Fréttablaðið - 08.05.2014, Page 52
8. maí 2014 FIMMTUDAGUR| LÍFIÐ | 40
Dramatískir kjólar, hamstrahjól og leðurbuxur
Í gegnum tíðina hefur
sviðsframkoma í Euro-
vision-söngvakeppninni
vakið athygli og ólík-
leg ustu hlutir hafa
stolið senunni frá sjálfri
lagasmíðinni. Engin
undantekning var á því í
undankeppninni á þriðju-
daginn. Fataval kepp-
enda vakti athygli og
kenndi þar ýmissa grasa
á borð við pallíettu kjóla,
líkamsmálningu, netaboli
og leðurbuxur.
PORTÚGAL Hin Portúgalska Suzy
tjaldaði öllu til á sviðinu. Trommu-
leikarar berir að ofan, bakraddasöng-
konur í stuttum kjólum og sjálf mætti
hún til leiks í stuttum pallíettukjól. En
það dugði ekki til og hún datt út með
lagið Quero ser Tua.
SVÍÞJÓÐ Sanna Nielsen frá Svíþjóð
tók enga áhættu í fatavali og sviðs-
framkomu á þriðjudaginn enda sigldi
hún í svörtum blúndukjól örugglega
í úrslit með lagið Undo, sem er spáð
einu af toppsætunum á laugardaginn.
ARMENÍA Aram
MP3 frá Armeníu
var í jakkafötum,
síðum jakka og
gyrti buxna-
skálmarnar ofan
í há leðurstígvél.
Hanskarnir settu
svo punktinn yfir
i-ið en hann kom
sér Í úrslita-
keppnina.
MOLDÓVA Það var
ákveðið Game of
Thrones-þema í
búningavali framlags
Moldóvu í Eurovision í
ár. Söngkonan Cristina
Scarlat söng lagið Wild
Soul í dramatískum
bláum kjól umvafin
karlkyns dönsurum
í pilsum. Hún komst
ekki áfram.
LETTLAND Krútt kvöldsins voru meðlimir hljómsveitarinnar
Aarzemnieki frá Lettlandi en það leit út fyrir að tilviljun réði för
í fatavali. Litadýrðin skilaði þeim samt ekki í úrslit.
HOLLAND Hljómsveitin The Common
Linnets frá Hollandi var smart á sviðinu
í leðurbuxum og blúndukjól. Svolítið
brúðarblær yfir framlaginu.
ÚKRAÍNA
Maríja
Jaremtsjúk
frá Úkraínu
komst áfram
í úrslit með
lagið Tick-
Tock en það
var hamstra-
hjólið á
sviðinu sem
stal senunni
þar sem
maður sýndi
listir sínar í
bakgrunni.
VERÐ FRÁ EINUNGIS 2.190.000 KR. - GERÐU VERÐSAMANBURÐ
.
Mazda2 er sparneytinn, ótrúlega lipur og hagkvæmur í rekstri. Hann er búinn öflugri 1,3 lítra bensínvél sem þó eyðir
einungis frá 4,3 l/100 km og fær frítt í stæði. Mazda2 er áreiðanlegur, öruggur, vel búinn og frábær í endursölu.
Taktu snúning á Mazda2, gerðu góð kaup og lækkaðu rekstrarkostnaðinn.
MAZDA. DEFY CONVENTION.
Nýir og notaðir bílar: Söludeildir eru opnar alla virka daga frá kl. 9-17 og laugardaga frá kl. 12-16.
Brimborg Reykjavík: Bíldshöfða 8, sími 515 7040 I Brimborg Akureyri: Tryggvabraut 5, sími 515 7050 I mazda.is
Brimborg og Mazda áskilja sér rétt til að breyta verði og búnaði án fyrirvara. Útbúnaður getur verið frábrugðinn mynd í auglýsingu.
*
Mazda2 eyðir 4,3 l/100 km í langkeyrslu og fær frítt í stæði í miðborg Reykjavíkur í 90 mínútur í senn.
5 stjörnu öryggi!