Fréttablaðið - 08.05.2014, Side 50

Fréttablaðið - 08.05.2014, Side 50
8. maí 2014 FIMMTUDAGUR| LÍFIÐ | 38 LÍFIÐ TREND Á TWITTER Kassmerkið #12stig fór á fl ug þegar Pollapönk keppti í fyrri undankeppni Eurovision. Strákarnir sungu sig í úrslit og því ljóst að Twitter logar enn skærar á laugardags- kvöldið þegar þeir freista þess að vinna Eurovision fyrir hönd okkar Íslendinga. Nú er sólin loksins farin að láta sjá sig hér á landi og því ekki úr vegi að draga fram sumarklæðnaðinn og sóla sig í góðra vina hópi. Í ár koma litrík og skemmtileg úr sterk inn í sumartískuna og geta flott úr gert mikið fyrir heildarsumarútlitið. Hér eru nokkrar hugmyndir að flottum og flippuðum úrum sem stela ekki aðeins athyglinni heldur tryggja það að þú sért ávallt „fashio- nably late“. Fimm fl ippuð og falleg úr fyrir sumarið Það er um að gera að lífga upp á sumardressið með skemmtilegum fylgihlut– til dæmis litríku úri. Bobby Breiðholt @Breidholt Nú er mál að opna mexí- kóska kjúklingastaðinn Pollo Pönk. #12stig Pétur Jónsson @senordonpedro Hollenska lagið var samið af tón- listarfólki, hún kann að syngja og er sæt. Þetta á engan séns, burtu héðan! #12stig Bergur Ebbi @BergurEbbi Miðað við fordómastuðulinn í #12stig eru Íslendingar ekki alveg að meðtaka boðskap eigin lags Björn Bragi @bjornbragi Hvar erum við að fara að halda keppnina á næsta ári??? #12stig Örn Úlfar Sævarsson @ornulfar Þetta er ekki kvöldið sem Óttarr Proppé byrjar að tapa kosningum #12stig Atli Fannar @atlifannar Ha? Ljóshærð ung kona að keppa fyrir hönd Svíþjóðar í Eurovision? Hvað næst? Teknó frá Austur-Evrópu? #12stig SWATCHLEGO WATCHES MISS SELFRIDGE KATE SPADE ADIDAS Götudansmenningin á Íslandi fer ört vaxandi og þá ekki síst vegna nýjasta popping-dans æðisins og sigurvegara í Ísland Got Talent sem sérhæfir sig í slíkum dans- sporum. Sjálfur segist Brynjar Dagur vonast til þess að sjá danssenuna stækka enn meira. „Ég er búinn að heyra að fullt af yngri krökkum sem sáu atriðið í þættinum ætli að reyna fyrir sér í popping,“ segir Brynjar Dagur. „Ég held að atriðið hafi vakið athygli á þessu og ég vona að margir muni byrja að poppa.“ Brynjar Dagur lærði umræddan dansstíl hjá Brynju Péturs í götu- dansskólanum hennar. „Popping-tæknin er í grunn- inn bara vöðvastjórnun,“ segir Brynja. „Þú spennir og sleppir vöðva. Þú ert að þjálfa þannig að ‘hittin’ þín verði eins sterk og hægt er.“ Svonefndur popping-dansstíll varð til á vesturströnd Banda- ríkjanna í lok sjöunda áratug- arins og var mikið dansaður við fönk- og raftónlist. „Nú í dag eru dansararnir líka farnir að dansa við dub step, eins og Brynjar gerði í Ísland Got Talent,“ segir Brynja sem hefur verið að kenna götu- dans á Íslandi í tíu ár. „Ég byrjaði að kenna popping í fyrra, síðan hef ég fengið erlenda gestakenn- ara frá New York sem eru bæði upprennandi dansarar og stór nöfn,“ segir Brynja. Einn gestakennaranna var götu- dansarinn Android sem kenndi Brynjari Degi fyrstu popping- sporin. „Ég lærði mikið af honum, síðan hef ég líka fengið kennslu hjá Buddha Stretch, Munk og Hur- ricane í gegnum Brynju,“ segir Brynjar og bætir því við að hann dansi örlítið öðruvísi útgáfu af dansstílnum en vant er. „Alvöru popping er svona búggalú í mjöðm- unum og stórar hreyf ingar, en ég er meira í róbót og minni hreyf- ingum,“ segir ungi dansarinn en Brynja Péturs segir að hver dans- ari hafi sinn eigin stíl. „Þú kemur inn í samfélagið og þinn persónu- legi stíll skiptir svo miklu máli, þú ert að læra að vera sterkur einstaklingur í dansi.“ Áhuga- sömum er bent á dansskóla Brynju Péturs en þar geta nemendur lært flestallar stefnur götudans- ins. Aðspurður hvort hann fari að setja sig í kennarahlutverkið seg- ist Brynjar Dagur fyrst þurfa að fræðast og læra meira um stefn- una. „En það væri mjög gaman að kenna.“ baldvin@frettabladid.is Gróska í götudansinum Nýjasta æðið á Íslandi er svonefndur popping-dans en Brynjar Dagur Alberts- son, sigurvegari í Ísland Got Talent, æfi r dansstílinn í dansskóla Brynju Péturs. SIGURVEGARI Brynjar Dagur vill vekja athygli á popping-dansstílnum. FRÉTTABLAÐIÐ/ANDRI MARÍNÓ HRESSIR DANSARAR Brynja Péturs og Natasha Monay Royal ásamt nemanda sínum, Brynjari Degi, eftir sigur hans í Ísland Got Talent. MYND/EINKASAFN Popping er götudansstíll upprunninn í Kaliforníu í lok sjöunda áratugarins. Dansarar spenna og sleppa vöðvum í höndum og fótum til þess að fram- kalla „popping“-hreyfingarnar. Einnig er sérstök tækni lærð til þess að einangra ýmsa hluta líkamans eins og höfuð, brjóstkassa og mjaðmir sem framkalla nokkurs konar sjónhverfingu. Þessar hvössu hreyfingar eru speglaðar með „waving“ þar sem líkami dansarans verður undirlagður af bylgju, til dæmis frá hægri hendi til vinstri handar eða frá toppi til táar. Einn helsti áhrifavaldur dansstílsins er Michael Jackson en hann lærði hjá þekktum dönsurum á borð við Pop N Taco sem er höfundur margra þeirra dansspora sem einkenndu Jackson. Má þar nefna sparkið fræga og „moonwalkið“ en það spor kallast á fagmáli „backslide“ og var gert löngu fyrir tíma Michaels. Hvað er popping? Ég er búinn að heyra að fullt af yngri krökkum sem sáu atriðið í þættinum ætli að reyna fyrir sér í popping. sunnudaginn 11. maí kl. 11 GÖNGUM SAMAN AKUREYRI BORGARNES EGILSSTAÐIR HÖFN HVERAGERÐI ÍSAFJÖRÐUR NESKAUPSTAÐUR REYÐAR- FJÖRÐUR REYKJANESBÆR REYKJAVÍK SEYÐISFJÖRÐUR SIGLUFJÖRÐUR STYKKIS- HÓLMUR VESTMANNAEYJAR

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.