Fréttir - Eyjafréttir - 16.07.1981, Síða 6
FRÉTTIR VIKUBLAÐ
Hvers vegna Þjóðhátíð?
Stundum er spurt: Hvers
vegna kalla Vestmanneying-
ar þessa sumarsamkomu sína
í Herjólfsdal, Þjóðhátíð?
Almenningur veit ekki
hvaða toga þessi sérstæða
þjóðhátíð okkar er spunnin.
Þetta þarf ekki að vera svo
undarlegt, því við Islend-
ingar, flestir hverjir, höfum
glatað meðvitundinni um
okkar fyrstu þjóðhátíð, 5.-7.
ágúst 1874, þegar minnst
var eitt þúsund ára afmælis
Islandsbyggðar og þá feng-
um við okkar stjórnarskrá.
Þá, árið 1874, var haldin
vegleg Þjóðhátíð á Þing-
völlum og hugðust margir
Eyjabúar sækja þá hátíð.
I þá daga var ekki hægt að
stíga upp í flugvél og blaka
sér á 20 mínútum til höfuð-
borgarinnar. Þá var enginn
Herjólfur sem plægði hafflöt-
inn milli Eyja og lands.
Þá var hinsvegar sem oftar
slæmt í sjóinn við Vest-
mannaeyjar, svo ófært var
þeim litlu fleyjum, sem í þá
daga fluttu fólk milli Eyja og
lands. Eyjabúar komust því
ekki á Þingvelli þetta herrans
ár 1874.
Þegar Eyjamenn hafa á
annað borð ákveðið að
skemmta sér og halda uppá
fengna stjórnarskrá og þús-
undára-afmælið, já þá halda
Eyjabúar sína eigin þjóðhátíð
í Herjólfsdal. Og enn, 107
árum síðar er haldin Þjóðhá-
tíð í Herjólfsdal í Vestmanna-
eyjum.
..... ^
Fyrsta
skóflu-
stungan
í kl. 13.00 var áformað
að taka fyrstu skóflu-
stunguna að húsi Vernd-
aðs vinnustaðar í Vest-
mannaeyjum.
Húsið verður byggt á
gatnamótum Faxastígs
og Hlíðarvegar. Sem
kunnugt er, hefur talsvert
fé safnast til þessarar
byggingar, gefið af ein-
staklingum og fyrirtækj-
um.
-
NÝR LUNDI
TIL SÖLU
5 krónur í fiðri - 7 krónur
hamflettur.
Upplýsingar í síma 1203 í
matartímum.
... ■'
Nýjar myndir
vikulega
Leigi einnig mynd-
segulbönd.
VTDEOBANKINN
Dverghamri 32, sími 2502.
________
Þjóðhátíðarundirbúningur
Fæstir, sem koma á Þjóð-
hátíð Vestmannaeyja, gera
sér í hugarlund, hvílíkt und-
irbúningsstarf liggur að baki
þá er sjálf hátíðin er sett og
allir eru komnir í hátíðar-
skap.
Innan félagsins er kosin
sérstök aðalnefnd sem hefur
alla yfirstjórn á undirbúningi
og framkvæmd hátíðarinnar.
Þessi nefnd tekur til starfa
strax um áramótin og vinnur
stanzlaust þangað til hátíðin
er um garð gengin og öllum
frágangi á hátíðasvæðinu í
Herjólfsdal er lokið. Auk að-
alnefndar eru svo fjölmargar
aðrar ,,nefndir“ starfandi, s.s
pallanefnd, skreytinganefnd,
brennunefnd. Þá sjá sömu
aðilarnir um sín ákveðnu
verk ár eftir ár, eins og að sjá
um merkingu gatna í tjald-
borginni. Vinna í Herjólfsdal
hófst um mánaðamótin júní
-júlí og stendur sú vinna yíir
allt fram að því, að hátíðin er
sett.
Mikill fjöldi félaga í Knatt-
spyrnufélaginu Tý, vinnur
mikið að undirbúningi og
framkvæmd og er öll sú vinna
lögð fram í sjálfboðavinnu.
Aðalnefnd Týs 1981 skipa:
Birgir Guðjónsson, Krist
mann Kristmannsson, Rafn
Pálsson, Sigurður Georgs-
son og Sigursteinn Oskars-
BÍÓ
Fimmtudag kl. 8:
Anne Hall
með Woodie Allen
Sýnd í allra síðasta sinn
Klukkan 10:
Hjónaband
Maríu Brown
Föstudagur
kl. 20.30:
The 39 Steps
Hörkspennandi mynd.
NÝI SALUR:
Diskótekið Þorgerð-
ur skemmtir frá kl.
9-2.
Laugardagur:
BÍÓ SALUR:
Nú mæta allir í
Höllina í þjóðhátíð-
arskapi því hin geysi-
vinsæla hljómsveit
GRÝLURNAR
sér um að allir
skemmti sér frá 10-2.
Komið, sjáið og
sannfærist.
NÝI SALUR:
Diskótekið Þorgerð-
ur skemmtir kl. 9-2.
Húsínu lokað kl.
11.30, svo nú er um
að gera að mæta
snemma. Aldurstak-
mark 20 ára. Snyrti-
legur klæðnaður!