirra munu tíu
hug- og félagsvísindamenn flytja
stutt erindi.
„Planið er að fara dálítið vítt og
breitt um söguna,“ segir Ólafur,
„og skoða ýmsar menningarlegar
og þjóðlegar forsendur fyrir því
hvernig Íslendingar hafa upplifað
sig á einhverjum stað í heiminum
út frá einhvers konar heimsmynd.
Þeir hafa í gegnum tíðina upplifað
sig með mjög breytilegum hætti
og aðstæður hafa verið mjög mis-
munandi, allt frá því að vera mjög
fátækt jaðarsvæði til þess að vera
velmegandi samfélag sem lítur
dálítið stórt á sig, eins og til dæmis
núna þegar talað er um norður-
slóðir sem sérstakan heimshluta.“
Málþingið hefst á morgun klukk-
an 15 og stendur til klukkan 17. Því
verður fram haldið á laugardag-
inn klukkan 10 og lýkur klukkan
18 sama dag. Málþingið fer fram á
ensku og eru allir velkomnir. Dag-
skrá má finna á heimasíðu Háskóla
Íslands, hi.is. - fsb
Var Ísland ekki dönsk nýlenda?
Þrettán norrænir fræðimenn munu á morgun og laugardaginn fara vítt og breitt
um söguna og fj alla um viðleitni Íslendinga til að skilja stöðu sína í heiminum.
ÓLAFUR RASTRICK „Íslendingar hafa
í gegnum tíðina upplifað sig með mjög
breytilegum hætti og aðstæður hafa
verið mjög mismunandi.“ FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
MENNING